Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Glerártorgi | Kringlunni | Skeifunni | Sími 588 0640 | casa.is Bialetti góður ferðafélagi við veginn Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „EF ÉG TAPA… ÞÁ SLAUFUM VIÐ VEÐMÁLINU. ER ÞAÐ SKILIÐ?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að þú ert á leið heim til hans. ÉG ELSKA AÐ SKREYTA FYRIR JÓLIN JÁ, ER ÞAÐ? GRETTIR! HVÍ ERU OST- SNEIÐAR Á JÓLA- TRÉNU?! TÓNLISTARFERILL MINN ER MÉR ALLT! VERÐ ÉG ÞÁ ALDREI NÚMER EITT HJÁ ÞÉR? ALRANGT! ÉG OPNA ALLTAF MEÐ LAGINU SEM ÉG SAMDI UM ÞIG! „EF ÞAÐ VÆRI EITTHVAÐ VARIÐ Í HANA HEFÐI HÚN SÉÐ ÞAÐ FYRIR AÐ ÞÚ MYNDIR MÆTA SNEMMA.“ frá þeim félögum. Tónlistarmaðurinn Páll Þorsteinsson, betur þekktur undir listamannsnafninu „Guli Drek- inn“ var stofnandi og liðsmaður í Af- kvæmum guðanna en hann féll frá í lok árs 2019. Guli Drekinn var mjög áhrifamikill í íslensku tónlistarsen- unni sem tók annað stórt stökk með tilkomu Gísla Pálma á sjónarsviðið í byrjun síðasta áratugar. Áttu þeir, ásamt tónlistarmanninum Trausta, betur þekktur undir listamannsnafn- inu Frosty, stóran þátt í að fleyta áfram nýju hljóði í íslenskri tónlist. „Það er allt annað að gera tónlist í dag. Allir orðnir miklu tæknilega færari og geta gert lag heima hjá sér en það var mikil þraut á sínum tíma. Þetta er mikið aðgengilegra og þægi- legra og þá sérstaklega forritin sem er notast við.“ Ásamt því að vinna að nýrri plötu með Afkvæmum guðanna er Elvar að undirbúa næstu kvik- mynd. Hann getur ekki tjáð sig mik- ið um nýju myndina að svo stöddu en það er ekki hryllingsmynd. „Þessa dagana er ég, ásamt því að undirbúa útgáfu myndarinnar It Hatched, að vinna í handritsgerð og forframleiðslu næstu kvikmyndar. Vonast ég til þess að hefja fram- leiðslu á þeirri kvikmynd á næsta ári og hlakka mikið til.“ Fjölskylda Sambýliskona Elvars er Unnur Edda Garðarsdóttir, f. 21.9.1982, að- júnkt við HÍ. Hún átti fyrir soninn Bjart Ými, f. 20.12. 2007. Elvar á fjögur börn: Aníta Von, f. 28.11. 2000, og Diljá Malín, f. 19.9. 2005. Móðir þeirra er Íris Dögg Jónsdóttir, f. 18.3. 1983, bókari og Dagný Esja, f. 1.6. 2012, og Gunnar Óli, f. 7.12. 2017. Móðir þeirra er Vivian Ólafsdóttir, f. 12.5. 1984, leik- kona. Hann er þá stjúpfaðir Kol- brúnar Unu, f. 13.3. 2009, dóttur Vivian úr fyrra sambandi. Systir Elvars er Sólrún Gunn- arsdóttir, f. 6.10. 1986, fiðluleikari og tónlistarkennari í Reykjavík. For- eldrar Elvars eru hjónin Dagný Brynjólfsdóttir, f. 13.6. 1954, skrif- stofustjóri hjá heilbrigðisráðuneyt- inu, og Gunnar Óskarsson, f. 14.8. 1954, prófessor við Háskóla Íslands. Þau eru búsett í Garðabæ. Elvar Gunnarsson Jónína Dagný Hansdóttir húsfreyja í Reykjavík Ólafur Sæmundsson sjómaður og vélstjóri í Reykjavík Svanhvít Stella Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Brynjólfur Eyjólfsson bifreiðastjóri Reykjavíkurborgar Dagný Brynjólfsdóttir skrifstofustjóri í Reykjavík Kristín Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík Eyjólfur Júlíus Brynjólfsson sjómaður og verkamaður í Reykjavík Guðrún Gísladóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Lýðsson verkstjóri í Rangárvallasýslu Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Óskar Jónsson húsasmíðameistari í Reykjavík Sigurlaug Þorkelsdóttir húsfreyja í Grímsneshreppi Einar Jónsson bóndi í Þingvallahreppi Ætt Elvars Gunnarssonar Gunnar Óskarsson prófessor við Háskóla Íslands í Reykjavík Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Prestur þarna predikar. Peningaseðli nú flíka. Æfagamall hann afi var. Andlát kunngerir líka. Karlinn á Laugaveginum leysti gátuna þannig: Sókn við presta köllum kall. Kom fyrir lítið hundrað kall. Afa Grím, þann gamla kall, Í gröfina lagði hinsta kall. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Prestur í kalli predikar. Peningaseðill kallinn er. Eldgamall kall hann afi var. Andlátsfregn mér kallið ber. Þá er limra: Hann séra Sigfús á Hóli var sérdeilis mikill fóli, sem drýgði hór og dýrkaði Þór og sviptur var kalli og kjóli. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Lóan syngur dirrindí, dillar þröstur sér á grein, gleður líka gáta ný, getur læknað sálarmein: Flestir kvíða komu hans. Karlmannsnafn er hér til sanns. Stundum vafinn geislaglans. Getur verið ævi manns. Jóhann S. Hannesson kvað: Þessi limra er laglega ort, enda löngum mitt uppáhaldssport að iðka þann hátt með ágætum, þrátt fyrir íslenskan bragfótaskorti. Úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar: Þessar klappir þekkti ég fyr, þegar ég var ungur, átti ég víða á þeim dyr, eru þar skápar fallegir. Káinn kvað og sagði „ja, því ekki það?“ Flesta kitlar orð í eyra, ef eitthvað mergjað finnst, því vill ekki þjóðin heyra þá, sem ljúga minnst. Bjarni frá Gröf orti og kallar „Á verði“: Þó að ellin andann slævi, ennþá hef ég dágóð spil. Lífið vakir alla ævi yfir því að vera til. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Prestakall er líka kall

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.