Fréttablaðið - 23.08.2022, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 23. ágúst 2022
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is
Klósettþrif er sennilega það húsverk
sem fæstum líkar, en kók hjálpar til.
thordisg@frettabladid.is
Getur Coca Cola hreinsað klósett?
Svarið er já, svo sannarlega, og
gamalreynt húsráð að nota kók
til að losa um þrálát óhreinindi
og kalkhringi sem gjarnan setjast
niðri við vatnsbrúnina.
Það eru mildar kolsýrur og
fosfórsýrur frá kolsýrumettun
gosdrykkjarins sem vinna smám
saman á hringjunum, og sykur-
laust kók virkar alveg jafn vel og
sykrað kók.
Hitað kók enn betra
Það þarf ekki mikið til, sirka einn
til tvo bolla. Gott er að byrja á að
bursta klósettskálina að innan
með klósettbursta og hella svo
kóki ofan í hana alla, og þannig
að fljóti yfir óhreinindahringinn.
Hægt er að nota spreybrúsa til að
sprauta kóki á staði sem erfitt er að
ná til, eins og undir kantinn efst.
Látið kókið vinna sitt verk í tvær
klukkustundir, eða yfir nótt, til að
sýrurnar hafi tíma til að vinna á
óhreinindunum.
Sturtið nú kókinu niður úr kló-
settinu. Þá ætti að sjást hversu vel
tókst að fjarlægja blettina. Gott er
að nota klósettbursta til að bursta
yfir bletti sem losnuðu ekki við að
sturta niður.
Endurtakið eftir þörfum, og
fyrir erfiða bletti er ráð að auka
áhrif kóksins með því að hita það
fyrst í potti eða örbylgjuofni, í þar
til gerðu íláti, en látið ekki sjóða. n
Kók í klósettið
Vilhelm Einarsson og Vigdís Hind Gísladóttir eru spennt fyrir að taka á móti hópum í Minigarðinum. Staðurinn er tilvalinn fyrir hópefli fyrirtækja þar sem
flestir geta spilað minigolf. Þar er einnig úrval af mat og drykk en mikill metnaður er lagður í matinn í Minigarðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Minigarðurinn er fullkominn
fyrir hópefli með vinnufélögum
Minigarðurinn er 1900 m2, 18 holu innanhúss minigolfvöllur, mathöll og sportbar. Innan
skamms opnar þar einnig pílustaður með gagnvirkum píluspjöldum. Staðurinn er kjörinn
fyrir hópefli fyrirtækja þar sem allir geta skemmt sér saman og notið matar og drykkjar. 2