Morgunblaðið - 16.07.2022, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.07.2022, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Æfing Stelpurnar okkar búa sig nú undir næstu viðureign, gegn Frakklandi á mánudag. Á æfingu sinni í gær gátu liðsfélagarnir slegið á létta strengi eftir að hafa krækt í tvö stig á mótinu. Eggert LONDON | Morðið á fyrrverandi forsætis- ráðherra Japans, Abe Shinzo, þar sem hann var á kosningafundi í Nara í Japan, er bæði áfall og á sama tíma mjög sérkennilegt. Það er áfall vegna þess að í meira en hálfa öld hafa nánast engin ofbeldis- verk verið framin í tengslum við stjórn- mál, og mikið aðhald og eftirlit er með byssueign landsmanna. Voða- verkið er sérkennilegt vegna þess að Abe, sem lét af störfum sem for- sætisráðherra árið 2020, gegndi engri formlegri stöðu í ríkisstjórn landsins, en þrátt fyrir það er morð- ið greinilega pólitískt. Ekki þótti líklegt að morðið á Abe hefði haft áhrif á kosningarnar 10. júlí í þingmannadeildinni (efri deild- in og fyrsta löggjafarstigið) sem hinn frjálslyndi Lýðræðisflokkur, sem er við stjórn var fyrirfram tal- inn vinna auðveldlega. Hið hörmu- lega dauðsfall forystumanns flokks- ins og forsætisráðherra gæti fengið einhver samúðaratkvæði með betri kjörsókn, en morðið hefur samt fyrst og fremst verið áfall fyrir þjóð- ina sem er algjörlega óvön slíkum ofbeldis- verkum. Arfleifð Abe, frá mettíma sínum sem forsætisráðherra, sem var skipt milli árang- urslítils árs 2006-2007 til sigursællar end- urkomu til sjö ára á ár- unum 2012-2020, skilur meira eftir sig í áhrif- um á utanríkisstefnu og varnarmálastefnu Japans heldur en í áhrifum á innanríkismálin. Vissu- lega var Abe góður sölumaður hug- mynda sinnum um efnahagsmál, sem hann kynnti undir nafninu „Efnahagsmál Abe“, en þegar öll kurl koma til grafar voru það utan- ríkismálin frekar en efnahagsmálin sem settu mark sitt á valdatíma hans. Það sem Abe færði Japönum var skýrleiki, sterkur tilgangur og með tilliti til langrar setu hans í stól for- sætisráðherra, trúverðugleiki, þegar kom að utanríkismálum. Þá stað- reynd að frasinn „Indó-Kyrrahaf“ er núna almennt notaður til að lýsa varnarmálum og diplómatískri stefnu í Asíu má helst þakka Abe fyrir. Hann nýtti sér fyrri tilraunir Japana til þess að styrkja sam- bandið við Indland og notaði það til þess að styrkja stöðu Japana, bæði á heimavelli í Asíu og á heimsvísu. Þessi afstaða hans var knúin áfram af uppgangi Kína og stöðugt harðari orðræðu og gjörðum í kring- um Suður- og Austur Kínahaf. Und- ir stjórn Abe lagði Japan höfuð- áherslu á utanríkisstefnu sem gerði Kína erfiðara fyrir að ná öllum völd- um á svæðinu. Þáttur í þeirri við- leitni var að styrkja tengslin við Ind- land og að styrkja japanska herinn. Abe var lykilmaður í því að setja fram tillögur sem miðuðu að því að breyta þjóðskrá landsins, svo herinn gæti leikið stærra hlutverk og stigið þar í takt við sinn helsta bandamann á alþjóðavettvangi, Bandaríkin. Því er ekki að neita að Abe var sannarlega þjóðernissinni. Hann hafði upphaflega vakið deilur með umdeildum skoðunum sínum um sérstaka sýn á stríðssögu Japan, ekki síst um hitamálið sem tengdist svokölluðum „hjákonum“ eða am- báttum sem herlið keisaraveldis Japan þvingaði í kynferðislega ánauð í herteknum löndum sínum. Þegar hann var kjörinn til valda, gerði hann fremur lítið úr sínum fyrri skoðunum. Hins vegar lagði hann áherslu á að styrkja stjórn- málaleg tengsl og sambönd um alla Suðaustur-Asíu, jafnvel við ná- grannalandið Suður-Kóreu, sem er fyrrverandi nýlenda Japan. Þrátt fyrir að samskiptin við Kína væru frekar stirð, sérstaklega þegar Abe heimsótti hið umdeilda Yasukuni- hof í Tókýó, þá héldust samt alltaf samskipti milli ríkjanna. Það er alltaf erfitt að geta í ástæð- ur morðingja. Maðurinn sem var handtekinn fyrir morðið á Abe, hinn 41 árs Tetsuya Yamagami, virðist hafa notað stóra, heimagerða byssu til ódæðisins. Þegar haft er í huga að Japan er eitt öruggasta land heims- ins, er ekki skrýtið að öryggisgæsla sé fremur lítil á stjórnmála- samkomum, sem útskýrir hvers vegna byssumanninum tókst áætl- unarverk sitt. Samkvæmt fréttum hafði Yamagami verið í þrjú ár í varnarsveit sjóhers Japan, allt til ársins 2005. Þegar litið er til þessa bakgrunns morðingjans og stefnu Abe um að styrkja japanska herinn og losna við friðarklásúlu (grein 9) stjórnaskrár Japans, er auðvelt að komast að þeirri niðurstöðu að morðið hafi verið framið í mótmæla- skyni gegn hervæðingu landsins. Þrátt fyrir að Abe væri ekki leng- ur við völd, var hann samt án efa þekktasti stuðningsmaður aukinnar hervæðingar Japan. Hann lýsti iðu- lega yfir áætlun sinni um að ljúka við það starf sem langafi hans, Nobo- suke Kishi, hóf sem forsætisráð- herra 1960, þar sem hann leiddi leið- ina í átt til endurskoðunar á öryggissamningi milli Japan og Bandaríkjanna, með það í huga að styrkja varnir Japan. Því miður er það líklega ekki til- viljun að á undan þessu ódæði var síðasti japanski forsætisráðherrann sem varð fyrir ofbeldisverki í emb- ætti Kishi, sem var stunginn með hníf sex sinnum stuttu eftir að ör- yggissáttmálinn var samþykktur. En ólíkt barnabarni sínu, Abe, lifði Kishi árásina af. Eftir Bill Emmott »Morðið á fyrrverandi forsætisráðherra Japan, Abe Shinzo, var áfall, ekki síst í ljósi þess að ofbeldi gegn kjörnum stjórnmálaleið- togum hefur ekki þekkst í Japan undan- farna hálfa öld. Bill Emmett Höfundur er fv. ritstjóri The Eco- nomist og er aðstoðarstjórnandi Al- heimsráðs um stefnumótun eftir heimsfaraldur (GCPPP). ©Project Syndicate Hvernig Abe breytti Japan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.