Morgunblaðið - 22.07.2022, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.10-14
Morgan
frá
í nýjum lit
Haldari með lokuðu
sniði og mjög góðum
stuðning, breiður yfir
bak og breiðir hlýrar.
DD-K skálar
10.950 kr.
30 ÁRA Knútur er
fæddur og uppalinn í
Hafnarfirði. Hann
flutti tímabundið í
miðbæinn í Reykja-
vík en flutti svo aftur
í Hafnarfjörðinn þar
sem hann býr í dag.
Hann hefur starfað
við eldamennsku frá
unga aldri og lærði
meðal annars
franska matargerð á
Hótel Holti áður en
hann stofnaði, ásamt
Markúsi Inga Guðna-
syni og Karli Óskari
Smárasyni, veitinga-
staðinn Le Kock sem
er í Tryggvagötu 14. Le Kock býður upp á fjölbreytta rétti og mikið úrval
drykkja en matseðillinn er síbreytilegur. „Í grunninn er þetta fremur líkt
veitingastaðnum Chili’s í Bandaríkjunum að því leytinu að við erum svolítið í
öllu. Við reynum að staldra ekki of lengi við einstaka rétti og endurnýjum
matseðilinn mjög reglulega. Ég held að við séum með um 30-50 tegundir af
bjór, bæði innlendum og erlendum, og erum einnig með mikið úrval af
óáfengu. Þá erum við með þrjár tilraunadælur af bjórum sem við róterum
mikið.“ Le Kock var að setja nýjan matseðil í gang á dögunum, sem inniheld-
ur m.a. fimm veganrétti. Knútur er í fæðingarorlofi um þessar mundir og
ætlar að verja afmælisdeginum með fjölskyldunni.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Knúts er Theódóra Ingibergsdóttir, f. 25.7. 1993,
leikskólaliði. Þau eiga þrjú börn: Klöru, f. 29.3. 2016, Kiljan, f. 30.11. 2018, og
Valberg Knútsson, f. 7.6. 2022. Systkini Knúts eru: 1) Hrólfur Hreiðarsson, f.
17.1. 1979, smiður, 2) María Krista Hreiðarsdóttir, f. 31.12. 1973, grafískur
hönnuður, 3) Katla Hreiðarsdótir, f. 22.3. 1984, fatahönnuður, innanhúss-
arkitekt og eigandi Volcano Design og Systur&Makar. Foreldrar Knúts eru:
Hreiðar Sigurjónsson, f. 30.12. 1951, húsasmiður, og Fríða Ragnarsdóttir, f.
3.7. 1951, kennari.
Knútur Hreiðarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú sérð framtíðina frá nýrri hlið
sem þú hefur aldrei séð áður. Mundu samt
að ekkert fær staðist til eilífðar.
20. apríl - 20. maí +
Naut Flestir bregðast við sínum eigin
heimi, í stað þess að búa hann til. Hugaðu
að öllum smáatriðum, þar sem það kann
að vera afdrifaríkt ef þér yfirsést eitthvað.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er fyrir öllu að þú haldir jafn-
aðargeði og látir hvorki menn né atburði
slá þig út af laginu. Einn dagur úti í nátt-
úrunni gæti verið nóg til að byggja þig upp.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þér finnst að þér sótt úr mörgum
áttum því allir vilja ná athygli þinni. Það
væri ekki úr vegi að hnýta lausa enda í
tengslum við hið opinbera.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ef það sem þú vilt er hræðilega
ópraktískt, hvað þá á viðráðanlegu verði,
felst lausnin ekki í því að gefast upp. Gefðu
þér góðan tíma til að kanna kostina og velja
þann sem þér er fyrir bestu.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Settu þig í samband við systkini þín
eða aðra ættingja og segðu þeim hve miklu
máli þau skipta þig. Kynntu þér reglur lag-
anna og hvort allt er eins og það á að vera.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú elskar manneskju sem þú hefur
dregið upp í huganum – en hin raunveru-
lega manneskja stendur beint fyrir framan
þig. Opnaðu augun.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Dagurinn hentar vel til að
ræða við yfirmann þinn. Reyndu að eyða
tíma úti í náttúrunni eða lestu bók.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú þarft að berjast fyrir sjálf-
stæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni.
Reyndu líka að taka til hendinni heima fyrir
sem best þú getur.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er eitt og annað að gerast í
kringum þig sem þér finnst þú ekki hafa
puttana á. Veittu öðrum aðstoð, ef þú vilt,
og þú munt bara hafa gaman af tiltækinu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Ýmis tækifæri bíða þín handan
við hornið. Taktu eitt fyrir í einu og mundu
svo að lofa ekki upp í ermina á þér í fram-
tíðinni.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er rangt að láta eigið skap
bitna á öðrum. Mundu bara að það eru
fleiri en þú sem leggja hönd á plóginn.
J
ón Axelsson fæddist í
Reykjavík 22. júlí 1972.
