Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 22.07.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.07.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022 Hjelle www.vest.is • Ármúli 17 • Sími: 620 7200 Handgerð norsk hönnunartákn sem standast tímans tönn. „Heilsan er góð, en fylgir aldri. Fyrir nokkrum dögum fékk ég ökuskír- teinið endurnýjað og er ánægður með að geta áfram komist leiðar minnar. Fer þó sjaldnast langt og aldrei nema við góðar aðstæður,“ segir Jens Albert Pétursson, sem verður 100 ára í dag. Jens Albert er frá Suðurey í Fær- eyjum en hefur búið á Íslandi frá árinu 1945. Var lengi sjómaður, varð seinna starfsmaður í prentsmiðju og síðustu starfsárin var hann nætur- vörður á heimili Áss – styrktar- félags. „Ég hef átt gott líf og er sátt- ur. Mér fannst mikilvægt að hafa í nægu að snúast. Þá gaf mér mikið að sinna ýmsum samfélagsverkefnum, svo sem kristilegu starfi og félags- málum Færeyinga á Íslandi,“ segir Jens Albert sem var kvæntur Maríu Pétursdóttur sem einnig var frá Færeyjum. Hún lést árið 2007 en þau Jens höfðu þá verið gift í 56 ár. Þau hjónin eignuðust fjögur börn; dótturina Agnesi og þrjá syni, Odd- geir, Hjalta Sævar og Pétur, sem all- ir búa í Færeyjum. „Ég á góðan pabba,“ segir Agnes sem undirbýr afmæli föður síns. Ættmennum og góðum vinum Jens Alberts hefur í dag verið hóað saman í Færeyska sjómannaheimilinu við Skipholt í Reykjavík – en bygging þess var eitt þeirra félagslegu verk- efna sem Jens Albert hefur sinnt á langri ævi. Langlífi er í ættboga Jens, og má þar nefna að Andrea móðir hans varð 101 árs. Þá verður systir hans, Myrt- hley Helen, 98 ára síðar í sumar, en þau systkinin búa í samliggjandi íbúðum í fjölbýlishúsi eldra fólks við Vitatorg í Reykjavík. Alls voru þessi systkini níu talsins. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Feðgin Agnes og Jens Albert Pétursson, faðir hennar. Hann er frá Færeyjum en hefur búið á Íslandi frá 1945. Hundrað ára í dag með endurnýjað ökuskírteini - Ég hef átt gott líf og er sáttur, segir afmælisbarnið Guðni Einarsson gudni@mbl.is Maður skyldi aldrei þiggja far hjá ökumanni sem er undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa. Þess eru dæmi að farþegar, sem setið hafa í bíl hjá vímuðum ökumanni og slas- ast í umferðarslysi, fái ekki fullar bætur úr ábyrgðartryggingu bílsins. Dæmi um slíkt má sjá í samantekt úrskurða úrskurðarnefndar í vá- tryggingamálum árið 2021. Nefndin úrskurðaði í alls 472 málum það ár. Tveir illa vímaðir í bílveltu Maður sem nefndur er M var far- þegi í bíl sem var ekið á kyrrstæðan bíl í Selvogsgrunni 2019. Ökutækið valt síðan og endaði á hvolfi. Þegar að var komið voru M og ökumaðurinn í annarlegu ástandi og svo illa vímaðir að hvorki var hægt að tilkynna þeim að þeir væru hand- teknir né heldur að þeir hefðu rétt- arstöðu sakborninga. Þeir voru flutt- ir á slysadeild. Á leiðinni þangað kvaðst ökumaðurinn hafa tekið nokkurt magn kókaíns og hafa vakað í nokkra daga. Hann hafði ekki hug- mynd um hvar þeir voru staddir þeg- ar slysið varð. Mörg lyf mældust í blóði beggja, meðal annars lyf sem ekki eru leyfð hér á landi. Ekkert áfengismagn mældist í þeim. Ökumaðurinn taldist hafa verið óhæfur til að aka bílnum örugglega. M krafðist bóta úr ábyrgðartrygg- ingu bílsins. Tryggingafélagið féllst á bótaskyldu en taldi að skerða bæri bæturnar um 2⁄3 þar eð farþeginn hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að þiggja far með ökumanni sem var undir áhrifum ávana- og fíkni- efna. