Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 17
Mér líður svo ótrúlega vel eftir hverja fjallgöngu og ég fæ svo mikla andlega nær- ingu og hreyfingu með þessum fjallaferðum. Guðríður Guðjónsdóttir Guðmundur Hilmarsson gummih @frettabladid.is Frænkurnar og gömlu hand- boltakempurnar úr Fram og landsliðinu, Guðríður Guð- jónsdóttir og Sigrún Blom- sterberg, eru sannkallaðar fjallageitur. Þær stöllur tóku upp á því fyrir nokkrum árum að byrja að ganga á fjöll og síðan þá hefur ekki verið aftur snúið. „Við báðar höfum litið á fjall- göngu sem líkamsrækt. Þetta hófst fyrir nokkrum árum. Við vildum prófa eitthvað nýtt og byrjuðum á því að ganga upp á Úlfarsfell og Helgafell. Við duttum strax í gírinn og síðastliðin þrjú sumur höfum við verið að fara á fleiri staði, bæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eins og á Vífilfellið, fellin í Mosó, Móskarðshnjúka og á fleiri staði. Við fórum til að mynda Laugaveg- inn í fyrra sem var alveg ótrúlega gaman. Við erum báðar þannig að ef okkur dettur í hug að fara eitthvað, þá erum við bara farnar,“ segir Guðríður. Guðríður, eða Gurrý eins og hún oftast nefnd, á glæsilegan handboltaferil að baki en hún var um árabil besta handboltakona landsins og saman unnu hún og Sigrún fjölmarga titla með Fram og léku báðar með landsliðinu. Guð- ríður lék 84 landsleiki og skoraði í þeim 382 mörk og Sigrún spilaði 31 landsleik og skoraði í þeim 48 mörk. Geðgöngurnar og geðlyfin Guðríður segir það fara eftir veðri Er orðin ákveðin fíkn Á toppi Vífilfells sem er í miklu uppáhaldi hjá Guðríði og Sig- rúnu. MYND/AÐSEND og vindum hversu oft þær gangi á fjöll í hverri viku. „Ég myndi segja að við förum í fjallgöngu að meðaltali tvisvar - þrisvar í viku og skiptir þá engu máli hvort það sé vetur eða sumar. Við grínuðumst með það í Covidinu að þetta væru geðgöngurnar okkar og geðlyfin. Við fáum svo mikið út úr þessu og það má segja að þetta sé orðin ákveðin fíkn. Okkur langaði að ganga Grænahrygg í Landmanna- laugum í fyrrasumar en komumst ekki. En um daginn skelltum við okkur í dagsferð þangað og það var alveg magnað. Við höldum áfram að fara á Vífilfellið, Helgafellið og Úlfarsfellið, en svo erum við alltaf að ganga á fleiri staði og þar ég nefnt Sköflung á Hengilssvæðinu, Hengilinn, gönguleiðir á Hellis- heiði og Akrafjallið. Þá höfum við farið upp á mörg fjöll í Hvalfirð- inum. Það eru endalausir mögu- leikar,“ segir Guðríður. Er eitthvað fjall í uppáhaldi hjá ykkur? Vífilfellið er alltaf í svolitlu uppáhaldi hjá okkur og það er líka mjög gaman að fara á Móskarðs- hnjúkana. Í fyrra fórum við á Hafnarfjall og gengum á hæsta tindinn sem er Gildalshnúkur. Það var virkilega góð ferð. Útsýnið þar uppi var frábært og við sáum til að mynda eldgosið, horfðum yfir Borgarnes og í Hvalfjörðinn. Ég var oft búin að líta á Hafnarfjallið þegar ég var á ferð upp í Borgarnes og segja við mig sjálfa: Þarna er maður ekkert að fara. En við létum slag standa,“ segir Guðríður. Gurrý segist hætt að fara á lík- amsræktarstöðvarnar og velji nú alfarið að stunda sína líkamsrækt með því að ganga á fjöll. „Mér líður svo ótrúlega vel eftir hverja fjall- göngu og ég fæ svo mikla andlega næringu og hreyfingu með þessum fjallaferðum. Við frænkurnar, sem vorum saman í handboltanum í gamla daga, erum svo líkar í hugsun. Við löbbum á svipuðum hraða og lítum eins á hlutina. Þegar við setjumst inn í bíl eftir fjallgöngurnar segjum við: Djöfull var þetta æðislegt,“ segir Guðríður, sem tók sér smá pásu frá fjalla- bröltinu í júní í sumar. Þá skellti hún er sér í viku hjólaferð með gömlum útskriftarskólafélögum úr Íþróttakennaraskóla Íslands til Ítalíu þar sem hópurinn hjólaði 300 kílómetra um Veneto héraðið á Ítalíu. „Þetta var þriðja hjólaferðin sem við hjónin förum með þessum hópi. Fyrsta ferðin var um eyjarnar fyrir utan Split í Króatíu, svo var það Ungverjaland og nú Ítalía. Þetta voru allt æðislegar ferðir. Ég myndi segja að mín hreyfing í dag sé klárlega útivera.