Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Síða 106
106
dagsins má hreinsa eggskurnið úr hreiðrinu, en hæmma
og ungana liggur ekki á að flytja fyrr en á 23. degi.
Eigi fleiri en ein hæna að unga út, er sjálfsagt að láta
þær allar unga út í einu.
Uppeldi unganna verður einfaldast, er ungarnir fylgja
hænunni fyrstu 1%—2 mánuðina. Fyrst sé hænan með
ungana höfð inni —• t. d. á afviknum stað í fjósi — en sé
tíðarfar gott, mega ungarnir fara að koma út er þeir eru
tveggja til þriggja vikna gamlir og má þá útbúa ofurlitinn
skúr handa þeim.
Fóðrun unganna. Fyrstu 30—40 klukkustundirnar eftir
að ungamir koma úr eggjunum, fá þeir ekkert fóður, en
aðeins ylvolgt drykkjarvatn.
Fyrstu vikuna er bezta fóðrið harðsoðin egg, brytjuð
smátt niður (einnig skurnið) og blandað saman við örlítið
af haframjöli og niðurbrytjuðu grasi, ofurlitlu af fínum
sandi stráð yfir. Úr því er ungunum gefinn góður matar-
úrgangur, svo sem kartöflu- og fiskleifar, ungafóður-
blanda, sem fæst nú í mörgum verzlunum o. s. frv. Síð-
an er hægt að smáfæra sig upp á skaftið og er þeir eru
3—4 mánaða gamlir, éta þeir sama fóður og fullorðnu
hænsnin.
í fyrstu á að gefa ungunum oft á dag, en aðeins lítið
:i einu, eða aldrei meira en þeir ljúka á stuttum tíma.
Fóðrun hœnsnanna. Hænsnin framleiða tiltölulega mikl-
ar afurðir, en neyta mjög takmarkaðs fóðurs. Það er því
nau^synlegt að fóðrið sé næringarríkt og að það hafi inni
að halda nægilega mikið af öllum fóðurefnum, er hæn-
urnar þurfa til afurða sinna.
Aðal hænsnafóðrið verður kom og mjölfóðurblanda.
Kornið getur verið bygg, hafrar, mais eða hveiti, en bezt
er að gefa tvær eða fleiri af þessum korntegundmn i
blöndun.
Mjölfóðurblandan getur verið sett saman á marga vegu,
en það verður að gera þá kröfu, að hún sé alhliða, þ. e.
a. s. það má engin þau efni vanta í blönduna, sem hænsn-
unum eru nauðsynleg og þau ekki fá á annan nátt, og hún
verður að vera blönduð í réttum hlutföllum.
Dæmi um alhliða mjölfóðurblöndu:
35 kg. maismjöl,
30 — haframjöl,
15 — hveitiúrgangsmjöl,