Morgunblaðið - 15.06.2022, Side 24

Morgunblaðið - 15.06.2022, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 samfélaginu. Það verða því alltaf reglulega kynslóðaskipti í leikhúsinu, sem geta stundum verið grimm, en eru nauðsynleg. Eftir því sem leikhúsin eru færri þeim mun meira áríðandi er að gefa ungu kynslóðinni tækifæri til að láta rödd sína heyrast,“ segir Ólafur Haukur og tekur fram að hann sé enn að skrifa bækur og leikrit og búa til músík. „Það er gaman að vinna og þess vegna held ég því áfram,“ segir Ólafur Haukur sem fagnar 75 ára afmæli sínu síðar á árinu. „Ég hef verið að undirbúa útgáfu allra leik- rita minna á bók sem kemur út í einu ef ekki tveimur bindum og næ mögulega að gefa verk- in út í tengslum við stórafmælið. Ég er svo íhaldssamur að ég vil að þessi verk séu til á bók og ekki bara á rafrænu formi, sem þau verða auðvitað líka. Leikhússagan okkar er svo stutt að mér finnst nauðsynlegt að halda því til haga sem verið hefur gert,“ segir Ólafur Haukur og tekur fram að heildarútgáfan telji um 25 verk. „Sem nær öll hafa verið sviðsett, enda hef ég verið svo heppinn að langmest af því sem ég hef skrifað hefur ratað á svið. Ég hef verið sá lukkunnar pamfíll að eiga gott og farsælt samstarf við leikhúsið og unnið mikið og lengi með sama fólkinu, þeirra á meðal eru Þórhallur Sigurðsson sem leikstýrði fjölda verka minna og Gunnar Eyjólfsson heitinn leikari. Það var mér algjörlega ómetanlegt að fá að taka út minn þroska í leikhúsinu,“ segir Ólafur Haukur og áréttar mikilvægi þess að hlúð sé betur að íslenskum leikskáldum, enda komi það leikhúsunum til góða. Leikhúsin styðji betur við höfunda „Í meðalári er verið að frumsýna í kringum 40 leiksýningar og vilji hefur verið til þess að um helmingur þeirra séu íslensk verk. Almennt er talið að það þurfi ár til að skrifa fullburða leikverk og það gerir höfundur ekki á hverju ári. Það þarf því nokkuð stóran hóp höfunda sem eru í fullu starfi við að skrifa til að nægt framboð sé af nýjum íslenskum verk- um hverju sinni,“ segir Ólafur Haukur og bendir á að fáir höfundar hafi getað einbeitt sér alfarið að leikritaskrifum, sem sé miður. „Ef leikhúsið vill fá þann fjölda nýrra íslenskra verka sem það þarf verður það að sinna rækt- unarstarfinu betur og standa við bakið á höf- undum sem vilja efla sig sem leikskáld.“ Þúsundföld tilfinningasprengja Inntur eftir því hvaða leikrit hans séu eftir- minnilegust í hans huga svarar Ólafur Hauk- ur: „Eins og aðrir höfundar á ég bágt með að nefna eitthvert eitt verk,“ segir Ólafur Haukur og rifjar upp að Hafið hafi verið sér mikilvægt verk. „Þar skrifaði ég um forsendur sem ég þekkti afskaplega vel, enda hafði allt mitt fólk í báðar ættir verið í útgerð. Það lá því nærri mér að fjalla um þann vettvang og það fólk sem er í kringum það. Einnig langar mig að nefna Græna landið sem segir átakanlega sögu eldri manns sem fær alzheimersjúkdóminn og hvernig tengsl hans við umhverfið eru að leys- ast upp og rofna. Móðir mín fékk þennan skæða og leiða sjúkdóm, þannig að þetta var líka verk sem hjó nálægt mér. Þrek og tár, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu, var afskaplega skemmtileg lífsreynsla, því það var svo mikil og innileg gleði í kringum þá uppfærslu og mikið af hæfileikafólki sem tók þátt í sýning- unni að hún gat eiginlega ekki klikkað.“ Ekki er hægt að sleppa Ólafi Hauki án þess að forvitnast um hvort hann muni eftir fyrstu leiksýningunni sem hann sá og hvaða áhrif hún hafi haft á hann. „Fyrsta leiksýningin sem ég sá var uppfærsla Þjóðleikhússins á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og Stóra Kláus sem ég sá þegar ég var fimm ára. Þetta var mjög áhrifamikil sýning sem færði mér heim sanninn um það að lítilmagninn getur sigrast á ofureflinu með ráðsnilld og snarræði. Þetta var leikhúslexía.