Fréttablaðið - 08.09.2022, Side 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Lovísa útskrifaðist sem klæðskeri
árið 2015 og lauk meistaraskól-
anum árið 2019 en hún lauk starfs-
náminu í versluninni Ella ehf. sem
seldi íslenska hönnun.
„Þar kynntist ég því að hanna
og sauma flíkur. En seinna fór ég
að vinna í Kjólum og konfekti, þar
eru litríkir og oft svolítið tjúll-
aðir kjólar svo það kom svolítið
af sviðslistafólki og tónlistarfólki
þangað inn,“ segir Lovísa.
„Ég var að hanna og sauma kjóla
til að selja í búðinni og tók svo
aukalega að mér verkefni fyrir
sviðslistafólk sem ég komst í kynni
við í gegnum vinnuna í verslun-
inni. Mikið af dragdrottningum og
fólki í búrlesk-senunni. Hjá Kjólum
og konfekti uppgötvaði ég að þetta
var algjörlega mitt, þessi glamúr,
glimmer og gleði.“
Lovísa segir vinnuna krefjandi
og kúnnana halda henni á tánum
enda vilja þeir flík sem vekur
athygli. Flík sem vekur athygli í
sýningunni en þarf um leið að
virka vel.
„Sviðslistafólkið er með alls
konar sviðsframkomu, það er að
dansa og leika alls kyns listir og
flíkin þarf að virka. Það verður að
vera hægt að hreyfa sig í henni.
Þannig að þetta er mjög krefjandi
en um leið ógeðslega skemmtilegt,“
segir Lovísa
Hannaði eigin línu
Eftir nokkur ár fór að verða svo
mikið að gera hjá Lovísu í sviðs-
búningasaumi að hún hætti
störfum hjá Kjólum og konfekti og
hóf að vinna sjálfstætt.
„Ég hellti mér út í það af fullum
krafti að sauma og hanna fyrir
sviðslistafólk og það var alltaf nóg
að gera, en svo kom Covid og allar
sýningar duttu niður. Þá varð ég að
finna mér eitthvað annað að gera,“
segir hún.
Lovísa brá þá á það ráð að hanna
og sauma sína eigin fatalínu og
opnaði vefsíðuna lovisatomas.is.
„Ég var þá að hanna og sauma
fatnað fyrir venjulegt fólk, ekki
bara sviðslistafólk. Ég gerði þetta
í gegnum allt Covid. Það var rosa-
lega skemmtilegt að hanna mína
eigin línu og þetta var lærdómsrík-
ur tími. Mig langar að gera meira
af því í framtíðinni að hanna eigin
línu og hafa hana þá aðeins stærri.
En ég er í pásu frá því núna. Það er
aftur orðið nóg að gera í að sauma
og hanna fyrir sviðslistafólk svo
hitt þarf að bíða,“ segir hún.
Lovísa gefur sér þó tíma til að
sauma föt á sjálfa sig en hún hefur
gaman af að ganga sjálf í litríkum
fötum.
„Ég elska að vera í pallíettum
og glimmeri. Það blundar drag-
drottning inni í mér. Ég hef gaman
af því að klæða mig áberandi þegar
ég fer eitthvað út. Þá sauma ég á
mig föt sem eru yfirleitt æpandi og
áberandi, það eru margar glimm-
erflíkur í fataskápnum. Ég er eins
og hrafninn, sæki í allt glingur og
glimmer. En dagsdaglega er ég bara
í kósígallanum.“
Geggjaður metnaður
Lovísa segir að það sé nóg að gera
hjá henni á meðan til er fólk sem
heldur sýningar.
„Það er svo geggjaður metnaður
hjá þessu listafólki. Þau koma oft
með mjög metnaðarfullar hug-
myndir og pælingar og maður þarf
að hugsa út fyrir boxið.“
Spurð að því hvort hún hafi
einhvern tímann fengið beiðnir
sem ómögulegt er að framkvæma
svarar Lovísa að hún reyni alltaf að
finna lausnir.
„Það var einu sinni dragdrottn-
ing sem bað mig að gera risastórt
stél sem átti að hanga uppi fyrir
aftan hana. Allt í einu var ég orðin
verkfræðingur og varð að finna út
úr því hvernig það átti að virka. Ég
notaði hænsnanet og húlahring
og var nánast komin með hamar
og nagla að græja stélið. En það
virkaði. Eins og ég segi, kúnnarnir
halda mér á tánum en ég segi alltaf
já og reyni að redda öllu,“ segir hún
og hlær.
Með bestu kúnnana
„Ég er búin að kynnast svo mikið
af skemmtilegu fólki í gegnum
starfið. Ég á minn kúnnahóp sem
kemur aftur og aftur til mín. Ég
er með bestu og skemmtilegustu
kúnnana, ég er svo þakklát og
heppin.“
Lovísa tekur sem dæmi að auk
þess fjöldaframleiði hún næstum
fatnað á Siggu Kling.
„Ég geri nánast nýtt átfitt í
hverri viku fyrir hana. Það er
alltaf allt í stíl hjá henni, buxur,
toppur, hattur og jakki, allt úr
sama efninu. Hún hringdi í mig um
daginn með tveggja tíma fyrirvara
þegar hún var að fara að skemmta
einhvers staðar. Þá var hent í kjól
og hatt. Það náðist á tíma og hún
var glæsileg.“
Eitt stærsta verkefni Lovísu fram
að þessu var þegar hún hannaði
búninga fyrir Daða og gagna-
magnið. Hún segir það hafa verið
ótrúlega skemmtilegt og hópurinn
geggjaður að vinna með.
„Það var ótrúlegt ævintýri að
fara út með þeim og dressa þau
upp. En ég þyrfti eiginlega að fara
út í Eurovision aftur einn daginn.
Þetta var öðruvísi reynsla en
venjulega af því það var svo mikið
af takmörkunum í gildi vegna
Covid. Það væri draumur að fara út
aftur þegar aðstæður eru venju-
legri. Ég stefni að því,“ segir hún.
Kannski ef þau senda glamúr-
drottningu út?
„Það væri algjörlega geggjað!“ n
Lovísa vann í versluninni Kjólar og
konfekt þegar hún komst í kynni
við alls kyns sviðslistafólk. Hún fór
að sauma og hanna fyrir það utan
vinnu og hellti sér svo í það á fullu
og hefur alltaf nóg að gera.
Lovísa hannar
og saumar
mikið af búr-
lesk-búningum.
Hér er Róberta
Michelle Hall á
sviði í djörfum
búningi.
MYND/ODYSSEAS
CHLORIDIS
Dragdrottning
Íslands 2019,
Gala Noir,
glæsileg í fötum
eftir Lovísu.
MYND/BIRTA RÁN
BJÖRGVINSDÓTTIR
Tónlistarveran Mighty bear í dularfullri hönnun eftir Lovísu. MYND/BIRTA RÁN BJÖRGVINSDÓTTIR
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Edgar Anderssen í gullfallegum síð-
kjól eftir Lovísu.
MYND/RÓBERT MAGNÚSSON
Húlladansarinn Róberta Michelle
Hall í flottum samfestingi.
MYND/ARCTIC IMAGE
Hún hringdi í mig
um daginn með
tveggja tíma fyrirvara
þegar hún var að fara að
skemmta einhvers
staðar. Þá var hent í kjól
og hatt.
2 kynningarblað A L LT 8. september 2022 FIMMTUDAGUR