Morgunblaðið - 15.06.2022, Side 28
Bubbi Morthens heldur tónleika í Hlégarði í Mosfellsbæ
í kvöld og annað kvöld, 15. og 16. júní, kl. 20. „Sumarið
er tíminn þegar hjartað verður grænt og augun þín
verða himinblá, ó, já. Hlakka til að vera með ykkur í Hlé-
garði Mosfellsbæ,“ er haft eftir Bubba á miðasölu-
vefnum tix.is þar sem miðasala á tónleikana fer fram.
Segist Bubbi ætla að fara um víðan völl í lagasafni sínu,
einn með gítarinn, og hlakka mikið til að fá að vera með
tónleikagestum.
Sumarið er tíminn fyrir tónleika
með Bubba Morthens í Hlégarði
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Garðyrkjustöðin Hveratún, sem í
upphafi var kölluð Lemmingsland,
er elsta stöð sinnar tegundar í Laug-
arási í Bláskógabyggð (hveratun.is).
Grænmetisrækt hófst þar 1940 og
hefur verið í höndum sömu fjöl-
skyldu frá 1946. „Reksturinn hefur
gengið misjafnlega, stundum mjög
vel og stundum ekki nógu vel,“ segir
Magnús Skúlason, garðyrkjufræð-
ingur og eigandi Hveratúns ásamt
eiginkonu sinni, Sigurlaugu Sigur-
mundsdóttur.
Páll Magnús Skúlason, bróðir
Magnúsar, hefur unnið að ritun sögu
Laugaráss undanfarinn áratug og
hefur birt mikinn fróðleik um sög-
una á netinu (laugaras.is) frá 1922,
þegar uppsveitarhrepparnir í kring
keyptu jörðina undir læknissetur.
Ólafur Einarsson héraðslæknir var
fyrsti ábúandinn í Laugarási til að
rækta í gróðurhúsi, byggði lítið hús
þar sem ræktað var grænmeti til
heimabrúks, en dönsk hjón urðu
fyrst til þess að hefja rekstur á
svæðinu, að sögn Páls.
Skrítin kaup
Børge Lemming og Ketty Hilma
Lemming leigðu spildu í Laugarási
1940, reistu þar um 100 fermetra
gróðurhús, bjuggu fyrstu árin í öðr-
um enda þess og nefndu býlið
Lemmingsland. Þar voru þau með
rekstur til 1945, en gáfust þá upp og
fluttu aftur til Danmerkur árið eftir.
Skúli Magnússon, fóstbróðir Sig-
urðar Blöndals skógræktarstjóra, og
Guðný Pálsdóttir tóku lóðina þá á
leigu, keyptu mannvirkin og héldu
áfram garðyrkju á svæðinu. Þá voru
þrjú 100 fermetra gróðurhús á lóð-
inni auk lélegs íbúðarhúss.
„Það voru skrítin kaup,“ segir
Skúli í viðtali, sem birtist í Litla
Bergþóri í desember 2003, en þá
voru 2.000 fermetrar undir gleri í
Hveratúni. „Ég þurfti ekki að borga
krónu, heldur fékk bunka af víxlum,
sem voru svo að falla allan ársins
hring. Það var Steindór Gunnlaugs-
son, bróðir Skúla í Tungu, sem hafði
milligöngu um kaupin og hann skrif-
aði upp á hjá mér. Svo var framlengt
og borgað inn á þar til tókst að borga
upp. Þetta var strembið, þótt 45 þús-
und krónur þætti ekki stór upphæð í
dag. En þetta var árið 1945 og þá var
þetta þó nokkur upphæð.“
Fjölskyldufyrirtækið óx og dafn-
aði, börn þeirra fimm unnu við stöð-
ina, Magnús, yngsta barnið, og
Sigurlaug gerðust meðeigendur
1983 og tóku alfarið við 2004. Þau
rækta nokkrar tegundir af salati og
steinselju og sér Sölufélag
garðyrkjumanna um dreifingu
ferska grænmetisins. „Samkeppnin
er mikil,“ segir Magnús og bætir við
að viðhaldið kosti sitt.
Nýlega birti Páll frásögn á blogg-
síðu sinni um fyrstu heimsókn af-
komenda dönsku hjónanna fyrr-
nefndu til Íslands eftir að hann hafði
uppi á þeim 2017. Lissie Lemming,
ekkja Sørens, sonar hjónanna, kom
til landsins í maí ásamt syni sínum
Allan og Nicolu, eiginkonu hans, og
dótturinni Jettu og Søren, eigin-
manni hennar.
„Við sýndum þeim meðal annars
Hveratún, Skálholt, þar sem Søren
var skírður, og Mosfell, þar sem
Børge og Ketty voru gefin saman í
hjónaband í árslok 1939,“ segir
hann.
Páll hefur viðað að sér miklum
heimildum um sögu Laugaráss.
„Þetta getur verið langt komið en
það getur líka verið komið áleiðis,
allt eftir því hvernig litið er á það.“
Lemmingar í landinu
- Grænmetisrækt fjölskyldunnar í Hveratúni frá 1946
Ljósmyndir/Páll Skúlason
Í Hveratúni Hjónin Magnús Skúlason og Sigurlaug Sigurmundsdóttir.
Í heimsókn Páll í Hveratúni með Lemmingunum: F.v. Jette, Lissie og Allan.
jaxhandverk
SPARAÐU
50.000kr.
ÖRFÁ EINTÖK
-aðeins í júní!
Búbblan
Við fengum nokkrar Búbblur á einstöku
verði til afgreiðslu í júní!
Ekkert eldstæði er jafn vinsælt og fallegt og
Búbblan sem skapar fallega og rómantíska
stemmingu að sumri jafnt sem vetri.
• Sérsmíðuð úr níðsterku stáli með sérstakri
ryðvarnarhúð sem tryggir endingu og
fallega áferð.
• Létt og meðfærileg og getur staðið á hvaða
undirlagi sem er.
Tryggðu þér Búbblu fyrir sumarið á einstöku verði.
Pantaðu strax í dag www.jaxhandverk.is
1. Fyrsta sending – UPPSELD
2. Önnur sending – Örfá eintök eftir
3. Þriðja sending – Byrjun júlí
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 166. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Valur náði í gærkvöldi fjögurra stiga forskoti á toppi
Bestu deildar kvenna í fótbolta með 1:0-útisigri á Sel-
fossi. Anna Rakel Pétursdóttir gerði sigurmark Vals á 20.
mínútu með sínu fyrsta marki á leiktíðinni.
Breiðablik fór upp í annað sætið með 3:0-útisigri á
Þrótti. Hildur Antonsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Breiða-
blik og Alexandra Jóhannsdóttir bætti við þriðja mark-
inu. Valur er með 22 stig og Breiðablik 18. ÍBV er í þriðja
með 17 stig eftir 1:0-sigur á Aftureldingu á útivelli. »22
Valur náði fjögurra stiga forskoti
ÍÞRÓTTIR MENNING