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn ætti rétt á bótum að 1⁄3 hluta. Slys á leið úr samkvæmi Ökumaður var á leið úr samkvæmi í Breiðholti og voru tveir farþegar í bílnum. Bíllinn rann á kant við göt- una og þaðan á ljósastaur. Tryggingafélagið lét annan far- þegann vita að bótaréttur hans úr ábyrgðartryggingu bílsins yrði skertur, því ökumaðurinn var ölvað- ur. Farþeginn hefði sýnt stórkost- legt gáleysi með því að þiggja farið. Farþeginn mótmælti þessu, enda þyrfti að sýna fram á að honum hefði verið ljóst að ökumaðurinn hefði ver- ið ölvaður. Farþeginn kvaðst alfarið vera á móti ölvunarakstri og öku- maðurinn ekki upplýst farþegana um ölvunarástand sitt. Samkvæmt lögregluskýrslu var ökumaðurinn ölvaður og einnig undir áhrifum fíkniefna og óhæfur til að aka. Talið var að farþeganum hefði ekki átt að dyljast ástand ökumanns- ins. Farþeginn hefði því sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að þiggja farið og þannig verið meðvaldur að tjóni sínu. Bætur farþegans úr ábyrgðartryggingu bílsins voru því skertar um 2⁄3 . Bætur skertar vegna gáleysis - Farþegar sem þáðu far með ökumönnum í vímu og lentu í slysum, fengu ekki fullar bætur úr trygg- ingum bílanna - Það þykir bera vott um stórkostlegt gáleysi að sitja í bíl með vímuðum ökumanni Morgunblaðið/Júlíus Eftirlit Lögreglan fylgist með ástandi ökumanna og hvort þeir eru allsgáðir. Vímaðir ökumenn skapa hættu. Þremur af fimm starfsmönnum upplýsingadeildar sveitarfélagsins Árborgar hefur verið sagt upp. Deildin verður lögð niður en þeir tveir sem halda starfi sínu munu sjá um stafrænar lausnir Árborgar. „Á fundi bæjarráðs 14. júní var ákveðið að ráðast í skipulagsbreyt- ingu á upplýsingatæknideild sveit- arfélagsins,“ segir í skriflegu svari Berglindar Harðardóttur, mann- auðsráðgjafa hjá Árborg, við fyrir- spurn blaðamanns um uppsagn- irnar. Boðið út „Ákveðið var að leggja upplýs- ingatæknideild niður og bjóða út þann hluta deildarinnar sem snýr að rekstri tölvukerfa og þjónustu við þau. Í þessu fólst að þremur starfsmönnum af fimm var sagt upp, eða þeim sem störfuðu við rekstur og þjónustu við tölvukerfi sveitarfélagsins. Eftir stendur þá deild stafrænnar þjónustu, en sú deild mun sjá um að innleiða stafrænar lausnir fyrir rekstur sveitarfélagsins, hafa um- sjón með vef og auk þess hafa eft- irlit með rekstrarsamningi á tölvu- kerfum og hýsingu á þeim.“ Upplýsingatæknideild lögð niður Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfoss Skipulagsbreytingar eru fram- undan í rekstri sveitarfélagsins Árborgar. Akstur undir áhrifum áfengis, lyfja eða annarra vímugjafa, er algengasta ástæða þess að trygg- ingafélögin gera endur- kröfur á hendur tjón- völdum í umferðinni. Helgi Jóhannesson, hrl. og formaður endurkröfunefndar bifreiðatrygginga, segir að mál- um, sem tengjast akstri undir áhrifum annarra vímugjafa en áfengis, t.d. lyfja eða fíkniefna, hafi fjölgað undanfarin ár. Á ár- um áður var algengast að vím- aðir ökumenn væru undir áhrif- um áfengis undir stýri. Vátryggingafélögin vísa mál- um til endurkröfunefndarinnar þegar tjónvaldur hefur ekið und- ir áhrifum eða sýnt stórfellt gá- leysi. Tryggingafélagið greiðir þeim bætur sem verður fyrir tjóninu en getur gert endurkröfu á hendur þeim sem ók undir áhrifum eða mjög ógætilega. Krafðir um greiðslu VÍMAÐIR ÖKUMENN Helgi Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.