Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022
EM U20 karla
B-deild í Georgíu, A-riðill:
Eistland – Ísland .................................. 85:83
Lúxemborg – Holland.......................... 42:92
_ Ísland mætir Hollandi í dag og Rúmeníu
á morgun.
EM U20 kvenna
B-deild í N-Makedóníu, 9.-18. sæti:
Ísland – Króatía.................................... 79:45
Rúmenía – Slóvakía.............................. 50:53
_ Ísland 6, Rúmenía 4, Króatía 2, Kósóvó 2,
Slóvakía 2. Ísland mætir Rúmeníu í dag.
57+36!)49,
A-RIÐILL:
Austurríki – Noregur............................... 1:0
Norður-Írland – England........................ 0:5
Lokastaðan:
England 3 3 0 0 14:0 9
Austurríki 3 2 0 1 3:1 6
Noregur 3 1 0 2 4:10 3
Norður-Írland 3 0 0 3 1:11 0
_ England mætir Danmörku eða Spáni í
Brighton 20. júlí.
_ Austurríki mætir Þýskalandi á Brent-
ford-vellinum í London 21. júlí.
Leikir í dag:
B: Danmörk – Spánn................................. 19
B: Finnland – Þýskaland .......................... 19
Leikir á morgun:
C: Svíþjóð – Portúgal ................................ 16
C: Sviss – Holland ..................................... 16
Markahæstar:
Beth Mead, Englandi.................................. 5
Grace Geyoro, Frakklandi.......................... 3
Alessia Russo, Englandi ............................. 3
Alexandra Popp, Þýskalandi ...................... 2
Ellen White, Englandi ................................ 2
EM KVENNA 2022
Lengjudeild karla
Þór – Fjölnir ............................................. 1:4
Staðan:
Fylkir 12 7 3 2 34:13 24
Grótta 12 7 1 4 27:15 22
HK 11 7 1 3 24:15 22
Selfoss 12 6 3 3 23:17 21
Fjölnir 12 6 2 4 26:21 20
Grindavík 12 4 5 3 18:15 17
Kórdrengir 12 4 4 4 16:18 16
Vestri 11 4 4 3 18:25 16
Afturelding 11 3 4 4 15:16 13
Þór 12 3 2 7 17:27 11
KV 12 2 1 9 14:31 7
Þróttur V. 11 1 2 8 4:23 5
2. deild karla
Víkingur Ó. – Ægir................................... 5:2
Staðan:
Njarðvík 11 10 1 0 39:8 31
Þróttur R. 11 8 1 2 19:11 25
Ægir 12 8 1 3 23:18 25
Völsungur 11 5 3 3 23:17 18
Haukar 11 4 4 3 14:12 16
KFA 11 4 3 4 21:19 15
ÍR 11 4 2 5 16:19 14
Víkingur Ó. 12 3 3 6 21:24 12
KF 11 2 5 4 19:24 11
Höttur/Huginn 11 2 3 6 12:20 9
Magni 11 1 3 7 9:29 6
Reynir S. 11 1 1 9 10:25 4
3. deild karla
KFG – Augnablik ..................................... 0:0
Dalvík/Reynir – Vængir Júpíters ........... 6:1
Elliði – KH ................................................ 2:2
Staðan:
KFG 12 7 3 2 26:14 24
Dalvík/Reynir 12 7 1 4 29:20 22
Víðir 11 6 3 2 24:13 21
Sindri 11 6 3 2 25:16 21
Elliði 12 5 3 4 23:22 18
Kári 11 5 2 4 20:18 17
Augnablik 12 4 4 4 16:20 16
KFS 11 5 0 6 21:26 15
Kormákur/Hvöt 11 4 2 5 20:22 14
Vængir Júpiters 12 3 1 8 20:34 10
ÍH 11 3 0 8 25:30 9
KH 12 2 2 8 13:27 8
2. deild kvenna
Fram – ÍR ................................................. 1:0
ÍA – Álftanes............................................. 3:0
KÁ – Grótta............................................... 0:3
Staðan:
Fram 8 8 0 0 22:2 24
Grótta 8 5 2 1 32:7 17
ÍR 8 5 2 1 22:9 17
Völsungur 6 4 2 0 16:5 14
ÍA 6 4 0 2 18:9 12
Álftanes 9 3 1 5 17:22 10
Sindri 8 3 0 5 13:22 9
KH 4 2 1 1 14:8 7
ÍH 6 1 1 4 11:27 4
Einherji 5 1 0 4 4:11 3
Hamar 6 0 1 5 7:22 1
KÁ 8 0 0 8 5:37 0
Danmörk
Midtjylland – Randers............................. 1:1
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Midt-
jylland í leiknum.
