Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Síða 114
114
anlegt. Teiknistofa landbúnaðarins,, sem er í Búnaðar-
banka íslands í Reykjavik, gerir uppdrætti að allskonar
húsum fyrir bændur landsins. Munið að það er skilyrði
fyrir veitingum lána og styrkja, að teiknistofan hafi fyHr-
fram samþykkt eða gert uppdrœtti að þeim byggingum,
sem styrktar eru eða lánað til.
NÆRINGARGILDI NOKKURRA MATVÆLA
I matvælum eru næringarefni, sem eru nauðsynieg fyrir
næringu manna. Þeim má skipta í 6 flokka:
1. Vatn. 4. Kolvetni.
2. Eggjahvíta. 5. Málmsölt.
3. Fita. 6. Vitamin (bætiefni).
Vatn er hér um bil % af þunga líkamans, daglega
skiptir líkaminn um 2—3 lítra af því.
Eggjahvíta er aðalefni í öllum vöðvum og líffærum lík-
amans, það er nauðsynlegt til þroska og endurbóta á eydd-
um efnum. Þörf fyrir eggjahvitu er álitin vera 1 gramm
fyrir hvert kíló af líkamsþunganum daglega, 1 gramm af
eggjahvítu myndar 4,1 hitaeiningar.
Fita er í líkamanum sem forðanæring. og blönduð með
vefunum, fitan myndar orku í líkamanum, 1 gramm er
9,3 hitaeiningar, þörf fyrir fitu er talin að vera 70 til 100
grömm daglega.
Kolvetni. Af því er lítið eitt í blóði og vefjum líkam-
ans. Af kolvetnum gefur sterkja og sykur orku, 1 gramm
myndar 4,1 hitaeiningar. Dagleg þörf er talin að vera
3—600 grömm.
Málmsölt eru aðallega í beinum, vefjum og vöðvum
líkamans, þau eru nauðsynieg fyrir þroska og til að end-
urbæta eydd efni. Það eru til ýms málmsölt, þýðingar-
mest er kalcium, fosfór og járn. Þessi efni vanta oft í
fæðuna. Kalk er aðalefni í beinagrindinni. Það er talið að
af því þurfi % gramm daglega. Böm nokkru meira. Fosfór
er í beinum og öðrum hlutum líkamans. Af því þarf 1—3
grömm daglega fyrir fullorðinn mann, en nokkuð meira
handa börnum. Jám er í blóði og vöðvum, þörfin er talin
að vera 15 mg. daglega.
Vitamin (bætiefni) hafa uppleysandi og temprandi áhrif,
en annars mjög breytilegar verkanir í líkamanum, ef þau