“ Spurður hvort hann eigi góð ráð handa ung- um leikskáldum í dag segir Ólafur Haukur það auðvitað persónulega ákvörðun hvers og eins hvort hann eða hún velji „að eyða tíma í eitt- hvað sem ekki er tryggt að verði barn í brók“ enda geti margt klikkað í ferlinu öllu. Hins vegar fer hann ekki leynt með að listrænn ávinningur sé mikill þegar vel tekst til. „Ég hef gefið út fullt af bókum. Þegar bókin er komin í band og út á markað þá fylgir því engin sér- stök tilfinning. Annað gildir þegar þú sem leik- skáld situr í sal fullum af fólki sem er að horfa og hlusta á uppfærslu á verki eftir þig og þú finnur að leikhúsgestir tengja við efnið og hríf- ast með einhverjum hætti, annaðhvort í sorg eða gleði. Þá upplifur maður þúsundfalda til- finningasprengju. Það er svo ótrúlegt að fólk geti sameinast í tilfinningum inni í lokuðum, myrkvuðum sal þar sem allir eru tilbúnir að taka þátt í samlifun með fólki sem er að látast uppi á sviði. Galdur leikhússins er alveg ótrú- legur. Þú upplifir þetta hvergi annars staðar í neinni annarri listgrein, nema kannski ein- staka sinnum á tónleikum,“ segir Ólafur Hauk- ur að lokum. „Galdur leikhússins er ótrúlegur“ - Ólafur Haukur Símonarson heiðursverðlaunahafi Sviðslistasambands Íslands 2022 - Undirbýr heildarútgáfu allra leikrita sinna - Segir mikilvægt að hlúð sé betur að íslenskum leikskáldum Morgunblaðið/Eggert Þakklæti „Það gleður mig að fólk skuli líta svo á að ég hafi skilað leikhúsinu einhverju sem er þess virði að minnast á,“ segir Ólafur Haukur Símonarson sem skrifað hefur um 25 leikrit. Morgunblaðið/Árni Sæberg Græna landið Gunnar Eyjólfsson og Krist- björg Kjeld í Græna landinu árið 2004. VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er auðvitað gaman að fá svona viðurkenn- ingu og mér þykir vænt um það. Það gleður mig að fólk skuli líta svo á að ég hafi skilað leikhúsinu einhverju sem er þess virði að minnast á. Ég er líka þakklátur fyrir að fólk skuli enn muna eftir mér, enda eru nokkur ár síðan verk eftir mig hafa verið á fjölunum,“ segir Ólafur Haukur Símonarson sem í gær- kvöldi tók við heiðursverðlaunum Sviðslista- sambands Íslands 2022 fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu sviðslista á Íslandi. Ólafur Haukur stundaði nám í hönnun, bók- menntum og leikhúsfræðum í Kaupmannahöfn og Frakklandi, og hóf svo starfsferil sinn hjá RÚV, þar sem hann gerði heimildarmyndir um íslenskt þjóðlíf, en frá árinu 1976 hefur hann eingöngu sinnt skáldskap, ritstörfum og þýð- ingum. Hann hefur setið í stjórnum og ráðum ýmissa félaga og samtaka, var formaður Leik- skáldafélags Íslands í þrettán ár, sat í stjórn STEFs og gegndi embætti varaforseta leik- skáldanefndar Alþjóðaleiklistarsambandsins um árabil. Hann hefur setið í verkefnavals- nefnd Leiklistarhátíðarinnar í Bonn og var leikhússtjóri Alþýðuleikhússins um tíma. Hann er einn af stofnfélögum Rithöfunda- sambands Íslands, þar sem hann gegndi vara- formennsku í átta ár og var nýlega útnefndur heiðursfélagi Rithöfundasambandsins. Húmorinn aldrei langt undan Þegar Ólafur Haukur var kynntur á svið Þjóðleikhússins í gær var rifjað upp að hann hefði skrifað tugi leikverka „sem notið hafa mikillar hylli leikhúsáhorfenda, bæði söng- leiki, gamanleiki, ádeiluverk og hádramatísk leikrit. Húmorinn er þó aldrei langt undan og lyftir jafnan verkum hans í hæstu hæðir. Auk leikritanna liggur eftir hann mikill fjöldi skáld- sagna, smásagna, barna- og unglingabóka, söngtexta og laga, þar á meðal sumar af vin- sælustu barnaplötum allra tíma,“ sagði í kynn- ingunni. Meðal leikrita Ólafs