Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Side 107
107
10 kg. síldarmjöl (létt saltað),
5 — fiskimjöl,
5 — kjötmjöl,
1 kg. af fóðurblöndunni = 1 fóðureining og inniheldur
170 gr. af meltanlegri eggjahvítu.
Grænfóður eða grænmeti er nauðsynlegt í hænsnafóðrið
(nýslegið niðurbrytjað gras — gott hey eða jafnvel vothey
að vetrinum — gulrófur, grænkál o. s. frv.).
Kornið á ekki að vera undir 50 gr. handa hverjum fugli
á dag.
Álíka skammtur af alhliða mjölfóðurblöndu er lágmark,
en í mörgum tilfellum eru hænsnin látin eta mjölið eftir
vild. Mjölið má spara mjög með því að fóðra hænsnin á
undanrennu og kartöflum. Undanrennan er þá gefin
„þykk súr“ (látin súma á heitum stað), 80—100 gr. er góð-
ur skammtur, en má vera meira. Skyr (súrt) gerir sama
gagn. Kartöflurnar má gefa hráar, en bezt er að sjóða
þær, merja þær síðan og blanda þeim saman við mjöl-
fóður og vatn (eða undanrennu) þar til það verður að
stökku deigi.
Hænsnin skulu ætíð hafa aðgang að hreinu drykkjar-
vatni, sandi og brenndum og muldum beinum. Á vetuma
ætti auk þess að blanda í fóðrið ofurlitlu af þorskalýsi —
ein matskeið á dag handa hverjum 25 fuglum.
Hvort sem hænsnunum er gefið tvisvar eða þrisvar á
dag, skal það alltaf gert á sama tíma.
UM LOÐDÝRAELDI.
Eftir H. J. Hólmjárn.
1. Athugið að loðdýrin eru höfð í haldi alla æfina og
geymd í litlum búrum. Þau geta því ekki bætt það upp,
sem aflaga fer í fóðrun og hirðingu, með frjálsræði á
sumrum í góðum högum eins og annar búpeningur.
2. Hreisnið öll óhreinindi daglega úr búmm og kössum.
3. Þvoið matarílátin eftir hverja máltíð og kjötkvömina
eftir hverja notkun.
4. Gefið dýrunum aldrei úldið eða skemmt fóður. Sér-
staklega ber að varast kjöt og fisk, sem hefir legið í kös.
Látið kjöt og fisk hanga frítt þar sem loftið leikur um
það, eða hraðfrystið það alveg nýtt.