Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
Kópavogur – Smiðjuvegur 76
Akureyri – Baldursnes 6a
Selfoss – Austurvegur 69
414 1000
414 1050
414 1040
BAÐAÐU ÞIG
Í GÆÐUNUM
Páll Vilhjálmsson skrifar at-
hyglisverðan pistil um lofts-
lagstrúna. Þar hefur hann eftir
Trausta Jónssyni:
„Fyrstu 15 dagar
júlímánaðar hafa
verið í kaldara lagi
í Reykjavík. Meðal-
hiti þeirra er 10,4
stig, -0,8 stigum
neðan meðallags
sömu daga 1991 til
2020 og 0,7 stigum neðan með-
allags síðustu tíu ára. Hitinn rað-
ast í 19. hlýjasta sæti (af 22 á öld-
inni)“ Veðrið er breytilegt á milli
landssvæða og tíma.
- - -
Páll bendir á orð Magnúsar
Jónssonar veðurfræðings að
„loftslagsváin er ýkjusaga, hlýn-
un sem líklega er orðin um 1°C á
síðustu 150 árum, þar sem lang-
tímameðalhiti jarðarinnar hefur
hækkað um 0,1°C á hverjum 15
árum að jafnaði.“ Þá er vitnað til
Johns Christys, vísindamanns um
loftslag, sem gaf „Láru á Ref-
skinnu færi á spjalli um veður.
Christy heldur gagnabanka í
samvinnu við félaga sinn, Roy
Spencer, um hitafar lofthjúpsins
annars vegar og hins vegar spá-
dóma hamfarasinna. Í áratugi
hafa spádómar um hamfarahlýn-
un reynst rangir.
- - -
En svo koma nokkrir heitir
dagar og fullyrðingar um
sameiginlegt sjálfsmorð mann-
kyns streyma frá fólki sem á að
heita með fullu viti, eins og Ant-
ónio Guterres, aðalritara Samein-
uðu þjóðanna. S.Þ. handvöldu vís-
indamenn sem trúa á manngert
veður fyrir meira en 30 árum.
Ástæðan var pólitísk, ekki vís-
indaleg. SÞ vantaði hlutverk á al-
þjóðavísu.
- - -
Hamfaraspámennskan er stór-
iðnaður sem freistar þess að
valta yfir þau sannindi að náttúr-
an en ekki maðurinn stjórnar
veðrinu.“
Páll Vilhjálmsson
Álfavísindi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Alþjóðlega fótboltamótið Rey Cup
hélt göngu sinni áfram í Laugar-
dalnum í gær en keppnin hófst á mið-
vikudaginn og lýkur á sunnudaginn.
Um hundrað lið og 1.400 leikmenn í 4.
og 3. flokki etja þar kappi.
Gunnhildur Ásmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Rey Cup, segir mótið
hafa gengið afar vel framan af. Þegar
blaðamaður náði tali af henni í gær
var hún viðstödd sundlaugarpartí
sem haldið er árlega í Laugardalslaug
fyrir mótsgesti.
Hún segir augljóst að við Íslend-
ingar eigum mikið af ungu og efnilegu
knattspyrnufólki sem gaman hafi ver-
ið að fylgjast með spila.
Á sunnudaginn fara úrslitaleikir A-
liða fram á Laugardalsvellinum, þar
sem þeir verða sýndir í beinu streymi.
Etja kappi í
Laugardalnum
Morgunblaðið/Hákon
Rey Cup Ungar knattspyrnukonur í Þór og Selfossi berjast um knöttinn.
Samkeppniseftirlitið sendi í gær
bréf til helstu hagaðila, er tengjast
sölu Símans á Mílu til Ardian France
SA, þar sem reifað er frummat þess
um áhrif af sölunni. Þá er jafnframt
óskað eftir sjónarmiðum um fram-
komin sjónarmið viðsemjenda og til-
lögur Ardian í tilefni af sáttavið-
ræðum, að því er fram kemur í til-
kynningu SKE.
Fyrr í mánuðinum gaf SKE út
andmælaskjal þar sem sett er fram
ítarlegt frummat um samkeppnisleg
áhrif af sölu Símans á Mílu. Var þar
m.a. kveðið á um að samruni Mílu og
Ardian raski samkeppni og samrun-
inn verði því, samkvæmt frumniður-
stöðunni, ekki samþykktur af Sam-
keppniseftirlitinu án skilyrða og/eða
með frekari útskýringum af hálfu
fyrirtækjanna.
Þann 15. júlí sendu Ardian og
Síminn SKE ítarleg sjónarmið þar
sem frummatinu var mótmælt og
rök færð fyrir því að breyta þyrfti
frummati við endanlegt mat á áhrif-
um samrunans.
„Þegar samrunaaðilar leggja fram
tillögur að breytingum eða skil-
yrðum í tilefni af frummati sam-
keppnisyfirvalda er að jafnaði fram-
kvæmt svokallað markaðspróf (e.
market test) á viðkomandi tillögum.
Í markaðsprófi felst meðal annars að
hagaðilum eru kynntar viðkomandi
tillögur og óskað sjónarmiða þeirra.
Með vísan til þessa hefur Sam-
keppniseftirlitið í dag sent helstu
hagaðilum bréf, þar sem reifað er
frummat Samkeppniseftirlitsins og
óskað sjónarmiða um framkomin
sjónarmið samningsaðila og tillögur
Ardian í tilefni af sáttaviðræðum,“
segir í tilkynningunni.
Þá segist SKE jafnframt telja
mikilvægt að gefa öllum kost á að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi og er óskað eftir þeim fyrir lok
dags 28. júlí.
SKE gefur kost á
öðrum sjónarmiðum
- Síminn og Ardian
hafa mótmælt
frummati SKE
Morgunblaðið/Eggert
Míla SKE hefur til rannsóknar kaup
fjárfestingarsjóðsins Ardian á Mílu.