Morgunblaðið - 15.06.2022, Page 22

Morgunblaðið - 15.06.2022, Page 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 Enska karlalandsliðið í fótbolta mátti þola 0:4-skell gegn Ungverja- landi á Molineux-vellinum í Wolver- hampton í Þjóðadeildinni í gær- kvöldi. Tapið er það stærsta hjá enska landsliðinu á heimavelli í 94 ár eða frá 1:5-tapi gegn Skotlandi á Wembley árið 1928. Roland Sallai skoraði tvö marka Ungverja. Eng- land er á botni riðilsins og í hættu á að falla í B-deildina. Í sama riðli vann Þýskaland 5:2- heimasigur á Ítalíu. Timo Werner skoraði tvö fyrir Þjóðverja. Ung- verjaland er óvænt á toppi riðilsins. Stærsta tap Englands í 94 ár AFP Svekktur Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, gáttaður í gær. Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson frá Firði/SH hafnaði í gærkvöldi í sjö- unda sæti í 100m bringusundi S14 á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi á Madeira í Portúgal. Róbert setti tvö met í úrslitasundinu því millitími hans á 50 metrum var einnig nýtt Íslands- met í 50 m bringusundi S14. Heild- artíminn og nýja metið er 1:08,36 mínúta og nýja metið á millitímanum í 50 m bringu er 31,68 sekúnda Þá hafnaði Thelma Björg Björns- dóttir frá ÍFR í 6. sæti í 200 m fjór- sundi S6 þegar hún synti á 3:44.20 mínútum. Ljósmynd/ÍF Íslandsmet Róbert Ísak Jónsson bætti Íslandsmet í gærkvöldi. Tvö Íslandsmet á Madeira AFTURELDING – ÍBV 0:1 0:1 Olga Sevcova 43. M Auður S. Scheving (Aftureldingu) Sigrún Eva Sigurðardóttir (Aftureldingu) Lavinia Boanda (ÍBV) Ameera Hussen (ÍBV) Olga Sevcova (ÍBV) Thelma Sól Óðinsdóttir (ÍBV) Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 7. Áhorfendur: 106. ÞÓR/KA – KR 3:3 0:1 Hildur Lilja Ágústsdóttir 5. 1:1 Sandra María Jessen 30. 1:2 Guðmunda Brynja Óladóttir 37. 2:2 Arna Eiríksdóttir 54. 3:2 Margrét Árnadóttir 65. 3:3 Rasamee Phonsongkham (víti) 80. MM Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) M Margrét Árnadóttir (Þór/KA) Sandra María Jessen (Þór/KA) Kristín Erla Ó. Johnson (KR) Rebekka Sverrisdóttir (KR) Marcella Marie Barberic (KR) Bergdís Fanney Einarsdóttir (KR) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 8. Áhorfendur: 167. SELFOSS – VALUR 0:1 0:1 Anna Rakel Pétursdóttir 20. M Susanna Friedrichs (Selfossi) Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi) Unnur Dóra Bergsdóttir (Selfossi) Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val) Þórdís Elva Ágústsdóttir (Val) Ída Marín Hermannsdóttir (Val) Anna Rakel Pétursdóttir (Val) Dómari: Aðalbjörn H. Þorsteinsson – 8. Áhorfendur: 248. KEFLAVÍK – STJARNAN 1:0 1:0 Elín Helena Karlsdóttir 47. MM Samantha Leshnak (Keflavík) M Caroline Van Slambrouck (Keflavík) Dröfn Einarsdóttir (Keflavík) Elín Helena Karlsdóttir (Keflavík) Kristrún Ýr Hólm (Keflavík) Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjörnunni) Betsy Hassett (Stjörnunni) Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni) Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörnunni) Dómari: Steinar Berg Sævarsson – 8. Áhorfendur: 100. ÞRÓTTUR R. – BREIÐABLIK 0:3 0:1 Hildur Antonsdóttir 27. 0:2 Hildur Antonsdóttir 85. 0:3 Alexandra Jóhannsdóttir 88. M Freyja Karín Þorvarðardóttir (Þrótti) Jelena Tinna Kujundzic (Þrótti) Clara Sigurðardóttir (Breiðabliki) Karítas Tómasdóttir (Breiðabliki) Áslaug M. Gunnlaugsdóttir (Breiðabliki) Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki) Anna Petryk (Breiðabliki) Birta Georgsdóttir (Breiðabliki) Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki) Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7. Áhorfendur: 190. