Fréttablaðið - 24.08.2022, Page 6

Fréttablaðið - 24.08.2022, Page 6
Hlutfall varðveislu á Íslandi er næsthæst á eftir Írlandi. Samkvæmt nýrri fjölþjóðlegri rannsókn byggðri á vistfræði, hafa vísindamenn reiknað út hversu stór hluti miðalda- sagna hafi varðveist. Ísland kemur ágætlega út í rann- sókninni. kristinnhaukur@frettabladid.is VÍSINDI Ný líffræðileg rannsókn á miðaldahandritum gerir ráð fyrir að um fjórðungur íslenskra miðaldasagna sé glataður. Þetta er skárra hlutfall en mælist víða ann- ars staðar í Evrópu, þar sem gert er ráð fyrir að allt að 70 prósent sagna séu glötuð. Hin fjölþjóðlega rannsókn ber titilinn Forgotten Books: The app- lication of unseen species models to the survival of culture, og var leidd af Mike Kestemont hjá Háskólanum í Antwerpen. Ólíkt öðrum rann- sóknum á miðaldasögum byggðist hún á líffræðilegri, það er vistfræði- legri aðferð, sem hin taívanska Anne Chao við Tsing Hua háskóla þróaði. Hún er einn af meðhöfundum rann- sóknarinnar. Þrátt fyrir að íslenskar sögur væru til rannsóknar kom eng- inn íslenskur fræðimaður að henni. Hin vistfræðilega aðferð Chao gengur út á að finna fjölda þeirra tegunda sem sjást ekki í venjulegum rannsóknum, byggt á þeim vísbend- ingum sem finnast í gögnunum. Til að aðferðin myndi ganga upp þurfti að líta á hverja miðaldasögu sem tegund lífveru og hvert handrit sem tilfelli þar sem sú tegund sást. Með aðferðinni var hægt að kortleggja hvert málsvæði sem var til rannsóknar líkt og einstök vist- kerfi. Það er sögur á ensku, frönsku, þýsku, hollensku, írsku og íslensku. Einnig að áætla gróflega hversu stór hluti af miðaldasögum frá hverju svæði hefur varðveist til dagsins í dag. Hvað Ísland varðar voru til rannsóknar Íslendingasögur, forn- aldarsögur og riddarasögur. Samkvæmt rannsókninni hefur mest varðveist á Írlandi, á bilinu 73 til 81 prósent. Þar á eftir kemur Ísland með 72 til 77 prósent. Höf- undar rannsóknarinnar velta því fyrir sér hvort að staðsetning Írlands og Íslands sem eyjur, og fólksfæð, hafi hjálpað til við að halda utan um sagnaarfinn. Á móti því kemur að verst hafa miðaldasögur varðveist í Englandi, aðeins á bilinu 31 til 39 prósent, þrátt fyrir að England sé eyja. Kestemont og félagar reiknuðu það einnig út að 65 til 79 prósent þýskra miðaldasagna hefðu varð- veist, 37 til 53 prósent franskra og 42 til 49 prósent hollenskra. Alls gerðu þeir ráð fyrir að um þriðjungur allra miðaldasagna sé glataður og mikill meirihluti, um 90 prósent, allra handrita sem þær voru ritaðar á. Hvert íslenskt skólabarn lærir það að mörg af íslensku handrit- unum voru endurnýtt í nauðsynja- vörur, svo sem klæðnað. Einhver hluti hefur svo glatast í húsbrunum eða einfaldlega morknað í slæmum geymslum. Sum handrit Árna Magnússonar brunnu í Kaup- mannahöfn árið 1728. Það sama á við um handrit ann- ars staðar í álfunni. Sum brunnu eða morknuðu. Önnur voru skorin niður og endurnýtt í klæðnað eða notuð til þess að pakka kjöti. n Fjórðungur af íslenskum miðaldasögum sé glataður Silvia Hufnagel rannsakar pappír og vatnsmerki í íslenskum handritum á Árnastofnun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK arnartomas@frettabladid.is MEXÍKÓ Mexíkóski blaðamaðurinn Fredid Roman var skotinn til bana á mánudag, eftir að hafa birt færslu á netinu um hvarf 43 námsmanna fyrir átta árum. Færslan beindist að atburði þar sem 43 námsmenn hurfu árið 2014 þegar þeir voru á leið til mótmæla. Þeir voru að sögn handteknir af lög- reglumönnum, sem áttu í samráði við skipulagða glæpastarfsemi. Nokkrum tímum áður en hann var myrtur birti Roman færslu á Facebook þar sem hann minntist á meintan