Morgunblaðið - 16.07.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 16.07.2022, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! M.BENZ EQC 400 POWER 4MATIC 2021 Nýskráður 04/2021 ekinn 17 Þ.KM, 100% rafmagn (437 km drægni), sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Hlaðinn aukabúnaði s.s. AMG-line bæði innan og utan. 21“ AMG álfelgur og dekk, sjónlínuskjár, skynvæddur hraðastillir, 360° myndavél. BURMESTER hljómkerfi, dráttarkrókur, stigbretti ofl. Raðnúmer 254430 0.000 M.BENZ EQB 300 POWER 4MATIC - 2022 Nýskráður 12/2021 ekinn 3þkm, 100% rafmagn með 423 km drægni, 360° Bakkmyndavél, glerþak - 19“ álfelgur og dekk. Alveg hlaðinn búnaði og til afhendingar strax! Raðnúmer 254157 0.000 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Eigum laus sölustæði fyrir bílinn þinn! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson M.BENZ EQA 250 POWER AMG Nýskráður 08/2021, ekinn aðeins 8 Þ.km, 19“ álfelgur og dekk, dráttar- krókur, Night pack (Næturpakki), AMG line innan og utan o.fl. Raðnúmer 254155 0.000 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is G ott og greiðfært. Nú um miðjan júlí er hlemmifæri á flestum hálendisvegum landsins og fólk því mikið á ferðinni. Mikil umferð var á suður- öræfum landsins í fyrradag og á veg- um þar sáust rútur sem jeppar og svo ýmsir á mótor- og reiðhjólum. Á fal- legum degi voru Landmannalaugar heitur reitur og mörg hundruð manna þar á svæðinu. Sumir voru á leiðinni í eða úr fjallgöngu en aðrir svömluðu í heitri lauginni undir hraunbrún. Á planinu við ferðaskál- ana var svo fólk að binda á sig göngu- skóna og stefndi á Laugaveginn sem liggur suður í Þórsmörk. Um tvær leiðir að velja Á leið í Landmannalaugar er um tvennt að velja. Fyrri kosturinn er að fara Dómadalsleiðina, sem ekið er inn á efst í Landsveit. Sá vegur er dúnmjúkur og þægilegur – og lækir sem aka þarf yfir eru engin fyrir- staða. Hinn möguleikinni í stöðunni er að aka frá Sigölduvirkjun og fara svo suður á bóginn 30 kílómetra leið um hraun og grýttan veg. Ef sprengja á dekk er alveg til- valið að fara úr Sigöldu, var sagt við blaðamann af alvönum ferðagarpi sem glotti við. Sá veit sem er – eins og flestir – að á fjöllum má búast við flestu og allur er varinn góður. Þá kemur sér vel að björgunarsveitirnar og þeirra þrautreyndi mannskapur er til taks á Hálendisvaktinni víða um landið. Fimmtán manna hópur Síðustu vikuna hefur fólk úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík, undir forystu Birgis Péturssonar, verið í Landmannalaugum. Alls eru 15-18 manns í vöskum hópi hans, gjarnan ungt fólk sem komið hefur inn í björgunarsveitastarfið á síðustu árum og er að safna sér reynslu. Verkefnin síðustu daga hafa verið mörg og fjölbreytt. Liðsinnt hefur verið fólk sem meitt hefur sig minni háttar í fjallasprangi; fengið skrámur eða snúið hæl. Ef verra verður er kallað eftir öflugra sjúkraliði úr byggð. Þegar blaðamaður var í Laugum á fimmtudaginn gripu björgunarsveitamenn einnig í um- ferðarstjórn, þar sem biluð rúta var á vegkanti og þess beðið að draga mætti burt. Á meðan þurfti að þræða fram hjá bílnum eftir þröngum kanti. Einnig hefur þurft að draga bíla upp úr ám og lækjum. Alltaf er nokkuð um að ökumenn, þá gjarnan útlend- ingar, misreikni aðstæður og aki á of mikilli ferð út í ár og læki