Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Blaðsíða 58
58
jánsson. Gerir tilraunir með kornrækt, grasrækt, áburð,
garðyrkju o. fl.
ATVINNUDEILD HÁSKÓLANS — BÚNAÐARDEILD.
Formaður Steingrímur Steinþórsson. Tilgangur deildar-
innar er að vinna að vísindarannsóknum í þarfir land-
búnaðarins, s. s. jarðvegs- og ræktunarrannsóknum, fóður-
rannsóknum, og rannsóknum jurtasjúkdóma.
Starfsmenn deildarinnar eru: Ingólfur Davíðsson, mag-
ister, vinnur að rannsóknum jurtasjúkdóma.
Pétur Gunnarsson búfræðikandidat, vinnur að fóður-
tilraunum o. fl.
Jakob H. Líndal bóndi á Lækjamóti í Húnavatnssýslu
vinnur að jarðvegsrannsóknum og jarðfræðiathugunum á
vegum Búnaðardeildarinnar.
RANNSÓKNASTOFA HÁSKÓLANS.
Forstöðumaður Niels P. Dungal. Starfssvið stofnunar-
innar er rannsóknir á sjúkdómum manna og búfjár. Hún
framleiðir lyf gegn ýmsum búfjársjúkdómum, s. s. bráða-
pest, lungnapest í sauðfé, yðraormum í sauðfé og bóluefni
og serum gegn lambablóðsótt. Ennfremur lætur hún í té
ormalyf í refi og framleiðir serum gegn refasótt.
BÆNDASKÓLAR.
Bændaskólarnir voru stofnaðir 2 hér á landi, með lög-
um 1905. Skyldi annar vera á Hvanneyri, hinn á Hólum
í Hjaltadal. Síðan hefir þessum lögum verið breytt að
nokkru, síðast árið 1938. Báðir eru skólarnir ríkisskólar.
Tilgangur þeirra er að veita bændaefniun nauðsynlega
sérþekkingu til undirbúnings stöðu þeirra. Á skólajörðun-
um eru rekin fyrirmyndarbú, kennslan er bókleg og verk-
leg. Námstíminn er 1% ár og taka nemendur próf að
loknu námi.
Hólar i Hjaltadal. Þar var stofnaður búnaðarskóli 1882,
sem síðar var breytt í bændaskóla 1907. Skóla- og bústjóri
er Kristján Karlsson.
Hvanneyri í Borgarfirði. Þar var stofnaður búnaðar-