Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 20
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB HaustyfirHafnir SKOÐIÐ LAXDAL.IS Förðunarfræðingurinn Natalie Kristín Hamzehpour á heiður af framúrstefnulegri förðun söngkonunnar Brí- etar. Hér fer hún yfir helstu trendin í haustförðun ársins. thordisg@frettabladid.is „Hún mamma er hárgreiðslu- kona og rak stofu í Þýskalandi öll mín uppvaxtarár. Hún seldi snyrtivörur á stofunni og ég var óþekki krakkinn sem komst í allar prufurnar og klíndi öllu framan í mig. Þar vann líka ein sem var förðunarfræðingur og ég hafði mjög mikinn áhuga á öllu sem hún gerði, fékk að „aðstoða“ hana og leika mér með gamlar vörur. Það var þá sem ég ákvað að verða förðunarfræðingur,“ segir Natalie Kristín Hamzehpour, 28 ára nýbökuð móðir, förðunarfræð- ingur, kennari, vörumerkjastjóri og áhugakokkur. Natalie er fædd og uppalin í Þýskalandi. Hún starfar nú sem vörumerkjastjóri á snyrtivörusviði og kennir förðun í Makeup Studio Hörpu Kára, en hefur einnig unnið við förðun í sjónvarpi, auglýsing- um og leikhúsum og segist fíla sig best í tískuförðun. Natalie fer yfir helstu tískutrend í förðun á hausti komanda. „Það sem er skemmtilegast við trend er að þar finnst alltaf eitt- hvað fyrir alla. Trendin sem mér finnast mest áberandi í haust eru: n Clean Girl Makeup – fersk húð, „ósýnileg“ hrein förðun, ferskur kinnalitur og heilbrigður ljómi. Til að ná því fram er best að nota krem-kinnalit, „bronzer“ og gott augabrúnagel, lítinn farða og frekar hyljara til að þekja það sem þarf. Svo eru varaolíur eða „lip tint“ mjög spennandi við þetta trend. n Áberandi varalitur – á undan- Íslenskar konur ótrúlega flinkar að farða sig Natalie segir best við trend í förðun að þar gildi engar reglur og allir geti verið eins og þeir vilja. MYND/ALDÍS PÁLSDÓTTIR Söngkonan Bríet vekur ætíð athygli fyrir svala förðun Natalie. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Staðalbúnaður í haust Hvaða hlutir eru ómissandi í snyrtibudduna á hausti komanda, að mati Natalie? n Nærandi varaolía með smá lit, eins og til dæmis Clarins Lip Comfort Oil. n Fallegur léttur farði sem frískar upp á þreytta húð. Minn uppáhalds þessa dagana er nýi Chanel Water Fresh Complexion Touch. n Rakabomba eins og Shi- seido Ultimune-serumið. Ekkert gerir jafn mikið fyrir húðina mína og sú vara. n Góðir förðunarburstar, eins og nýju burstarnir frá Hörpu Kára. Góðir bursta gera förðun fallegri og sjá eigin- lega um alla vinnuna fyrir mann. Ég hef ekki notað aðra bursta síðustu vikur og mæli mikið með þessum. Hægt er að fylgjast með Natalie á Instagram @natalie- hamzehpour. förnum árum hefur verið mikið um „nude“ varir og áberandi augu, en nú finnst mér ég sjá mikið um liti í varalitum, hvort sem það er „lip tint“ í berjalitum og léttum rauðum tónum, eða áberandi bleikur eða rauður varalitur. n Náttúrulegar augabrúnir – ég hafði smá áhyggjur af því að þunnar, plokkaðar augabrúnir væru að koma aftur en ég er fegin að það trend stoppaði stutt. Í staðinn eru augabrúnir náttúrulegri og mun ljósari en þær hafa verið á síðustu árum. Því er óþarfi að plokka of mikið eða fara í litun á þriggja vikna fresti. Leyfum augabrúnunum bara að vera náttúrulegum. n Euphoria Disco – ég held að það trend sé ekki að fara neitt. Glansandi glimmer og „metallic“ áferð, silfur augn- skuggi, glimmersteinar og „shimmer bodyolía“ verða áfram heit í haust. Listræn og skapandi Natalie á heiðurinn af frum- legri og áberandi förðun söngkonunnar Bríetar, svo eftir hefur verið tekið. „Samstarf okkar Bríetar hófst fyrir um fjórum árum þegar ég hélt viðburð fyrir Shiseido og var í leit að módeli. Mér fannst Bríet svo gullfalleg og ákvað að prófa að heyra í henni. Hún var til í að koma og leyfa mér að farða sig og síðan höfum við unnið saman,“ greinir Natalie frá. Hún segir Bríeti ákaflega list- ræna og skapandi þegar kemur að förðun. „Við vinnum mikið saman og skoðum alls konar hugmyndir til að finna eitthvað sem meikar sens og Bríeti líður vel með. Ég held að það hjálpi líka að við erum með svipaðan smekk þegar kemur að förðun, en Bríet er alltaf opin fyrir öllum skrýtnum hugmyndum og mjög dugleg að koma með tillögur sjálf.“ Flinkar í förðun Spurð hvort eitthvað beri að forðast í förðun eða sé alveg dottið úr tísku eftir sumarið, svarar Natalie: „Nei, svo sem ekki. Þetta eru auðvitað bara trend og hver má túlka þau eins og hann vill. Það besta við förðun er að þar gilda engar reglur. Ef manni líður vel og fílar sig vel; þá er maður að gera rétt.“ Sem kennari í Makeup Studio Hörpu Kára hefur Natalie komist að því að íslenskar konur séu einkar flinkar að mála sig og tolla í tískunni. „Ég hef kennt fjöl- mörgum íslenskum konum förðun, en einnig unnið með förðunar- fræðingum erlendis og verð að segja að við Íslendingar erum bara svo miklu klárari en allir aðrir,“ segir Natalie og hlær, en bætir svo við: „Nei, ég segi bara svona. Sannast sagna er mjög mikið um virkilega færa förðunarfræðinga hér á landi og meðalkonan kann alveg ótrúlega vel á förðun.“ Hún segir jafnframt gaman að fylgjast með því hvað ungar konur og unglingsstelpur eru góðar í að farða sig. „Þær hafa í dag aðgang að svo miklu fræðsluefni á til dæmis You- Tube og TikTok og nýta sér það. Auðvitað koma svo alltaf tímabil í tísku sem okkur þykja hræðileg eftir á en ég held að TikTok-trendin séu flest mjög falleg og ekki eins og „contour“-trendið sem mín kyn- slóð er sek um,“ segir Natalie kát í fæðingarorlofinu. „Í haust ætla ég líka að bæta við mig námi en ég tek að mér örfáar vel valdar farðanir, þá aðallega brúðarfarðanir og verkefni sem mér þykja skemmtileg.“ n Hægt er að fylgjast með Natalie á Instagram @ nataliehamzehpour. Góðir förðunarburstar létta vinnuna og gera förðun fallegri. Uppá- haldsfarði Natalie er frá Chanel. Shiseido- rakabomba er í dálæti Natalie. 4 kynningarblað A L LT 8. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.