Pólland
Zaglebie – Slask Wroclaw ...................... 0:0
- Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn
með Slask.
4.$--3795.$
EM 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Austurríki tryggði sér í gærkvöld
sæti í átta liða úrslitum á öðru Evr-
ópumóti kvenna í fótbolta í röð með
því að vinna óvæntan en verðskuld-
aðan sigur á Norðmönnum, 1:0, í
lokaumferð A-riðilsins í Brighton.
Framherjinn Nicole Billa, leik-
maður Hoffenheim í Þýskalandi,
skoraði laglegt skallamark á 37.
mínútu og það gerði útslagið.
Norska liðið tók loks við sér á loka-
mínútum leiksins eftir að hafa átt
undir högg að sækja lengst af en það
var of seint. Þetta er í annað skiptið
í röð sem Noregur kemst ekki upp
úr riðlakeppni EM, eftir að hafa
leikið úrslitaleik keppninnar 2013 og
hafa alls fengið tvenn gullverðlaun
og fern silfurverðlaun á EM.
England vann Norður-Írland auð-
veldlega, 5:0, í Southampton en fyr-
irfram hafði England unnið A-
riðilinn og Norður-Írland var á
heimleið. Beth Mead skoraði í þriðja
leiknum í röð og er markahæst á
mótinu með fimm mörk. Alessia
Russo skoraði tvö mörk og Fran
Kirby eitt og fimmta markið var
sjálfsmark. Enska liðið lauk þar
með A-riðlinum með markatöluna
14:0.
Þá liggur fyrir að Austurríki og
Þýskaland mætast í átta liða úrslit-
um á Brentford-vellinum í London
næsta fimmtudag, 21. júlí.
England leikur hinsvegar við
annaðhvort Danmörku eða Spán
sem leika hreinan úrslitaleik um
annað sæti B-riðils í kvöld. Sú við-
ureign fer fram í Brighton á mið-
vikudaginn kemur, 20. júlí.
Austurríki skildi
Norðmenn eftir
- Englendingar skoruðu fimm mörk
AFP/Damien Meyer
Markið Nicole Billa skallar boltann í mark Norðmanna og þetta reyndist
sigurmark Austurríkis sem tryggði liðinu sæti í átta liða úrslitunum.
Christian Eriksen, fyrirliði danska
landsliðsins í knattspyrnu, gekk
formlega til liðs við Manchester
United í gær, eftir ítarlega lækn-
isskoðun, og samdi við félagið til
þriggja ára. Eriksen, sem er þrítug-
ur, virðist hafa náð sér að fullu eftir
hjartastoppið sem hann varð fyrir á
síðasta ári en hann komst aftur í
gang með Brentford eftir áramótin
og hóf að leika á ný með danska
landsliðinu. Hann er annar leik-
maðurinn sem United fær í sumar,
á eftir hollenska bakverðinum Ty-
rell Malacia.
Eriksen samdi
til þriggja ára
AFP
United Christian Eriksen hefur náð
sér að fullu eftir áfallið í fyrra.
Adama Darboe, landsliðsmaður
Danmerkur í körfuknattleik, er
genginn til liðs við Stjörnuna en
hann lék með KR-ingum á síðasta
tímabili og var þar í stóru hlut-
verki. Darboe er 36 ára bakvörður
og lék áður eitt tímabil með Grinda-
vík, 2007-08, en hefur annars leikið
með dönskum og sænskum liðum á
ferlinum. Meðal annars með Jämt-
land og Borås í sænsku úrvalsdeild-
inni og hann lék í fimm ár með
stærsta körfuboltafélagi Dana,
Bakken Bears, áður en hann kom til
liðs við KR-inga í fyrra.
Darboe til liðs
við Stjörnuna
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Stjarnan Adama Darboe var
lykilmaður í liði KR-inga.