svo vatn flæðir inn í vélar bílanna, sem þá drepa á sér og jafnvel skemmast. Björgunarfólk kemur ökutækjunum þá á þurrt, en eigendurnir sjá svo um framhaldið. Þá þurfti ýmsu að sinni í síðustu viku þegar lægð með roki og rigningu gekk yfir landið, svo fólk á ferð að Fjallabaki kallaði eftir björg- un. Vinsælt verkefni Karen Ósk Lárusdóttir sinnir aðgerðamálum hjá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg og er þessa dagana í fjölmiðlaþjónustu félagsins. Hún seg- ir Hálendisvaktina vera vinsælt verk- efni meðal björgunarsveitafólks. Fyrir sveitirnar sé þessu líka kær- komið að sinna. Á fjöllum fái fólk fína reynslu, gjarnan við fremur auðleyst verkefni, sem komi sér svo vel þegar áskoranirnar eru stærri og meiri. Einnig sé samvera fólks í heila viku góð félagsleg þjálfun. Í dag er Laugavegshlaupið svo- nefnda, en nú í morgunsárið tekur fólk á rás og skokkar suður í Þórs- mörk þangað sem eru 55 kílómetrar. Vegna þess þurfa björgunarsveitir að vera til halds og trausts. Eru raunar mikilvægur hlekkur í öllu sem þarf í sambandi við þennan íþróttaviðburð – sem nýtur mikilla vinsælda. Vaktin staðin í Landmannalaugum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hálend Fólk úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík sem verið hefur í Landmannalaugum síðustu daga. Frá vinstri Björn Lúkas Haraldsson, Hulda Margrét Hauksdóttir, Davíð Sigursveinn Harðarson, Jökull Alfreð Árnason, Birgir Pétursson og Þórarinn Kristján Ragnarsson. Úthaldi þeirra lýkur á morgun. Gleði Hundruð ferðamanna eru í Landmannalaugum á fallegum sumardögum, enda er staðurinn einstakur. Slark Ekið yfir Námukvísl við Laugar. Að kynnast að- stæðum og fara yfir á brotinu eru mikilvæg atriði. Fallegir sumardagar og fjöllin freista. Líflegt í Laugum þar sem björg- unarsveitir eru til taks, komist túristar í vanda. Lífi og starfi tónlistarmannsins David Bowie verða með ýmsu móti gerð skil á Akranesi nú um helgina. Þess er skemmst að minnast að fyrir fimm árum máluðu Björn Lúðvíksson myndlistarmaður og Halldór R. Lár- usson grafískur hönnuður myndir á vegg við Kirkjubraut á Akranesi til heiðurs listamanninum, sem þeir héldu mikið upp á. Nú er haldið áfram og afmæli veggmyndarinnar minnst með hátíð í tilefni af því að Bowie hefði orðið 75 ára á þessu ári. Í dag er efnt til sýningar í gamla Landsbanka- húsinu við Akratorg þar sem unn- endur Bowie sýna ýmsa muni er hon- um tengjast. Einnig verður hægt að kaupa muni sem tengjast Bowie; svo sem boli, blýanta, póstkort, plaköt og blýanta. Þá kemur út í fyrsta sinn á Íslandi tímaritið Bowie Fanzine. Sýn- ingin í dag er opin frá hádegi fram til kl. 17 og á morgun á sama tíma frá hádegi en lokað klukkustund fyrr. Í kvöld heldur svo hljómsveitin Lizt tónleika í Hafbjargarhúsinu á Breið með lögum David Bowie. Sveitina skipa Róbert Marshall, Þór Freysson, Hersir Sigurgeirsson, Gunz A La Tomma og Kristinn Gallagher. Hljóm- sveitin flytur á þriðja tug laga sem spanna feril David Bowie. Miðaverð á tónleikana: 3.500 kr. Lizt hefur hald- ið Bowie-tónleika víðs vegar um land undanfarin misseri við góðar undir- tektir. List Litríkur veggur Bowie við Kirkjubraut og Björn Thoroddsen með gítarinn. Bowie er bestur á Skaganum Tónlist, sýning og málaður veggur á Akranesi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.