Morgunblaðið - 16.07.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 16.07.2022, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Rússagullið sem svo var kallað rat- aði hér á árum áð- ur í fjárhirslur ís- lenskra sósíalista sem stóðu keikir vaktina fyrir Sov- étríkin sálugu hvað sem á gekk. Þetta Rússagull var ekki uppi á yfirborðinu en nýttist engu að síður í vafa- sama starfsemi hér á landi. Nú er annað Rússagull til umræðu, en Evrópusambandið hefur í hyggju að hindra út- flutning Rússlands á gulli sem hluta af refsiaðgerðum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Evr- ópusambandið hefur þegar samþykkt sex pakka af refsiað- gerðum, þann síðasta nú í júní vegna olíu, en framkvæmda- stjórn þess segir að gullið sé næst og verði þau áform kynnt um leið og samkomulag náist á milli aðildarríkjanna. Fundur helstu iðnríkja heims, G-7 ríkjanna, sem hald- inn var í lok júní samþykkti að banna útflutning Rússa á gulli, en það hefur ekki dugað til að stöðva þennan útflutning þó að Evrópusambandið hafi þar átt fulltrúa. Sagt er að gull sé þýð- ingarmikil útflutningsafurð Rússlands og að bannið sé af þeim sökum mikilvægur liður í að þrengja að Rússlandi efna- hagslega. Ekki skal efast um að Rússa munar um gullsöluna takist að draga úr henni, en það má efast um að þá muni um hana þannig að það hafi áhrif á hernaðar- aðgerðir þeirra í Úkraínu. Sex kynntar refsiaðgerðir hafa ekki dugað og hefur þeim þó verið fylgt úr hlaði með miklum yfirlýsingum um umfang og áhrif. Ekki er líklegt að gullið skipti sköpum. Það er raunar ótrúlegt þegar horft er til þess sem sagt hefur verið að enn séu slíkar glufur í aðgerðunum. Og meginatriðið er enn undan skilið aðgerð- unum en það er gasið, sem enn rennur greiðlega frá Rússlandi til ríkja Evrópusambandsins. Eða öllu heldur, sem þau vilja enn að renni greiðlega. Rúss- land hefur dregið mjög úr rennslinu og segist í byrjun vikunnar hafa sett af stað við- haldsaðgerðir sem stöðvuðu rennslið. Hvenær það fer af stað á ný er óvíst, en það sem upp úr stendur er að óróleikinn vegna þessa virðist meiri í ríkj- um Evrópusambandsins en í Rússlandi. Ástæðan fyrir því að Evr- ópusambandið er svo háð Rúss- landi um orku er að innan þess hefur sú stefna verið ríkjandi að draga hratt úr notkun eigin jarðefnaeldsneytis og að loka kjarnorkuverum. Orkustefnan byggist á draumsýn um að hægt sé á fáeinum árum að skipta yfir í aðra orkugjafa sem sagðir eru um- hverfisvænni en duga hvorki til að halda framleiðslu Evrópu gangandi né að halda hita á íbúunum þar að vetrarlagi. Á meðan ríki Evrópusambands- ins reka slíka orkustefnu verða þau áfram allt of háð Rússlandi eða öðrum ríkjum sem ekki er endilega æskilegt að þurfa að reiða sig á, svo sem Aserbaíd- sjan. ESB er nú langt komið með að semja við það ríki, sem lætur hvorki lýðræði né mann- réttindi trufla sig, um kaup á gasi. Til að það megi verða þarf að efla leiðslur til sunnan- verðrar Evrópu og það tekur tíma, enda ætlunin að fyrirhug- aður samningur við Aserbaíd- sjan fari að skila gasi eftir fimm ár. En það eru ekki aðeins ríki Evrópusambandsins sem reka orkustefnu sem veikir þau í samskiptum við umheiminn. Forseti Bandaríkjanna er nú í sinni fyrstu heimsókn til Mið- Austurlanda, meðal annars til að hitta leiðtoga Sádi-Arabíu, krónprinsinn Mohammed bin Salman, manninn sem Biden taldi óalandi og óferjandi fyrir skömmu. Nú hafa aðstæður í heiminum breyst, Íran nálgast kjarnorkusprengjur á ný eftir að slakað var á klónni gagnvart því hættulega ríki og ekki síður þarf að biðja krónprinsinn um að auka olíuframleiðslu. Biden þyrfti ekki að fara með slíka bón til Mið-Austurlanda ef hann ræki aðra orkustefnu heima fyrir, en þar hefur hann þvælst fyrir vinnsluleyfum, ol- íuleiðslum og fleiru sem nauð- synlegt er til að starfsemi fyrirtækja