Fréttablaðið - 23.08.2022, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 23.08.2022, Blaðsíða 13
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS Fasteignablaðið 34. TBL. 23. ÁGÚST 2022 Heimili fasteignasala, sími 530-6500, kynnir til sölu glæsilega fimm til sex her- bergja efri sérhæð, með yfir- byggðum sólskála og rúm- góðum bílskúr, í Setberginu í Hafnarfirði. Eignin er skráð 216,3 fm að stærð, þar af íbúðarrými 185,2 fm og bíl- skúr 31,1 fm, og skiptist í anddyri, snyrtingu, borð- og setustofu, stórt og rúmgott eldhús, sjónvarpshol, sólskála, fjögur svefnherbergi, nýtt baðherbergi, rúmgott þvottahús og bílskúr. Anddyrið er rúmgott og bjart með fataskáp og fatahengi. Á gólfi eru flísar (náttúrusteinn) og frá anddyri er lúga upp á rúm- gott geymsluloft sem er yfir allri eigninni. Snyrting. Á gólfi og á veggjum eru flísar og innan rýmis er gluggi með opnanlegu fagi. Borð- og setustofa. Rúmgóð og björt með aukinni lofthæð, gluggum á þrjá vegu og útgengi á rúmgóðar svalir eignar. Á gólfi er fallegt gegnheilt parket. Í eldhúsi er vönduð innrétting frá Siematic, tæki frá Gaggenau, blöndunartæki frá Mora, granít borðplötur á borðum, mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða. Á gólfi eru flísar/náttúrusteinn og í eldhúsi er rúmgóður borðkrókur. Sólskáli. Frá eldhúsi er gengið inn í rúmgóðan sólskála þar sem er kamína, opnanleg fög og fallegt útsýni til vesturs. Náttúrusteinn á gólfi og gólfhiti. Svefnherbergi 1: parket á gólfi, fataskápur innan herbergis. Svefnherbergi 2: parket á gólfi, fataskápur innan herbergis. Svefnherbergi 3: parket á gólfi, fataskápur innan herbergis. Svefnherbergi 4: parket á gólfi, fataskápur innan herbergis. Þvottahús: góð vinnuaðstaða, flísar á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi innan rýmis. Verið er að ljúka við gagngera endurnýjun á baðherbergi sem var hannað af Ernu Geirlaugu Árna- dóttur innanhússarkitekt. Þar er glæsilegur innangengur sturtu- klefi, innfelld blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, nýtt baðkar og ný innrétting frá Trésmiðju BGS sem verður með super white Quarts sheet borðplötu. Á bað- herbergi er hiti í gólfi, nýjar 80x80 flísar frá Birgissyni, og á baðher- bergi eru tveir gluggar með opnan- legum fögum. Bílskúrinn er rúmgóður með aukinni lofthæð, ágætum gluggum og góðu geymsluplássi. Fyrir framan bílskúr er upphitað bílaplan og umhverfis eign er afar fallegur garður í góðri rækt þar sem á bak við hús er sólpallur sem er í séreign efri hæðar. Frábær fjölskyldueign í vinsælu og grónu hverfi í Hafnarfirðinum þar sem stutt er í alla þjónustu og fallega náttúru. n Nánari upplýsingar veitir Brynj­ ólfur Snorrason, s: 896­2953, lgfs. brynjolfur@heimili.is. Glæsileg sérhæð í Hafnarfirði Húsið er í Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Frábær fjölskyldueign í vinsælu og grónu hverfi í Hafnarfirðinum þar sem stutt er í alla þjónustu og fallega náttúru. Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali. Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is Erum við að leita að þér?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.