Hauks á löngum og farsælum ferli eru Blómarósir (1978), Kött- urinn sem fer sínar eigin leiðir (1984), Kjöt (1989), Gauragangur (1993), Þrek og tár (1995), Kennarar óskast (1996), Græna landið (2003), Fólkið í blokkinni (2008), Bílaverkstæði Badda (1987) og Hafið (1992), en tvö síðast- nefndu verkin voru kvikmynduð við góðar undirtektir. Fyrir verk sín hefur Ólafur Hauk- ur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar, meðal annars tilnefningu til Bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs og Norrænu leik- skáldaverðlaunanna. Leikhúsið samastaður unga fólksins Í samtali við Morgunblaðið viðurkennir Ólafur Haukur að hann sakni stundum atsins úr leikhúsinu. „Leikhúsið er og hefur alltaf verið samastaður unga fólksins sem er að finna sig og setja fókus á það sem er í deiglunni í Gríman 2022 Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrf- ing Tyrfingsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar hlaut flest verðlaun þegar Íslensku sviðslistaverðlaunin, Grím- an, voru afhent í 20. sinn við hátíð- lega athöfn í Þjóðleikhúsinu í gær- kvöldi eða sex samtals. Sýningin var m.a. verðlaunuð fyrir leikrit ársins og leikstjórn. 9 líf eftir Ólaf Egil Egilsson í leik- stjórn höfundar var valin sýning árs- ins auk þess sem Halldóra Geir- harðsdóttir var verðlaunuð fyrir leik í aðalhlutverki og sem söngvari árs- ins. Alls skiptu átta sýningar með sér verðlaunum kvöldsins sem voru veitt í 19. flokkum. Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands hlaut Ólafur Haukur Símonarson. Í ávarpi sínu sagði Orri Huginn Ágústsson, forseti Sviðslista- sambands Íslands, uppfærslur vetr- arins hafa spannað breitt svið og nefndi sem dæmi barnaleikhús, dansleikhús, söngleiki, ný verk og klassísk. „Nú þegar við sjáum fyrir endann á heimsfaraldri, sem hefur verið sviðslistafólki landsins þungur, þá gleðjumst við. Það gaman að sjá sköpunarkraftinn fá farveg til að springa út á ný og stórfenglegt að finna áhorfendur byrja að fylla leik- hús landins aftur. Leikhúsið hefur fylgt manninum í þúsundir ára og mun gera um ókomna tíð. Því sviðs- listir eru einstakt listform, fjöl- breyttar og síkvikar. Þær sýna okk- ur lífið frá óvæntu sjónarhorni, sýna okkur heiminn í nýju ljósi, og kannski mikilvægast af öllu þá minna þær okkur á að við erum ekki ein.“ silja@mbl.is 9 líf sýning ársins á Grímunni - Sjö ævintýri um skömm hlaut flest Grímuverðlaun í ár eða samtals sex Sýning ársins 9 líf Leikrit ársins Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson Leikstjóri ársins Stefán Jónsson – Sjö ævintýri um skömm Leikari ársins í aðalhlutverki Hilmir Snær Guðnason – Sjö ævintýri um skömm Leikari ársins í aukahlutverki Vilhjálmur B. Bragason – Skugga Sveinn Leikkona ársins í aðalhlutverki Halldóra Geirharðsdóttir – 9 líf Leikkona ársins í aukahlutverki Margrét Guðmundsdóttir – Ein komst undan Leikmynd ársins Börkur Jónsson – Sjö ævintýri um skömm Búningar ársins Þórunn Elísabet Sveinsdóttir – Sjö ævintýri um skömm Lýsing ársins Halldór Örn Óskarsson – Sjö ævintýri um skömm Tónlist ársins Anna Þorvaldsdóttir – Aiôn Hljóðmynd ársins Salka Valsdóttir og Kristinn Gauti Einarsson – Rómeó og Júlía Söngvari ársins Halldóra Geirharðsdóttir – 9 líf Dansari ársins Shota Inoue – Rómeó <3 Júlía Danshöfundur ársins Erna Ómarsdóttir – Aiôn Dans- og sviðshreyfingar ársins Ernesto Camilo Aldazábal Valdés Rebecca Hidalgo – Rómeó og Júlía Barnasýning ársins Emil í Kattholti Sproti ársins Umbúðalaust Heiðursverðlaun Sviðslista- sambands Íslands 2022 Ólafur Haukur Símonarson Átta sýningar verðlaunaðar HANDHAFAR GRÍMUNNAR, ÍSLENSKU SVIÐSLISTAVERÐLAUNANNA, ÁRIÐ 2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.