Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 30
30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA 30 ÁRA Gréta fæddist í Reykjavík og er Vesturbæingur en ólst að hluta til upp í Danmörku. Hún útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Listahá- skóla Íslands og er um þessar mundir í meistaranámi í Tallinn í Eistlandi. Gréta hefur einnig áhuga á kraftyft- ingum auk grafískri hönnun. Hún er hönnuður listahátíðarinnar LungA sem fram fer næsta sumar og verður því í vinnunni á afmælisdaginn. FJÖLSKYLDA Foreldrar Grétu eru Þorkell Atlason, f. 1964, tónlistar- maður og -kennari, og Guðrún Ólafs- dóttir, f. 1964, forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail. Systkini Grétu eru Elísabet Thoroddsen, f. 1981, testari, listakona og félagi í hljómsveitinni Ukulellur, Diljá Þorkelsdóttir, f. 1991, forritari hjá Advania, og Steinn Þor- kelsson, f. 1999, ljósmyndari og nemi í forritun við Tækniskólann. Gréta Þorkelsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú þarft að taka þér tak og freista þess að gera sjálfan þig að betri manni. Taktu þér tíma til þess að fara í gegnum málin og finna lausn á þeim. 20. apríl - 20. maí + Naut Þótt þér líði frábærlega skaltu ekki upplýsa aðra um hvað veldur því. Gefðu þér nægan tíma til að undirbúa hlutina. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þig langar til að brjótast út úr viðjum vanans. Hugsaðu málið og dragðu lærdóm af því sem réttmætt er. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér finnst einhverjir vera að seilast inn á valdsvið þitt. Taktu eftir, fólk í kring- um þig gerir hluti sem það myndi ekki gera ef þú værir ekki til staðar. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Bogmaðurinn þarf að fást við skrif- finnsku á næstunni í tengslum við trygg- ingamál, skuldir og sameiginlegar eignir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þótt þú sért skipulagður sjálfur get- urðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Geta þín til þess að kafa undir yfirborðið og komast að sannleikanum er einstök. 23. sept. - 22. okt. k Vog Notaðu nú nýjan mánuð til þess að fara vandlega yfir fjármáin. Gefðu þér tíma til að gaumgæfa allar hliðar. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú getur lært heilmargt um sjálfa/n þig af samræðum þínum við aðra í dag. Taktu þeim með jafnaðargeði og íhug- aðu hvort þau gagnast þér eða ekki. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú ættir að setjast niður og at- huga hvort þú getur ekki fært eitthvað til betri vegar. Nýttu þér það til að skilja hvað er að gerast í ástalífinu. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert að reyna fyrir þér í nýjum vinahópum. Margir möguleikar standa þér opnir í þessum efnum. Brjóttu upp gráma hversdagsins og settu lit á dag þinna nán- ustu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þrátt fyrir miklar annir er nauð- synlegt að gefa sér líka tíma til að njóta þess sem aðventan hefur upp á að bjóða. Sama gildir um flotta hluti, áhugaverða og heillandi. