Fréttablaðið - 08.09.2022, Síða 2
Niðurstaðan felst í því
að verklagið við bið-
listana stenst ekki lög.
Flóki Ásgeirs-
son, lögmaður
Kjartans
Sjerpi við akkeri í Reykjavíkurhöfn
Lystisnekkja breska milljarðamæringsins Jims Ratcliffe, hin svonefnda Sherpa, liggur nú við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Ratcliffe gaf snekkjunni nafnið Sherpa
vegna gríðarlegs burðarþols hennar, eftir sjerpum þeim sem frægir eru fyrir fjallgöngur sínar í Himalajafjöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Faxafeni 12
Allar nánari upplýsingar á vefsíðu
skákhreyfingarinnar, skak.is
eða í síma 5689141.
Námskeið
Skákskóla Íslands 2022
hefjast 10. september nk.
Byrjendaflokkar Skákskóla Íslands fyrir krakka á aldrinum
6 – 10 ára hefjast laugardaginn 10. september nk. kl. 11.
10 vikna námskeið – Fyrsti tími er prufutími.
Námskeið fara fram í húsnæði Skákskóla Íslands
að Faxafeni 12. Gengið inn við hlið 66° Norður.
Fyrirspurnir og skráningar á skáksamband@skaksamband.is
Þroskahamlaður maður vann
í vikunni fullnaðarsigur í
máli gegn Reykjavíkurborg.
Borgin hefur ákveðið að una
dóminum og áfrýja ekki til
Landsréttar.
helenaros@frettabladid.is
DÓMSMÁL Kjartan Ólafsson, 25
ára þroskahamlaður maður með
Downs-heilkenni, vann í vikunni
fullnaðarsigur í máli sínu gegn
Reykjavíkurborg. Málið höfðuðu
foreldrar Kjartans, fyrir hans hönd,
í apríl 2020 vegna verklags borgar-
innar í kringum biðlista fatlaðra
eftir húsnæði með þjónustu.
Hér að s dómu r Reyk jav í k u r
dæmdi Kjartani í hag 16. júní 2021
en borgin gat ekki unað dóminum
og áfrýjaði til Landsréttar. Málið
var á dagskrá Landsréttar á morgun,
föstudag, en borgin ákvað í vikunni
að falla frá áfrýjun sinni og una
dómi héraðsdóms.
Flóki Ásgeirsson, lögmaður Kjart-
ans, fagnar niðurstöðunni og segir
hana mjög fordæmisgefandi fyrir
fatlaða einstaklinga sem enn eru á
biðlistum borgarinnar. „Niðurstað-
an felst í því að verklagið við bið-
listana stenst ekki lög,“ segir Flóki
og bætir við að grundvallarástæðan
sé sú að biðlistarnir hafi ekki falið í
sér neina röðun umsækjenda. Þeir
hafi allir verið settir í biðflokk og
úthlutun hverju sinni hafi verið
gerð á mjög óljósum forsendum.
„Biðtíminn virðist ekki hafa skipt
neinu máli,“ segir Flóki. Einstakl-
ingar hafi allt eins getað átt von á
óendanlegri bið og aðferðafræðin
standist ekki lög.
Fréttablaðið f jallaði um mál
Kjartans og foreldra hans í maí
síðastliðnum en hann hefur verið
á biðlista eftir húsnæði með þjón-
ustu á vegum borgarinnar í sjö ár.
Þau höfðu lengi leitað svara hjá
borginni um hvar Kjartan væri á
biðlistum og hvenær hann gæti átt
von á úthlutun en svör voru aldrei á
reiðum höndum.
Ragnheiður Gunnarsdóttir, móðir
Kjartans, segir niðurstöðuna mik-
inn sigur fyrir alla. „Ég er í skýjunum
fyrir hönd Kjartans og að Reykja-
víkurborg skuli átta sig á þessu. Það
geta allir breytt betur og það er verið
að taka tímamótaákvörðun um að
viðurkenna rétt fatlaðra á að vita
hvenær þeir fá búsetu. Hvort sem
það er eftir eitt ár eða tíu. Það fá ekki
allir búsetu á morgun en það skiptir
máli að fá þetta svar.“
Ólafur Hilmar Sverrisson, faðir
Kjartans, tekur undir með Ragn-
heiði. „Þetta er mikið gleðiefni og
niðurstaða sem maður átti alls ekki
von á, því það var búið að áfrýja,“
segir Ólafur og bætir við að borgin
sýni kjark með því að stíga til baka.
Fréttablaðið leitaði til borgar-
lögmanns í byrjun vikunnar vegna
málsins og fékk þau svör að borgin
tjáði sig almennt ekki um dómsmál
á meðan þau væru enn til meðferðar
við dómstóla.
Síðar sama dag samþykktu for-
eldrar Kjartans boð frá borginni
um íbúð fyrir hann og í sömu
andrá barst Flóka tilkynning frá
borgarlögmanni um að borgin hefði
ákveðið að falla frá áfrýjun sinni.
Fréttablaðið óskaði því aftur svara
í gær og þegar blaðið fór í prentun
höfðu engin svör borist. n
Verklag við biðlista fatlaðra
eftir íbúð standist ekki lög
Kjartan Ólafsson í gróðurhúsinu í Bjarkarási en hann vann mikilvægan sigur
gegn borginni í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Hafnarfjarðarbær
hefur ákveðið að segja upp samn-
ingi um viðtöku skólps frá Garða-
bæ. Í ljósi mikillar uppbyggingar í
bænum og aukins álags getur frá-
veita Hafnarfjarðar ekki lengur
tekið við skólpi nágrannanna eins
og gert hefur verið síðustu tólf árin.
Uppsögnin tekur gildi á næsta ári.
Samkvæmt sviðsstjóra umhverf-
is- og tæknisviðs Garðabæjar er
tíminn of stuttur til að hægt sé að
klára nýja dælustöð og lagnir.
Ákvað bæjarráð að fela bæjarstjóra
að hefja viðræður við nágrannana
varðandi samstarf um hönnun og
tímasetta verkáætlun vegna lausna
á fráveitumálum. n
Garðabæjarskólp
ekki lengur til
Hafnarfjarðar
bth@frettabladid.is
ALÞINGI Guðmundur Björg vin
Helgason ríkisendurskoðandi segir
að skýrslan um söluna á bréfum
Íslandsbanka sé á lokametrunum.
„Við vonumst til að geta sett
skýrsluna í umsagnarferli á næstu
dögum,“ segir Guðmundur.
Einhvern tíma mun taka að vinna
úr viðbúnum athugasemdum og
ábendingum. „En ég ætla að halda
mig við að við náum að klára þessa
vinnu í september,“ segir Guð-
mundur.
Um fimm manns hafa komið að
skýrslugerðinni hjá embættinu að
sögn Guðmundar. Einnig hafa verið
kallaðir til sérfróðir utanaðkom-
andi fjármálaráðgjafar. Vinnan við
skýrslugerðina varð umfangsmeiri
en embættið sá fyrir í upphafi, að
hans sögn.
„Verkið er vandasamt og við
þurfum að vinna það vel.“
Þegar skýrslan verður tilbúin fer
hún til forseta Alþingis og þaðan
væntanlega til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar.
Vænta má þess að sama dag og
skýrslan fær kynningu í þingnefnd-
inni verði hún sett á netið. n
Íslandsbankaskýrslan á lokametrum
Garðabær þarf að huga að skólpinu
næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Fimm manns hafa komið að gerð
skýrslunnar, að sögn Guðmundar.
2 Fréttir 8. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