í orkugeiranum geti skilað þeirri orku sem þarf. Með kosningar fram undan og bandaríska kjósendur ósátta við allt of hátt orkuverð er ekki annað að gera fyrir Biden en að setjast niður með þeim sem hafa aðgang að olíu og eru ekki feimnir við að nýta hana og biðja þá um aðstoð. Veikleiki Vesturlanda, sem vitlaus orkustefna hefur valdið, fer sífellt vaxandi og verður æ hættulegri. Vesturlönd verða að hafa aðgang að öruggri orku, að öðrum kosti eru þau háð ríkjum sem þau vilja ekki vera háð og sem hika ekki við að nýta sér þennan veikleika. Tilraun til að loka á útflutning á gulli frá Rússlandi kann að vera eðlilegt, en mjög síðbúið, skref í aðgerðunum gegn Rúss- landi. Sú tilraun er þó um leið enn ein áminningin um að Vest- urlönd hefur rekið illilega af leið og verða að breyta um kúrs. Endurteknar aðgerðir gegn Rússlandi sem taka ekki á því sem máli skiptir minna á veik- leika Vesturlanda} Rússagullið N ennir þú í alvörunni að fara út í pólitíkina?“ Þetta var algeng spurning þegar ég tilkynnti framboð mitt í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Svarið var auðvelt já þar sem áhugi minn lá í þessa átt en spurningin sýnir því miður þessa neikvæðu ímynd sem liggur yfir pólitíkinni. Held að það sé eins með pólitískt starf á Al- þingi eða sveitarstjórn líkt og aðra vinnu. Það eru misjafnir dagar og verkefnin sem liggja fyrir eru til þess að finna bestu mögulegu lausnina. Markmiðið er að reyna að bæta sam- félagið sem við búum í og ef þú hefur áhuga er starfið heilt yfir skemmtilegra og ákvarð- anirnar verða líklega betri. Sem kjörinn fulltrúi er ég í þjónustu fyrir íbúa í mínu sveitarfélagi og í rauninni víðar, þar sem ákvarðanir eins sveitarfélags geta haft áhrif á önnur. Starfsemi sveitarfélaga byggist að mestu leyti á sömu grunn verkefnunum og mikilvægt að nýta samstarf á já- kvæðan hátt. Við getum alltaf lært af hvert öðru og erum sterkari sem stærri heild. Það má því færa mjög góð rök fyrir því að fækka sveitarfélögum, efla þau og um leið bæta þjónustuna við íbúa. Það er efni í annan pistil síð- ar … Inntak fyrirsagnar í þessum pistli er í stuttu máli ein- mitt gagnvart samstarfi og skilvirkni fyrir okkur íbúana í landinu. Ríki og sveitarfélög eru í góðu samstarfi um mörg málefni en oft og tíðum hefur mér fund- ist of mikill tíma fara í rifrildi um fjármagn í þá mikilvægu grunnþjónustu sem báðir aðilar veita. Þjónusta í leik- og grunnskólum, fé- lagsþjónustu, frístundum, framhalds- og há- skólum eða heilbrigðisstofnunum eru dæmi um þjónustu sem við nýtum okkur öll ein- hvern tímann á lífsleiðinni og er oftast veitt af annaðhvort sveitarfélagi eða ríkinu. Það get- ur verið kostur að ábyrgðaraðili þjónust- unnar sé nær íbúunum sem í flestum tilfellum væri sveitarfélagið eða jafnvel einkaaðili. Hver sem veitir þjónustuna þá þarf að hugsa fjármögnunina sem eina heild þannig að hún skili sér sem best fyrir samfélagið. Umræðan um fjármagnið þarf að mínu mati að vera á þeim grundvelli að við viljum sjá þjónustuna nýtast sem best þar sem hún er veitt og hún geti þá mögulega skilað hagræðingu á öðrum stöðum. Slíkt kallar á breytt hugarfar og mér finnst umræðan hjá kjörnum fulltrúum á Íslandi vera að færast nær þeirri jákvæðu átt. Við erum nefnilega öll í sama liðinu þegar upp er stað- ið. Ég hef þá staðföstu trú að allir þeir sem leggja mann- orð sitt að veði sem kjörnir fulltrúar á Alþingi eða sveita- stjórnum landsins séu að stefna að sama markmiðinu, bæta samfélagið sem við erum öll hluti af. Bragi Bjarnason Pistill Stefnum að sama markmiðinu Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg. bragi@arborg.