Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Blaðsíða 79
19
sunnanlands (Bordeauxlyf, koparsódalyf eða Beiers kopar-
salt). Úðun er heldur tryggari en duftdreifing og er sjálf-
sögð, sé um stóra garða að ræða. Bezt er að úða tvisvar
seint í júlí og aftur eftir 2—3 vikur. Veðrið verður aö vera
þurrt og sæmilega kyrrt.
Annar erkifjandi kartaflanna er stöngulveikin, sem
bakteríur valda. Stönglar kartöflugrasanna verða svartlr,
blautir og linir niður við moldina. Grasið krypplast oft
í toppinn. Allar kartöflur undir slíkum grösum eru sýktar
og kemur fyrr eða síðar fram í þeim votrotnun. Eru þær
stórhættulegar í geymslu. Veikin berst með útsæðinu.
Hreinsun í garðinum á sumrin er eina öfluga vörnin.
Grafið öll stöngulveik grös upp sem fyrst og flytjið þau
burtu úr görðunum.
Tiglaveiki og blaðvefjuveiki hefir talsvert orðið vart,
einkum í afbrigðunum Pavourite, Jarðargulli og Jórvíkur-
hertoga. Ljósir tiglar koma á blöðin, þau krypplast oft og
vefjast saman. Uppskeran er æt en lítil. Veikin berst með
útsæðinu. í hlýjum sumrum geta einnig skordýr borið
veikina milli jurtanna í garðinum. Varnir hinar sömu og
gegn stöngulveiki. Notið heilbrigt útsæði undan hraustum
grösum. Kláðahrúður. getur gert kartöflurnar mjög ljótar,
einkum í sandgörðum. Afbrigðið Jubel er reynandi í kláða-
görðum. Það fær ekki kláða að neinu ráði. Látið ekki
ösku, kalk eða steypuefni lenda í kartöflugörðunum. .
B. KÁL OG RÓFUR.
Kálmaðkurinn er skæður í Reykjavík, Hafnarfirði,
Akureyri og víðar. Kálflugan verpir hvítum eggjum, líkum
vium í fiski, í moldina við káljurtirnar. Úr eggjunum koma
hvítleitir maðkar, sem naga káljurtina til stórskemmda.
Visnar kálið oft og veltur um koli. Leitið oft að eggjunum
í júní—júlí við kálstönglana, rétt undir yfirborði moldar-
innar. Ef eggin sjást, þarf strax að vökva kringum jurt-
irnar með sublimatvatni (1 g. í 1 1. vatns) eða Carbokrimp-
blöndu (2.5 g. í 1 1. vatns). Venjulega verður að vökva
tvisvar til þrisvar sinnum á sumri. Tjörupappaplötur gef-
ast vel í skjólgóðum görðum. Naftalín eða sót gera nokkurt
gagn. Gegn sniglum er gott að dreifa kalkdufti, blásteinsT
dufti eða sóti á moldina snemma á morgnana.