Fjölnismenn styrktu stöðu sína í
efri hluta 1. deildar karla í fótbolta
í gærkvöld þegar þeir sóttu Þórs-
ara heim til Akureyrar og unnu
öruggan sigur, 4:1. Grafarvogsliðið
er þar með aðeins tveimur stigum á
eftir Gróttu og HK sem eru í öðru
og þriðja sætinu.
Andri Freyr Jónasson og Lúkas
Logi Heimisson komu Fjölni í 2:0 á
fyrstu 10 mínútunum en Harley
Willard minnkaði fljótlega muninn.
Guðmundur Karl Guðmundsson jók
forskotið í 3:1 fyrir hlé og Reynir
Haraldsson bætti við fjórða marki
Fjölnis um miðjan seinni hálfleik.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Mark Fjölnismenn fagna einu marka sinna gegn Þórsurum í gærkvöld.
Fjölnir skoraði fjögur
Ástralinn Cameron Smith er með
tveggja högga forystu þegar The
Open Championship, risamótið á St
Andrews-golfvellinum í Skotlandi,
er hálfnað. Cameron lék afar vel á
öðrum hring mótsins í gær, á 64
höggum, eða átta undir pari vall-
arins, og er samtals á þrettán högg-
um undir pari eftir tvo daga.
Bandaríkjamaðurinn Cameron
Young, sem nokkuð óvænt var efst-
ur eftir fyrsta daginn, fylgdi því
ágætlega eftir og er annar á 11
höggum undir pari.
Norður-Írinn Rory McIlroy lék á
68 höggum í gær og er þriðji á tíu
höggum undir pari, ásamt Norð-
manninum Viktori Hovland sem lék
á sex höggum undir pari í gær, 66
höggum.
Dustin Johnson er á níu undir
pari og þeir Scottie Scheffler og
Tyrrell Hatton á átta undir þannig
að útlit er fyrir hörkuslag um
helgina.
Tiger Woods varð á meðal neðstu
manna og sagði eftir að keppni lauk
að þetta hefði væntanlega verið sitt
síðasta mót á gamla St Andrews-
vellinum sem aðeins er notaður á
nokkurra ára fresti.
Smith með tveggja
högga forystu
AFP/Glyn Kirk
Fyrstur Cameron Smith undirbýr
pútt á 18. holunni á St Andrews.
Tap í vítakastkeppni gegn Slóveníu varð til þess að ís-
lenska U20 ára liðið í handknattleik karla náði ekki að
tryggja sér sæti á næsta heimsmeistaramóti í gær. Eftir
jafntefli liðanna, 32:32, í keppninni um níunda til tólfta
sætið á Evrópumótinu í Portúgal í gær sigruðu Slóvenar
5:3 í vítakastkeppni. Þeir leika því um níunda sætið við
Færeyinga, sem tryggðu sér líka sæti á HM með því að
vinna Ítali, 30:28.
Það verða hinsvegar Ísland og Ítalía sem leika leikinn
mikilvæga um ellefta og síðasta sæti Evrópu á heims-
meistaramótinu 2023 sem fram fer í Þýskalandi og
Grikklandi næsta sumar en hann fer fram í dag.
Andri Már Rúnarsson var markahæstur í liði Íslands með sjö mörk,
Andri Finnsson sex, Guðmundur Bragi Ástþórsson, Benedikt Gunnar Ósk-
arsson og Arnór Viðarsson fimm mörk hver. Adam Thorstensen varði níu
skot í markinu.
Mæta Ítalíu í úrslitaleik í dag
Guðmundur Bragi
Ástþórsson
Hilmar Örn Jónsson hafnaði í 24.
sæti af 30 keppendum í sleggjukasti
karla á heimsmeistaramótinu í
frjálsíþróttum sem hófst í Eugene í
Orgeon-ríki Bandaríkjanna í gær.
Hilmar kastaði 72,72 metra en
hefði þurft að kasta 74,67 metra til
að verða í einu af tólf efstu sæt-
unum í undankeppninni og komast í
úrslitin. Íslandsmet Hilmars er
77,10 metrar og hefði fleytt honum
í tíunda sætið í gær. Hilmar er eini
keppandi Íslands á þessu heims-
meistaramóti.
Hilmar í 24.
sæti á HM
AFP/Andrej Isakovic
Eugene Hilmar Örn Jónsson kastar
sleggjunni á HM í gær.