“ n Snyrti- og förðunarfræð- ingurinn Maríanna Páls- dóttir byrjaði að nota Húð, hár og neglur frá ICEHERBS fyrir ári og hefur tekið eftir miklum jákvæðum áhrifum. Hún segir þetta frábæra viðbót við að sjá vel um heilsuna og finnst gott að geta stutt íslenska fram- leiðslu. „Ég tek Húð, hár og neglur frá ICEHERBS því ég hugsa mikið um heilsuna og mér finnst mikil- vægt að halda húðinni, hárinu og nöglunum heilbrigðum og í besta mögulega ástandi,“ segir Maríanna Pálsdóttir snyrti- og förðunarfræðingur. „Ég hef notað þetta markvisst í heilt ár og finn mikinn mun. Mér finnst þetta frábær við- bót við annað sem ég geri fyrir heilsuna, en hjá mér snýst þetta um heildræna nálgun,“ segir Maríanna. „Það þarf að drekka mikið vatn, hreyfa sig og hugsa um andlega heilsu til að halda heilbrigði og líta sem best út og mér finnst vítamín og fæðubótar- efni of boðslega góð viðbót við allt annað sem ég geri.“ Gott að styðja íslenska framleiðslu „Ég hef mikinn áhuga á vítamín- um og fæðubótarefnum og stoppa alltaf við vítamínrekkann úti í búð til að skoða það sem er í boði. Það var þannig sem ég fann Húð, hár og neglur,“ segir Maríanna. „Það vakti athygli mína að þetta er 100% íslensk vara og mér finnst mjög gott og mikilvægt að styðja við allt sem er framleitt hérna á Íslandi. Ég tek öllu svona með fyrirvara og er aldrei með sérstakar vænt- ingar þegar ég prófa eitthvað nýtt, en ef ég finn að hlutirnir virka er ekki aftur snúið,“ segir Maríanna. „Þá held ég bara áfram, til hvers að hætta eða breyta því sem er gott og virkar?“ Hefur fundið mikinn mun „Eftir að ég byrjaði að nota þessa vöru hef ég tekið eftir því að neglurnar eru sterkari og mér finnst húðin hafa aukinn stinn- leika og vera meira glóandi. Ég myndi því 100% mæla með Húð, hár og neglur frá ICEHERBS,“ segir Maríanna. „Ég mæli almennt með því að fólk taki vítamín og fæðubótarefni og mér finnst mjög fallegt þegar fólk ákveður að kaupa íslenska framleiðslu, því þá þekkirðu framleiðsluferlið og veist hvað þú ert að taka. Ég hef líka notað Túrmerik frá ICEHERBS, en ég hef átt það til að bólgna í liðum og finn hvernig það hjálpar við að losa bólgur, enda er það öflugt andoxunarefni,“ segir Maríanna. „Ég finn mikinn mun ef ég er dugleg að taka það.“ Náttúruleg blanda úr íslenskum þörungum Húð, hár og neglur er öflug og náttúruleg þarablanda úr tveimur íslenskum sæþörungum, Asco- phyllum nodosum og Laminaria digitata. Hylkin eru stútfull af steinefnum og vítamínum sem hafa góð og nærandi áhrif á húð, hár og neglur. Sæþörungar eru þekktir sem ofurfæða hafsins og þeir eru sérstaklega þekktir fyrir virk áhrif sín á húð, hár og neglur. Þeir hafa einnig gríðarlega hreinsandi áhrif á líkamann og blandan inniheldur ríkulegt magn steinefna og trefja, ásamt joði. Hrein náttúruafurð ICEHERBS er íslenskt fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni. Lögð er gríðarleg áhersla á að vörur ICEHERBS nýtist viðskiptavinum vel, að virknin skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Gríðarleg áhersla er lögð á að vörurnar innihaldi engin óþarfa fylliefni og vörurnar eru framleiddar hér á landi. n Húð, hár & neglur frá ICEHERBS fæst í öllum apótekum og heilsuvöruverslunum, stórvöru- mörkuðum og einnig í vefverslun ICEHERBS, sem sendir heim að dyrum. Sjá nánar á iceherbs.is. Glóandi og stinnari húð með sterkari neglur Maríanna Pálsdóttir, snyrti- og förðunarfræðingur, er mjög ánægð með Húð, hár og neglur frá ICEHERBS. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Húð, hár og neglur er öflug og náttúruleg þarablanda úr tveimur íslenskum sæþörungum. ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 24. ágúst 2022

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.