Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Síða 77
77
Arfa á nýjum sáðsléttum er bezt að eyða með endur-
teknum slætti fyrsta sumarið.
KORNYRKJA.
Eftir Klemenz Kr. Kristjánsson.
Ómetanlega væri það mikils virði ef komyrkja yrði á
hverju byggðu bóli á landinu, en þetta getur orðið, ef
bændur setja sér það mark að framleiða sinn eigin fóður-
bæti og mjöl til heimilsþarfa. 18 ára reynsla er fengin
fyrir því, að bygg og hafra má rækta til fullrar þrosk-
unar á suðurhlutum landsins, og vetrarrúgur getur einnig
náð góðum þroska í betri sumrum. Á Vestur-, Norður-
og Austurlandi má í veðursælli héruðum fá fullþroska bygg
og hafra á stundum þegar sumrar í betra lagi.
Það sem mest verður að hafa í huga þegar á kornyrkju
er byrjað eru ýms atriði við framkvæmd ræktunarinnar,
skulu hér helztu nefnd. Bygg og hafra má rækta á öllum
þeim jarðvegi, sem gras vex í, en sjá verður fyrir því að
landið sé hæfilega þurrt, ef það er það ekki frá náttúr-
unnar hendi, þá með framræslu.
Jarðvinnslan þarf að vera vönduð, bezt er haustplæging
og þannig að plógstrengir hvolfi sem mest, en séu ekki
upptá rönd. Góð plæging ekki dýpri en ca. 5—6 þuml. er
fyrsta jarðvinnslan, herfing það næsta og ber að byrja
hana langs eftir strengjum, og verður að sjá fyrir góðri
myldun moldarinnar, því komið þarf myldinn jarðveg
með nægum áburði. Útsæðismagn af byggi og höfrum
er hæfilegt 180—200 kg. á ha. af komi, sem grær með
95—98%.
Lítill munur er á raðsáningu eða dreifsáningu, ef dreif-
sáning er vel framkvæmd Ágætt að fella kornið niður,
með hálfskekktu diskaherfi og valta á eftir. Áríðandi er
að sá snemma, á Suðurlandi 20. april til 1. maí og í öðr-
um landshlutum eins snemma í maí og tíð leyfir. Korn
þolir vorkulda betur en margur annar gróður. Áburðar-
magn í meðalfrjóan jarðveg er hæfilegt kg. á ha.:
Á mýrajörð: 200 kg. Kali
300 — Superfosfat
200 — Kalksaltpétur