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þótt þú hljótir ekki verðlaunin, mun það gefa þér margt í aðra hönd að hafa átt hlut að máli. Til að endurheimta kraftana skaltu njóta einveru og rólegheita í dag. aldri verið uppnuminn af kvik- myndagerð. „Ég er í rauninni alæta á allt sem flokkast undir jaðarbíó. It Hatched er ekki hefðbundin hrollvekja en hún snertir á mörgum flötum. Hún er jafnframt óður til B-mynda og evr- ara í myndinni eru þau Gunnar Kristinsson, Vivian Ólafsdóttir, Björn Jörundur, Þór Tulinius og Halldóra Geirharðsdóttir. Elvar leik- stýrði, skrifaði handritið, samdi tón- listina og er kvikmyndatökumaður að myndinni. Hann hefur frá unga E lvar Gunnarsson fædd- ist 16. júlí 1982 í Reykjavík og bjó lengst af í Árbæ. Hann gekk í Selásskóla og síðar í Árbæjarskóla og stundaði svo framhaldsnám við Menntaskólann í Sund og Iðnskólann í Reykjavík. Elvar gekk þá í Kvikmyndaskóla Ís- lands og lauk skólagöngu sinni þar árið 2005. Hann hefur að mestu leyti starfað sem sjálfstætt starfandi kvikmynda- gerðarmaður og hefur leikstýrt fjölda stuttmynda og tónlistarmynd- banda fyrir innlenda og erlenda lista- menn. Ber þar helst að nefna mynd- bandið Dancin’ með Aaron Smith og No Prejudice með Pollapönki. Elvar rak á tímabili Aðalvídeóleiguna á Klapparstíg og kenndi sömuleiðis við Kvikmyndaskóla Íslands ásamt því að gegna þar hlutverki deildarstjóra. Hóf hann störf við skólann árið 2006 og var fastráðinn til ársins 2009 en hefur síðan starfað þar sem stunda- kennari. „Síðastliðin ár hafa verið tileinkuð kvikmynd minni It Hatched sem hef- ur verið að ferðast á milli kvik- myndahátíða síðustu misseri en verður frumsýnd vestanhafs, í Bandaríkjunum, 6. september. Myndin er framleidd án aðkomu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og hefur verið lærdómsríkt ferli að koma mynd í almenna dreifingu á stórum markaði með metnað í hjarta og vasa fulla af grjóti.“ It Hatched fjallar um þau Pétur og Mira sem flytja frá erilsamri stórborg í Banda- ríkjunum á afskekktan stað á Vest- fjörðum í leit að friði og ró. Áform þeirra raskast þó þegar forn vættur gerir vart við sig undir kjallara húss- ins og Mira verpir eggi. Á meðal leik- ópskrar kvikmyndagerðar. Leik- stjórarnir Federico Fellini, Luis Bunuel og Alfred Hitchcock eru sér- staklega í uppáhaldi hjá mér en ég þekki fátt annað en kvikmyndir og tónlistargerð.“ Elvar hefur einnig fengist við tón- list um árabil. Hann er liðsmaður í hljómsveitinni Afkvæmi guðanna og fyrrum liðsmaður hljómsveitarinnar XXX Rottweiler. Báðar hljómsveit- irnar voru mjög áberandi í íslensku rappsenunni þegar hún tók stökk um aldamótin síðustu og var platan Ævi- sögur sem Afkvæmi guðanna gaf út árið 2002 tilnefnd til íslensku tónlist- arverðlaunanna 2003. Afkvæmi guð- anna rauf 18 ára þögn fyrir tveimur árum og gaf út plötuna Arnarbakka árið 2020 sem innihélt átta lög. Elvar og Kristján Þór Matthíasson, betur þekktur undir listamannsnafninu Stjániheitirmisskilinn, eru liðsmenn í hljómsveitinni sem gaf nýverið út lagið Engan asa þar sem Ágúst Bent úr XXX Rottweiler-hundum er gestarappari. Ný plata er væntanleg Elvar, leikstjóri, handritshöfundur og tónlistarmaður – 40 ára Við tökur Elvar þekkir fátt annað en kvikmyndir og tónlistargerð og hefur lengi starfað við hvort tveggja. Fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd, It Hatc- hed, verður frumsýnd vestanhafs í Bandaríkjunum þann 6. september. Alæta á allt sem flokkast undir jaðarbíó Afkvæmi guðanna Elvar er liðsmaður í hljómsveitinni Af- kvæmi guðanna, ásamt Kristjáni Þór Matthíassyni, Stjáni- heitirsmisskilinn. Ný plata er væntanleg frá þeim f́élögum. Í fríi Elvar og sambýliskona hans, Unnur Edda Garðarsdóttir, aðjunkt við Háskóla Íslands. Mynd- in er tekin í fornu borginni Pompeii á Ítalíu. Til hamingju með daginn Ósk Matthíasdóttir fæddist í Reykja- vík þann 14. desember 2021. Hún vó 2.848 g og var 48 cm að lengd. For- eldrar hennar eru Matthías Hálfdán- arson og Brynja Guðmundsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.