Hann bjó á Laugarvatni
til sex ára aldurs en hefur
búið í Keflavík síðan og er
að stórum hluta ættaður þaðan. Jón
gekk í Verzlunarskóla Íslands og
síðar í Samvinnuháskólann á Bifröst
þaðan sem hann útskrifaðist með
BS-gráðu í rekstrarfræði 1997. Eft-
ir útskrift starfaði hann eitt ár hjá
Bláa Lóninu en síðar í rúman ára-
tug í Sparisjóðnum í Keflavík. Jón
hefur frá árinu 2009 starfað með
fjölskyldu sinni í Skólamat ehf. og
er þar framkvæmdastjóri. Axel
Jónsson, veitingamaður og faðir
Jóns, stofnaði fyrirtækið fyrir rúm-
um tuttugu árum og hefur það vaxið
jafnt og þétt síðan og hefur starf-
semin m.a. tvöfaldast frá árinu
2017. Skólamatur er fyrst og fremst
þjónustufyrirtæki sem þjónustar
leik- og grunnskóla með veitingar. Í
flestum leikskólum er boðið er upp
á morgunmat, hádegismat og síð-
degishressingu og með öllum mál-
tíðum er boðið upp á ferskt græn-
meti og úrval ávaxta í meðlætisbar.
Í grunnskólum er sums staðar
hafragrautur í boði en annars stað-
ar eingöngu hádegismatur og enn
annars staðar er síðdegisnesti fyrir
frístundaskóla en það er mismun-
andi hvernig samningum er háttað á
milli skóla.
Á hverjum degi er einn aðalréttur
í boði ásamt vegan-hliðarrétti fyrir
grænkera og aðra sem kjósa að
gæða sér á honum og er það í sam-
ræmi við aukna fjölbreytni í matar-
æði nemenda undanfarin ár með til-
komu ólíkra menningarhópa,
lífsstílsskoðana og fleira.
„Þess vegna erum við með þessa
tvo rétti. Veganrétturinn leysir ým-
islegt en við erum líka með sérfæði
fyrir nemendur af ólíkum trúar- og
lífsstílsskoðunum, nemendur með
ofnæmi, óþol og þess háttar.“
Velta Skólamatar var tæplega 1,4
milljarðar árið 2020 en tekjuaukn-
ingu síðustu misseri rekur Jón til
afleysinga, tímabundinnar þjónustu
til aðila sem þurfa að manna eldhús
tímabundið, annaðhvort vegna veik-
inda eða forfalla starfsfólks, eða
vandamála með eldhús eða húsnæði.
Eins og hjá flestum þjónustufyrir-
tækjum setti Covid-faraldurinn
ákveðið strik í reikninginn og er
Skólamatur í því að búa sig undir
breytingar.
„Síðasta vetur voru talsverð veik-
indi meðal starfsfólks en starfsemin
í grunnskólum var að mestu leyti
komin í eðlilegt form. Fram undan
er óvissa með hvernig skólastarfi
verður háttað og erum við að búa
okkur undir það. Við verðum að
vera undirbúin með aukabúnað til
þess að geta breytt afgreiðslu, bætt
við afgreiðsluborðum og þess háttar
til að geta haft fleiri starfsstöðvar
innan hvers skóla ef ske kynni að
þurfi að hólfa niður.“
Starfsemi fyrirtækisins er á suð-
vesturhorninu, Suðurnesjum, Hafn-
arfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og í
Reykjavík og hófust nýverið fram-
kvæmdir á nýju húsnæði Skólamat-
ar í Reykjanesbæ.
Jón er kominn af miklu mat-
reiðslu- og veitingafólki en hefur
ekki verið mikið í eldamennskunni
sjálfur. „Ég er nefnilega ekki með
kokkagenin í mér þó svo að það séu
margir matreiðslumenn, bakarar og
veitingamenn í minni ætt. Afi minn
var með matvöruverslun og langafi
minn föðurmegin var bakari í Hafn-
arfirði. Svo er Jón Örn Stefánsson,
frændi minn, með Kjötkompaní en
ég og systir mín sem rekum fyrir-
Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar – 50 ára
Fjölskyldufyrirtæki í grunninn
Fjölskyldufyrirtæki Skólamatur er frumkvöðla- og fjölskyldufyrirtæki sem
hefur verið starfrækt í meira en tvo áratugi. Jón Axelsson er hér ásamt
systur sinni Fanný og föður þeirra Axel Jónssyni, stofnanda fyrirtækisins.
Með börnum og barnabarni Hjónin Jón Axelsson og Júlía Jónsdóttir eiga
saman þrjú börn, Ívar, Jón og Hildi. Fyrir á Júlía Davíð Þór Elvarsson sem á
dótturina Kolbrúnu Júlíu. Sonur Jóns úr fyrra sambandi er Axel Jónsson.
Við stjórnvölinn Jón Axelsson hef-
ur verið framkvæmdastjóri Skóla-
matar ehf. frá árinu 2009.
Til hamingju með daginn