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti. BESTA DEILDIN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Valur jók forskot sitt á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta í fjögur stig með 1:0-útisigri á Selfossi er öll 9. umferðin var leikin í gær- kvöldi. Valur er nú með 22 stig, fjórum stigum meira en Breiðablik sem er komið upp í annað sætið. Anna Rakel Pétursdóttir skoraði sigurmark Vals á 20. mínútu. Valur hefur nú svarað jafnteflinu gegn ÍBV í upphafi mánaðar með þrem- ur góðum sigrum. Selfoss er hins- vegar í eilitlu basli í deildinni eftir góða byrjun. Liðið hefur tapað þremur af síðustu fjórum í deild- inni, þar af síðustu tveimur 0:1. Deildin er jafnari en oft áður og er Selfoss, sem var á toppnum fyrir ekki svo löngu, í sjötta sæti. Hlut- irnir eru fljótir að breytast. _ Markið var það fyrsta sem Anna Rakel skorar á leiktíðinni í sínum níunda deildarleik. Breiðablik komið upp í 2.000 Breiðablik skaut sér upp í ann- að sætið með 3:0-útisigri á Þrótti í Laugardalnum. Hildur Antons- dóttir gerði tvö fyrstu mörkin og Alexandra Jóhannsdóttir gull- tryggði þriggja marka sigur í blá- lokin. Breiðablik tapaði tveimur leikjum í röð um miðjan síðasta mánuð en hefur svarað með fimm sigrum í röð í öllum keppnum. Breiðablik er komið á skrið og lið- ið ætlar sér ekkert annað en að berjast um Íslandsmeistaratitilinn við Val, eins og undanfarin ár. Þróttur er enn nokkrum skrefum á eftir allra bestu liðum landsins. _ Annað mark Hildar var 2.000. mark Breiðabliks í deildarkeppni. Breiðablik er annað liðið á Íslandi til að afreka slíkt en Kópavogsliðið hefur nú skorað 2.001 mark í deildarkeppni. Valur er með 2.018 mörk. _ María Eva Eyjólfsdóttir hjá Þrótti lék sinn 100. leik í efstu deild í gær. Eyjakonur á siglingu ÍBV er á fínni siglingu. Eyja- konur fóru upp í þriðja sætið með 1:0-útisigri á Aftureldingu í Mos- fellsbæ. Lettneska landsliðskonan Olga Sevcova skoraði sigurmarkið á 43. mínútu. Hún hefur skorað í tveimur leikjum í röð. ÍBV hefur unnið fjóra leiki af síðustu fimm og gert jafntefli gegn toppliði Vals á útivelli. Jonathan Glenn er að gera flotta hluti með ÍBV og gæti liðið óvænt barist við toppinn þeg- ar líða tekur á mótið. Óvænt í Keflavík Keflavík fjarlægðist fallsætin með sterkum 1:0-sigri á Stjörn- unni á heimavelli. Fyrir leikinn var Stjarnan með níu stigum meira en Keflavík og með sex sigra í röð í öllum keppnum. Á meðan hafði Keflavík ekki unnið leik í rúman mánuð. Þrátt fyrir það skoraði Elín Helena Karls- dóttir sigurmark Keflavíkur á 46. mínútu með sínu fyrsta marki í efstu deild. Eftir það vörðust Keflvíkingar mjög vel og Sam- antha Leshnak átti enn og aftur góðan leik í markinu. _ Leikurinn var sá 200. hjá Keflavík í efstu deild í kvenna- flokki. _ Arna Dís Arnþórsdóttir hjá Stjörnunni lék sinn 100. leik í efstu deild. Sex marka veisla KR fór upp úr botnsætinu eftir fjörugt 3:3-jafntefli á útivelli gegn Þór/KA. Liðin skiptust á að vera með forystuna og skiptu að lokum stigunum á milli sín. KR hefur sýnt betri frammistöðu eftir að Chris Harrington tók við liðinu en það verður samt sem áður þrautin þyngri að koma því af hættusvæð- inu. KR-ingar eru sex stigum frá öruggu sæti. KA/Þór hefur átt erf- itt uppdráttar að undanförnu og er liðið aðeins með einn sigur í síðustu sex í deildinni. Liðið getur þakkað fyrir að nýliðarnir hafa safnað fáum stigum. Kunnugleg nöfn á toppnum Morgunblaðið/Eggert Mosfellsbær Þórhildur Þórhallsdóttir úr Aftureldingu leitar leiða framhjá Eyjakonunum Haley Thomas og Ameera Hussen í gærkvöldi. - Fjögurra stiga forskot Vals - Breiðablik upp í annað sæti - ÍBV á siglingu Morgunblaðið/Óttar Geirsson Sigurmarkið Anna Rakel Pétursdóttir hjá Val fagnar sigurmarki sínu gegn Selfossi á útivelli í Bestu deildinni í fótbolta í gærkvöldi. Besta deild kvenna Afturelding – ÍBV .................................... 