Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Síða 64
64
MJÓLKURBÚ.
Mjólkursamlag Kaupfélags Eyfirðinga, Akureyri. Stofn-
að 1927. Mjólkurmagn 1939: 3.233 milj. kg.
Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi. Stofnað 1928. Mjólkur-
magn 1939: 8.178 milj. kg.
Mjólkursamlag Borgfirðinga, Borgarnesi. Stofnað 1932.
Mjólkurmagn 1939: 2.229 milj. kg.
Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga, Sauðárkróki.
Stofnað 1934. Mjólkurmagn 1939: 0.659 milj. kg.
Mjólkurstöðin í Reykjavík. Byggð 1930. Innvegið mjólk-
urmagn af félagssvæði hennar 1939: 4.756 milj. kg.
Mjólkurbú Hafnarfjarðar. Stofnað 1937. Mjólkurmagn
1939: 0.549 milj. kg.
Rjómabú: Baugsstaðarrjómabúið í Árnessýslu. Rjóma-
búið á Brúum í S.-Þing. og Rjómabú Kaupfélags Vest-
ur-Húnvetninga, Hvammstanga.
Smjörsamlög: Smjörsamlag Kaupfélags Hvammsfjarð-
ar, Búðardal.
Mjólkursamsalan í Reykjavik: Stofnuð 1935. Starfs-
svæði hennar nær yfir Mjólkursamlag Borgfirðinga,
Mjólkurstöð Reykjavíkur, Mjólkurbú Hafnarfjarðar og
Mjólkurbú Flóamanna. Sala 1939: Mjólk 5.638 millj. lítrar.
Rjómi 0.231 milj. lítrar. Skyr 0.248 milj. kg.
JARÐRÆKT.
ÞURRKUN TÚNLANDS
Eftir Ásgeir L. Jónsson.
Stærstu mistökin við túnrækt hér á landi er vanþurrkun
ræktunarlandsins. Fyrir þá sök eina hafa bændur orðið
fyrir fjárhagslegu tjóni, er nemur milljónum króna, síðan
jarðræktarlögin gengu í gildi.
Munið: Land, sem vaxið er mýrar- eða votlendisgróðri,
getur aldrei fóstrað túngrös, þó það sé vel unnið og í það
sáð grasfræi, nema það sé áður vel þurrkað. Aldrei má
brjóta land til túnræktar, án þurrkunar, nema gróður þess