Fréttablaðið - 24.08.2022, Side 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 24. ágúst 2022
Spies tældi mjög ungar stúlkur og
gerði þær að kynlífsþrælum.
elin@frettabladid.is
Danska ríkissjónvarpið, dr.dk
sýndi nýja heimildarmynd í
þremur þáttum um ferðaskrif-
stofukónginn Simon Spies í fyrra-
kvöld. Þátturinn hefur vakið hörð
viðbrögð, umtal og reiði í sam-
félaginu. Spies var frægur, auðugur
og partíglaður á sjötta og sjöunda
áratugnum. Reiði fólks beinist að
því hvernig hann tældi mjög ungar
stúlkur, allt niður í 15 ára, með
glæsilegum gjöfum og ferðalögum
og gerði þær að kynlífsþrælum
sínum. Hann var meira en 40 árum
eldri en stúlkurnar.
Í fyrsta þættinum segir systir
einnar þeirra frá lúxusnum sem
Spies bauð stúlkunum upp á, en
henti þeim síðan út þegar þær
urðu 18 ára. Systirin lést úr alnæmi
aðeins 25 ára. Flestar stúlkurnar
fóru illa út úr lífinu eftir að þær
fóru frá Spies. Þættirnir nefnast
Spies og morgenbolledamerne,
en það var nafnið sem ferðaskrif-
stofukóngurinn notaði á þræla
sína.
Vissu um lúxuslífið
Ferðaskrifstofa hans er enn til
og hafa sumir bent á að breyta
þurfi nafni hennar í ljósi fortíðar
fyrrverandi eiganda. Danskir
fjölmiðlar segja að þættirnir séu
mikilvægir þótt margir hafi vitað
um líferni og lúxuslíf Spies á sínum
tíma og fólk hafi lokað augunum
gagnvart því. Aðrir segja að tím-
arnir hafi breyst en sannarlega
megi líkja Spies við Jeffrey Epstein.
Spies lést 1984. ■
Spies vekur reiði
í Danmörku
Malín Agla Kristjánsdóttir er í dag einkaþjálfari en stundaði áður samkvæmisdans í sextán ár og dansaði meðal annars í Allir geta dansað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sixpakk, flottir
bís og gellurass
Malín Agla Kristjánsdóttir temur kroppa í starfi
sínu sem einkaþjálfari, en segir að hún gæti þó
borðað kleinuhringi á hverjum degi ævina út. Hún
segir eftirsóknarvert að eiga sterkan líkama. 2
thordisg@frettabladid.is
„Ég hef glímt við kvíða og þung-
lyndi síðan ég man eftir mér, og
að mínu mati helst andleg og
líkamleg heilsa í hendur. Það er
bein tenging á milli þess að hreyfa
sig, borða vel og að líða vel. Hug-
takið „þú ert það sem þú borðar
og gerir“ er réttara en fólk kannski
pælir í. Sjálfri líður mér mun betur
líkamlega sem og andlega þegar
ég fæ öll næringarefni og vítamín í
gegnum fæðuna og þegar ég hreyfi
mig reglulega. Svo langar mig bara
til að vera sterk og líða vel. Það er
engin betri tilfinning en að treysta
líkama sínum og líða vel í honum,
og mér finnst bara algjör forrétt-
indi að vera hraust og heilbrigð og
fá að hreyfa mig á hverjum degi.“
Þetta segir Malín Agla Kristjáns-
dóttir, um ástæður þess að hún
leggur áherslu á að rækta bæði
líkamlega og andlega heilsu í starfi
sínu sem einkaþjálfari.
„Bara það eitt að mæta á æfingu,
hreyfa mig, svitna og fá útrás, getur
breytt skapi mínu og deginum, ef
ég á slæman dag. Það lagar kannski
ekki öll heimsins vandamál en
gerir svo sannarlega eitthvað gott.“
Fann ástríðuna í óvissu Covid
Malín Agla er 27 ára, uppalin í
Grafarvogi en býr nú með manni
sínum og barni í Laugardalnum.
„Ég eignaðist mitt fyrsta barn í
apríl 2020. Þá hafði Covid nýlega
numið hér land og ég neyddist
til að æfa heima. Það var þá sem
ég fann að ég hafði mikla ástríðu
fyrir líkamsrækt. Ég hlakkaði til að
taka æfingu á hverjum degi og mig
langaði að nýta reynslu mína sem
íþróttakona til að hjálpa öðrum að
lifa raunsæjum, heilbrigðum lífs-
stíl. Ég fann hvað hreyfingin hafði
góð áhrif á andlega líðan í allri
óvissunni sem fylgdi Covid,“ segir
Malín Agla.
Í dag starfar hún við einka-
þjálfun í World Class Vatnsmýri
og Laugum og nýtur sín mjög í
starfinu.
„Mér finnst ekkert skemmti-
legra en að hjálpa fólki að átta sig
á styrkleikum sínum og kenna
því að trúa á sjálft sig. Margir sem
mæta til mín eru að stíga sín fyrstu
skref í líkamsræktarstöðinni og
átta sig ekki á að maður getur bók-
staflega allt sem maður ætlar sér ef
vilji og áhugi er til staðar. Það þarf
nefnilega ekki að vera leiðinlegt
að hreyfa sig; það snýst bara um að
finna hreyfingu sem manni þykir
skemmtileg.“
Engin endastöð til í heilsurækt
Malín Agla hefur verið í íþróttum
frá unga aldri.
„Ég æfði meðal annars listskauta
og var í samkvæmisdansi í sextán
ár. Ég hætti að dansa um tvítugt
og tók mér þá árs frí þar sem ég
vann baki brotnu en hreyfði mig
lítið sem ekkert. Ég fann fljótt að
það hentaði mér illa, ég hef alltaf
verið svolítið ofvirk og ákvað því
að prófa að mæta í ræktina með
vinkonum. Það var þó ekki fyrr en
ég kynntist manninum mínum,
Svavari Ingvarssyni, sem starfað
hefur í átta ár sem einkaþjálfari
í Hreyfingu, að ég byrjaði að æfa
fyrir alvöru og áhuginn fór upp úr
öllu valdi,“ greinir Malín Agla frá.
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is