Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Síða 61
61
Kvennaskóli Húnvetninga,. fluttur til Blönduóss '1901,
breytt í húsmæðraskóla 1923. Skólast. Sólveig Bene-
diktsdóttir.
Húsmæðraskólinn á Staðarfelli í Dalasýslu. Stofnaður
1929. Skólast. Ingibjörg Jóhannsdóttir.
Aðrir húsmæðra- og kvennaskólar er njóta styrks úr
ríkisssjóði:
Húsmæðraskólinn á ísafirði. Stofnaður 1912. Kven-
félagið Ósk á skólann og rekur hann. Skólast. Ingibjörg
Jónsdóttir.
Húsmæðraskólinn „Hverabakkar" í Hveragerði, Árnes-
sýslu. Stofnaður 1935. Skólast. og eigandi Árný Filippus-
dóttir.
Kvennaskólinn í Reykjavík. Stofnaður 1874. Hefir starf-
rækt húsmæðradeild frá því 1907. Skólast. Ragnheiður
Jónsdóttir (sett).
NÝBÝLASTJÓRN.
Á Alþingi 1940 var gerð nokkur breyting á stjórn ný-
býlamála. Stjórnin er nú skipuð þremur mönnum, tveim
sem landbúnaðarnefndir Alþingis tilnefna og einum, sem
landbúnaðarráóherra skipar, skal hann vera formaður
nýbýlastjórnar og framkvæmdastjóri.
Nýbýlastjórn er nú þannig skipuð:
Stéingrímur Steinþórsson, skipaður af landbúnaðarráð-
herra, Bjarni Ásgeirsson, alþm. og Jón Pálmason, alþm.,
tilnefndir af landbúnaðarnefndum Alþingis.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS.
Stofnaður með lögum 14. júní 1929. Bankast. Hilmar
Stefánson. Bankaráð: Eysteinn Jónsson, ráðh., Þorsteinn
Þorsteinsson, sýslum. og Bjarni Bjarnason skólast.
Bankinn er nú rekinn í þremur aðal-deildum, sem eru
Byggingarsjóður, er eingöngu lánar til bygginga íbúðar-
húsa í sveit.
Rcektunarsjóður, er lánar til ýmiskonar bygginga,
ræktunar og fleiri framkvæmda í sveitunum.
Sparisjóðs- og rekstrarlánadeild, en fé þeirrar deildar er