Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Síða 113
113
blöndu, með ofurlitlu af fínum sandi. Það hefir gefizt vel
að smyrja þessa blöndu á veggina með höndunum einum
saman, en nauðsynlegt er þá að hafa vettlinga. Síðast er
farið yfir steypuna með bursta og hún lituð með Medusa-
málningu eða kalk og sementsblöndu (kalk 2 hlutar, sem-
ent 7 hlutar).
Nauðsynlegt er að hafa vatnsþéttiefni í steypu grunn-
veggja og neðsta gólfi húsa. Biklímdan pappa má þó nota
í þess stað. Grunnveggi þá, sem í jörð eru, verður vel að
bika utan, eftir að þeir hafa verið holufylltir og kústaðir.
Málning.
Málningin er ekki fyrst og fremst til skrauts, heldur til
varnar og viðhalds. Sérstaklega er nauðsynlegt að mála
vel glugga og þök. Málning á þökum er nauðsynlegt að
endumýja með 5 ára fresti. Ef það er ekki gert, ryðgar
járnið skjótt og eyðileggst. Vel viðhaldið járnþak getur
enzt ófyrirsjáanlega lengi. — Timburþiljur innanhúss
ætti ekki að mála. Nægir að þær séu olíubomar.
Skipulag bœjarhúsa.
Látið húsin standa skipulega. Látið þau hafa horn-
rétta afstöðu hvort til annars og dreifið þeim ekki út um
tún og móa. Vel getur farið á því að láta hliðar sumra
þeirra liggja á sömu línum. — íbúðarhúsið ætti ætíð að
standa framar og vera nær heimreið en aðrar byggingar,
og dyr haughúsa og tæmingar þurfa alltaf að vera í hléi
og sem fjærst umferð. Hafið hlöðurnar aldrei sambyggðar
íbúðarhúsi. Af því stafar eldhætta og einnig fer það illa.
— Hafið hlið á görðum og girðingum traust og smekkleg
og með sterkum grindum, lokum og lömum. Traust og
myndarleg hlið auka svip heimilisins, enda jafnan merki
um hirðusemi.
XJppdrœttir.
Útvegið yður ætíð uppdrætti áður en þér farið að
byggja. Kynnið yður uppdrættina vel. Gerið yður ljóst
um stærðir herbergja, sambönd þeirra o. fl. Útvegið ykkur
upplýsingar um kostnaðarverð húsanna áður en þér ráðist
í framkvæmdir, svo tryggt sé að fyrirtækið verði viðráð-