0:1 Þór/KA – KR............................................. 3:3 Keflavík – Stjarnan .................................. 1:0 Selfoss – Valur .......................................... 0:1 Þróttur R. – Breiðablik............................ 0:3 Staðan: Valur 9 7 1 1 26:5 22 Breiðablik 9 6 0 3 21:5 18 ÍBV 9 5 2 2 15:11 17 Stjarnan 9 5 1 3 18:10 16 Þróttur R. 9 5 1 3 16:13 16 Selfoss 9 4 2 3 11:8 14 Keflavík 9 3 1 5 12:13 10 Þór/KA 9 3 1 5 16:26 10 KR 9 1 1 7 8:33 4 Afturelding 9 1 0 8 9:28 3 Undankeppni HM karla Úrslitaleikur um HM-sæti: Kostaríka – Nýja-Sjáland........................ 1:0 Þjóðadeild UEFA A-deild, 3. riðill: England – Ungverjaland ......................... 0:4 Þýskaland – Ítalía..................................... 5:2 _ Ungverjaland 7, Þýskaland 6, Ítalía 5, England 2. A-deild, 4. riðill: Holland – Wales........................................ 3:2 Pólland – Belgía........................................ 0:1 _ Holland 10, Belgía 7, Pólland 4, Wales 1. B-deild, 1. riðill: Armenía – Skotland ................................. 1:4 Úkraína – Írland....................................... 1:1 _ Úkraína 7, Skotland 6, Írland 4, Armenía 3. B-deild, 3. riðill: Bosnía – Finnland .................................... 3:2 Rúmenía – Svartfjallaland....................... 0:3 _ Bosnía 8, Svartfjallaland 7, Finnland 4, Rúmenía 3. C-deild, 1. riðill: Lúxemborg – Færeyjar........................... 2:2 Tyrkland – Litháen .................................. 2:0 _ Tyrkland 12, Lúxemborg 7, Færeyjar 4, Litháen 0. D-deild, 1. riðill: Moldóva – Andorra .................................. 2:1 Liechtenstein – Lettland ......................... 0:2 _ Lettland 12, Moldóva 7, Andorra 4, Liechtenstein 0. Vináttulandsleikir karla Suður-Kórea – Egyptaland ..................... 4:1 Gana – Síle................................ (0:0) 3:1(víti) Japan – Túnis............................................ 0:3 Svíþjóð Piteå – Djurgården ................................. 3:0 - Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö mörk fyrir Piteå og var skipt af velli á 88. mínútu. Staðan: Rosengård 14 11 3 0 42:14 36 Linköping 14 10 1 3 32:13 31 Kristianstad 14 9 3 2 31:12 30 Häcken 14 7 5 2 27:12 26 Vittsjö 14 7 5 2 18:13 26 Eskilstuna 14 8 2 4 17:12 26 Hammarby 14 8 1 5 24:20 25 Piteå 14 6 2 6 22:16 20 Djurgarden 14 6 1 7 21:22 19 Örebro 14 5 0 9 12:20 15 Kalmar 14 3 0 11 12:40 9 Umeå 14 2 1 11 13:32 7 Brommapojkarna 14 2 0 12 11:32 6 AIK 14 2 0 12 9:33 6 _ 15. umferðin er leikin 17. og 19. júní en síðan er deildin komin í sumarfrí til 12. ágúst. >;(//24)3;( Breiðablik mætir liðinu UE Santa Coloma frá Andorra í fyrstu um- ferð Sambandsdeildar karla í knattspyrnu. KR hafði ekki heppn- ina með sér, þar sem félagið mætir Pogon Szczecin frá Póllandi. UE Santa Coloma hafnaði í öðru sæti í Andorra á nýliðnu keppnistímabili. Pogon Szczecin endaði í 3. sæti pólsku A-deildarinnar á síðasta tímabili. Fyrri leikir liðanna verða 7. júli og þeir seinni 14. júlí. Íslandsmeistarar Víkings úr Reykjavík mæta sænsku meist- urunum í Malmö, skyldi félagið vinna forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Til Póllands og Andorra KNATTSPYRNA Besta deild karla: Hásteinsvöllur: ÍBV – Víkingur R ........... 18 Meistaravellir: KR – ÍA ....................... 19.15 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Víkin: Víkingur R. – HK ...................... 19.15 Kópavogsv.: Augnablik – Fylkir ......... 19.15 Kaplakriki: FH – Grindavík ................ 19.15 3. deild karla: Hlíðarendi: KH – ÍH ............................ 19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.