Fréttablaðið - 24.08.2022, Side 1
Ég skil ekki af hverju
menn eru svo lítil-
sigldir.
Jón Baldvin Hannibalsson
1 9 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Hugsar um
ástina sem veru
Sandman sýnir
mýkri Gaiman
Menning ➤ 26Lífið ➤ 24
M E NNING Þjóðleik húsið mun
heimsfrumsýna þríleik eftir Marius
von Mayenburg, eitt þekktasta
nú l i f a nd i leik sk á ld Ev rópu .
Ástralski leikstjórinn Benedict
Andrews, sem hefur áður leikstýrt
í Þjóðleikhúsinu, stýrir tveimur
verkanna, Ellen Babić og Ex á
leikárinu 2022-2023.
Mayenbu rg mu n svo sjálf u r
leikstýra því þriðja, Alveg sama,
haustið 2023.
Að sögn Magnúsar Geirs Þórðar-
sonar, Þjóðleikhússtjóra, er um stór-
viðburð að ræða. „Þetta hefur ekki
gerst áður, að leikrit eftir heims-
frægt leikskáld sé heimsfrumsýnt
á Íslandi. Hvað þá þríleikur,“ segir
hann. SJÁ SÍÐU 21.
Stórviðburður í
Þjóðleikhúsinu
2-3 DAGA
AFHENDING
Áskrift að upplifun
Fyrrum utanríkisráðherra
sem braut blað í stuðningi
við sjálfstæði Eystrasalts-
ríkja undrast lítilfengleika
íslenskra stjórnvalda og HÍ.
Fjórir forsetar ræða frelsi
Eystrasaltsríkja í Háskólabíói
að honum fjarstöddum.
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG Íslensk stjórnvöld og
Háskóli Íslands buðu ekki fyrrver-
andi utanríkisráðherra, Jóni Bald-
vini Hannibalssyni, við skipulagn-
ingu hátíðarsamkomu sem fram
fer í vikunni með öllum forsetum
Eystrasaltsríkjanna um sjálfstæði
þjóðanna þriggja. Þetta segir fyrr-
um samflokksmaður Jóns Baldvins.
Háskóli Íslands og forsetaem-
bættið boða til fundarins í Háskóla-
bíói næsta föstudag til að fagna
þremur áratugum af stjórnmála-
sambandi „eftir að Ísland varð fyrst
ríkja til að viðurkenna á ný sjálf-
stæði Eistlands, Lettlands og Lit-
háens,“ eins og segir í tilkynningu.
Jón Baldvin á helst heiðurinn af
stuðningnum en Sighvatur Björg-
vinsson, fyrrum ráðherra og sam-
flokksmaður Jóns Baldvins, segir
að á mánudag hafi hann uppgötvað
að Jóni Baldvini var ekki boðið til
hátíðarinnar.
„Þeir sem hafa undirbúið fundinn
hafa vitandi vits haldið Jóni Bald-
vini frá,“ segir Sighvatur.
Eftir að Sighvatur gerði athuga-
semd hjá forsetaembættinu fékk
Jón Baldvin boðsbréf, aðeins
fjórum dögum fyrir viðburðinn.
Ólíðandi er, að sögn Sighvats, að
íslensk stjórnvöld komi þannig fram
við mann sem hafi verið sýknaður
fyrir dómstólum af þungum sökum.
„Honum er útskúfað frá viðburði
um sjálfstæði ríkja sem hann átti
stærstan persónulegan þátt í að
fengu sjálfstæði. Ríkin sem eiga
þarna fulltrúa eru margbúin að
veita Jóni æðstu heiðursmerki."
Jón Baldvin staðfestir að hafa ekki
vitað af þinginu fyrr en hann fékk
boðsbréf í tölvupósti seint í fyrradag.
Þá hafi honum verið boðið að hlýða
á fyrirlestur forseta Íslands og hinna
forsetanna þriggja frá Eystrasalts-
ríkjum, en þar sem hann haldi til
á Spáni hafi hann ekki getað þegið
boðið með svo skömmum fyrirvara.
„Ég skil ekki af hverju menn eru
svo lítilsigldir," segir Jón Baldvin.
Hann bendir á að HÍ sem standi að
viðburðinum í Háskólabíói sé sami
skóli og hafi sett hann í starfsbann
árið 2015, svipt hann kennslu.
„Ég virðist vera í starfs- og fram-
komubanni.“ ■
Ætluðu sér að hundsa Jón Baldvin
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra voru fyrstu tveir farþegarnir í fyrsta farþegafluginu á rafmagnsflugvél, stutta leið yfir Vesturbæ Reykjavíkur og Álftanesið.
Vélin er af gerðinni Pipistrel og er 100 prósent knúin af rafmagni, en það var félagið Rafmagnsflug sem stóð að viðburðinum á Reykjavíkurflugvelli i gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK