Mosfellingur - 11.03.2022, Qupperneq 28
- Unga fólkið28
viðtal
þorstein leó
við undrabarnið
Kvartanir og leiðindi
s e n d i st á n e t fa n g i ð
steinaeyjan@gmail.com
Birkir og Eyþór
Jæja þorsteinn, það mætti segja að þú hafir
slegið í gegn með Aftureldingu á þessu
tímabili, hvernig finnst þér þú hafa staðið
þig?
Þetta er búið að vera fyrst og fremst fínt tímabil fyrir
mig, mætti samt segja að þetta hafi verið betra tíma-
bil fyrir liðsfélaga mína vegna þess að þeir fá að sjá
mig í sturtunni, kannski tekið eftir því að sjálfstraustið
hjá sumum hefur hrapið eftir komu
mína í meistaraflokkinn.
það hafa verið
tekin mörg
viðtöl við
þig núna í
fjölmiðlum
og þú varst
í sjónvarps-
þættinum
Seinni
bylgjan,
hvernig er að
vera orðinn
sjónvarpstjarna?
Jújú, það er bara
ágætt myndi ég segja. Þetta væri kannski
erfitt fyrir Meðal-Jóna þarna úti en andlitið á
mér á heima í sjónvarpinu, þeir vilja fá mig
oftar til að fá áhorf hjá kvenmönnunum upp
og ég skil það alveg 100 prósent.
Hvert stefnirðu að ná
í boltanum?
Draumurinn hefur alltaf verið að
enda ferilinn hjá Kríunni í Grill-
66 deildinni, auk þess kitla
Þýskalandið og Spánn
aðeins.
Hefur Halli
bæjó gert
eitthvað
til að bæta
aðstöðuna
og umgjörðina
þarna hjá ykkur
í handboltanum
síðastliðin ár?
Nei, þetta er ekki golf.
þú hefur spilað mikið í hægri skytt-
unni í staðinn fyrir vinstri, hvernig
leggst það í þig?
Það er bara fínt, maður fer bara inn í leiki
til að vinna sama hvaða stöðu ég spila og
fínt að skora líka eitthvað þarna, lærði
það á B5 í sumar það er alltaf
skemmtilegra að skora ;) og
eins og þið í Steinaeyjunni
vitið hjálpa ég líka liðsfélög-
um mínum að skora, segir
Þorsteinn kokhraustur og
smælar.
Eftir þetta frábæra viðtal
við Þorstein höfum við í
Steinaeyjunni áttað okkur
á því að framtíðin er björt í
Mosfellsbænum okkar fagra.