fund fjögurra emb- ættismanna sem átti sér stað þegar námsmennirnir hurfu. Þar á meðal fyrrverandi dómsmálaráðherra Mexíkó. Roman er f immtándi blaða- maðurinn sem hefur verið myrtur í landinu það sem af er ári, sam- kvæmt mexíkóskum fjölmiðlum. Fréttamenn án landamæra telja Mex íkó hæt t u lega st a la nd ið þar sem ekki geisar stríð, en um 150 blaðamenn hafa verið myrtir þar frá árinu 2000. n Blaðamaður myrtur eftir færslu arnartomas@frettabladid.is EVRÓPA Evrópa stendur frammi fyrir sínum verstu þurrkum í að minnsta kosti 500 ár, samkvæmt ný útgef inni sk ýrslu Evrópska þurrkaeftirlitsins. Þar er varað við hættu á, og vegna þurrka á, um tveimur þriðju hlutum Evrópu. „Þeir miklu þurrkar sem hafa haft áhrif á mörg svæði í Evrópu frá ára- mótum hafa stækkað enn frekar og versnað frá og með byrjun ágúst,“ segir í skýrslu stofnunarinnar sem rekin er á vegum Evrópusambands- ins. Áhrif þurrkanna eru fjölþætt en þau geta meðal annars verið skaðleg fyrir náttúru og lífríki, landbúnað og raforkuframleiðslu. n Versti þurrkur Evrópu í hálft árþúsund Mexíkó er eitt hættulegasta land heims fyrir blaðamenn. Lindoso vatns- bólið í Ourense héraði á Spáni er að þorna upp. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Vilt þú sitja ASÍ þing fyrir VR? VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK SÍMI 510 1700 WWW.VR.IS VR óskar eftir frambjóðendum meðal félagsfólks á framboðslista stjórnar og trúnaðarráðs félagsins. Ákveðið hefur verið að viðhafa listakosningu með allsherjaratkvæðagreiðslu um þing- fulltrúa VR á þing Alþýðusambands Íslands dagana 10.–12. október næstkomandi. Ef þú vilt gefa kost á þér á listann sem þingfulltrúi VR á þinginu vinsamlega sendu tölvupóst á anna@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi þann 1. september næstkomandi með upplýsingum um nafn, kennitölu og starfssvið. Þar sem fjöldi er takmarkaður er ekki hægt að lofa að öll sem bjóða sig fram muni hljóta sæti á listanum. Einnig verður stillt upp lista varaþingfulltrúa sem oftar en ekki þarf að grípa til þar sem algengt er að fólk heltist úr lestinni er nær dregur. kristinnhaukur@frettabladid.is LITÁEN Samk væmt Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra Litáéns, eru fimm ríki að íhuga að mynda bandalag til að banna vega- bréfsáritanir rússneskra ríkisborg- ara. Auk Litáen eru þetta Finnland, Pólland, Lettland og Eistland. En hið síðastnefnda hefur þegar stöðvað áritanir Rússa. „Heildarlausn fyrir allt Evrópu- sambandssvæðið yrði besta og laga- lega réttasta leiðin,“ sagði Lands- bergis við fréttastofuna AP. „En ef slík lausn næst ekki útilokum við ekki lausn fyrir þetta svæði.“ Löndin fimm eiga öll landamæri að Rússlandi og rússneskir ferða- menn hafa streymt yfir landa- mærin og inn á Schengen svæðið alveg síðan stríðið í Úkraínu hófst fyrir hálfu ári. Evrópusambandið hefur sett á f lugbann og hafnbann en verið tregt til þess að banna vega- bréfsáritanir. Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur til dæmis sagt að það sé ekki réttlátt að rússneskir ferðamenn geti spókað sig um í Evr- ópu á meðan Rússar heyja blóðugt stríð í Úkraínu. Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, er meðal þeirra sem ekki hafa viljað banna komu rúss- neskra ferðamanna. Einnig Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkis- ráðherra Íslands. Þann 31. ágúst fer fram óform- legur fundur allra utanríkisráð- herra Evrópusambandsríkjanna. Málið mun verða tekið fyrir á þeim fundi. n Fimm ríki vilja banna komu Rússa Löndin fimm eiga öll landamæri að Rússlandi 6 Fréttir 24. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.