Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Page 108
108
5. Skiptið aldrei snögglega um fóðurblöndu.
6. Fóðrið dýrin þannig, að þau séu hraust og fjörug,
en varizt að láta þau hlaupa í spik.
7. Hæfilegt næringarefnahlutfall í refafóðri fæst með
því að gefa:
Að sumrinu efni úr dýraríkinu 65—70%. Úr jurtaríkinu
30—35%.
Að vetrinum efni úr dýraríkinu 57—80%. Úr jurtaríkinu
20—25%.
Eftirfarandi töflu má hafa til hliðsjónar við samsetningu
refafóðurs: I II III IV
Kjötmeti 32% 22% 22% 55%
Fiskur (nýr) Fiskimjöl 26% 26% 15%
Nýmjólk 16% 17% 38% 16%
Refaostur 10%
Bráuð 15% 16% 16% 17%
Grænmeti 6% 5% 5% 7%
Bein (möluð) 5% 4% 4% 5%
Hver blandan sem notuð er, skal gefa 2—3 gr. af
góðu þorskalýsi á dag. í staðinn fyrir brauð má nota
þykkan graut, eða kartöflur að hálfu. 100 gr. brauð sam-
svarar nokkurn veginn 200 gr. af þykkum graut og 300 gr.
af sæmilegum kartöflum. Graut skal gera af % grófmöl-
uðu hveiti og % haframjöli.
Dagskammtur af þessu fóðri til silfur- og blárefa er
mjög misjafn, frá 200 gr. handa geldum, feitum tæfum,
og allt að 800 gr. handa tæfum með marga yrðlinga. Um
fengitímann reynist vel að gefa karldýrum eingöngu vöðva-
kjöt, 150 gr. daglega, og eitt egg annan hvorn dag og
ekkert annað.
Minka má fóðra vel á 90% nýjtun fiski, 5% brauði og
5% grænmeti. Gefa skal þeim daglega nokkuð af lifur og
gotu, þegar hún fæst ný og góð. Þá er gott að gefa þeim
lítið eitt af sild.
MEÐGÖNGUTÍMI HÚSDÝRA O. FL.
Hryssur .............. 333 dagar (326—349)
Kýr .................. 280 — (279—282)