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is O rkukreppa í Evrópu í tengslum við stríðið í Úkraínu og vaxandi þrýst- ingur á að minnka losun gróðurhúsalofttegunda hafa aukið mjög áhuga á nýtingu endurnýj- anlegrar orku í Austur-Evrópu, að sögn Baldurs Péturssonar, verkefn- isstjóra fjölþjóðlegra verkefna hjá Orkustofnun. „Það eru tvær kreppur, lofts- lagskreppan og orkukreppan. End- urnýjanleg orka skiptir gríðarlega miklu máli í því samhengi,“ segir Baldur. „Báðar þessar kreppur knýja á að nýta meira endurnýjanlega orku til húshitunar og annarra þarfa. Mörg af þessum löndum nota kol til að kynda með hús og fyrirtæki. Hægt er að nýta jarðhita til þess á nokkuð mörgum stöðum og hann er því mik- ilvægur.“ Breytingarnar sem unnið er að í Austur-Evrópu, varðandi nýtingu endurnýjanlegrar orku, eru ekki ein- ungis tæknilegar heldur einnig tengdar þekkingarmiðlun og því að vekja aukinn áhuga og umræðu. Fólk í þessum löndum er vant að líta á kol sem náttúruauðlindir sem þjóðirnar hafi rétt á að nýta. Nú eru aðstæður breyttar og það kallar á aðra orku- gjafa. Mörg verkefni í A-Evrópu Baldur hefur undanfarið stýrt uppbyggingu og rekstri í tengslum við tvö samstarfsverkefni við Pólland og fleiri lönd. Verkefnin hafa bæði verið í rekstri frá 2021 og verður þeim lokið í byrjun árs 2024. Þau eru hluti af verkefnum Uppbygging- arsjóðs EES. Unnið er að mun stærri verkefnum á þessu sviði í löndunum sjálfum með þátttöku íslenskra og norskra fyrirtækja. Samstarfsaðilar Orkustofnunar frá Póllandi, Ungverjalandi, Slóvakíu og Noregi í User4GeoEnergy- verkefninu komu hingað til lands í apríl sl. Verkefnið miðar að því að bæta orkunýtingu hitaveitukerfa í Póllandi, Ungverjalandi og Slóvakíu með bættri orkunotkun neytenda. Lögð var áhersla á að kynna starfsemi fyrirtækja á Íslandi sem tengjast jarðhita og hitaveitum. Með- al annars voru auðlindagarðarnir á Hellisheiði og Reykjanesi heimsóttir og farið til fyrirtækja sem nýta jarð- hita í ýmsar vörur og þjónustu, sam- kvæmt frétt á vef Orkustofnunar (os.is). Þjálfunarnámskeið var haldið í Póllandi í maí sl. til að efla uppbygg- ingu og notkun jarðhita til húshit- unar. Færri komust að en vildu. Námskeiðið var liður í uppbyggingar- og þjálfunarverkefni á jarðhita í Pól- landi, sem unnið er í samstarfi Orku- stofnunarog IGSMiE PAN í Póllandi, á vegum Uppbyggingarsjóðs EES. Markmiðið er að byggja upp þekk- ingu helstu hagsmunaaðila í Póllandi á sviði nýtingar jarðhita, með áherslu á húshitun með endurnýjanlegum orkugjöfum sem eykur orkuöryggi, hagkvæmni og dregur úr mengun og losun koltvísýrings. Mikill áhugi er hjá Pólverjum á auknu samstarfi við Ísland. Von er á stórum hópi frá Póllandi í lok sept- ember hingað til lands. Ísland hefur unnið með Uppbyggingarsjóði EES ásamt fyrirtækjum og stofnunum að uppbygg- ingu meðal annars í Rúm- eníu. Þar var kolaorkuveri á stærð við Kárahnjúka- virkjun (tæplega 700 MW) breytt í gasorkuver. Hluti af verkefninu var einnig að auka nýtingu jarðhita til húshitunar í borginni Oradea í Rúmen- íu. Íslensk þekking á jarðhita flutt út Önnur lönd geta lært ýmislegt af því hvernig Íslendingar brugðust við olíukreppunni á 8. áratug síðustu aldar. „Olíuverð hækkaði mjög mikið frá 1970-1980 þegar ol- íukreppan skall á. Það var brugðist við því með mikilli hitaveituvæðingu á Íslandi. Hér tókst að minnka olíunotkun til húshitunar úr um 50% niður í um 5% á tíu árum,“ segir Baldur Pétursson, verkefn- isstjóri hjá Orkustofnun. „Það var gríðarlega mikill árangur og má rekja hann til mikillar samstöðu stjórnvalda, það er ríkis, sveitarfélaga og fyr- irtækja. Tíu ár eru mjög stuttur tími til að ná svo gríðarlega miklum árangri. Er- lendar þjóðir líta mikið til þess og vilja læra af því.“ Viðbrögðin vöktu athygli OLÍUKREPPAN Baldur Pétursson Ljósmynd/os.is Jarðhiti Fulltrúar frá Póllandi, Ungverjalandi og Slóvakíu komu til að kynna sér nýtingu jarðhita. Hópurinn heimsótti m.a. HS Orku í Svartsengi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.