Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Síða 66
66
Rjómabú starfandi 1941: Baugsstaðarrjómabúlð í Árnes-
sýslu. R.jómabúið á Brúum í S.-Þingeyjarsýslu.
Smjörsamlög: Smjörsamlag Kaupfélags Hvammsfjarð-
ar, Búðardal, Smjörsaml. Kaupf. Saurbæinga, Salthólma-
vík, Smjörsaml. Kaupfl. Króksf., Króksfjarðarnesi, Smjör-
saml. Kaupfl. Hrútfirðinga, Borðeyri, og Smjörsaml.
Kaupfl. Húnvetninga, Blönduósi.
Mjólkursamsalan í Reykjavík: Stofnuð 1935. Starfs-
svæði hennar nær yfir Mjólkursamlag Borgfirðinga,
Mjólkurstöð Reykjavikur, Mjólkurbú Hafnarfjarðar og
Mjólkurbú Plóamanna. Sala 1940: Mjólk 5.898.636 lítrar.
Rjómi 233.145% lítrar. Skyr 289.463% kg.
JARÐRÆKT.
ÞURRKUN TÚNLANDS
Eftir Ásgeir L. Jónsson.
Stærstu mistökin við túnrækt hér á landi er vanþurrkun
ræktunarlandsins. Fyrir þá sölt eina hafa bændur orðið
fyrir fjárhagslegu tjóni, er nemur milljónum króna, síðan
jarðræktarlögin gengu í gildi.
MuniS: Land, sem vaxið er mýrar- eða votlendisgróðri,
getur aldrei fóstrað túngrös, þó það sé vel unnið og í það
sáð grasfræi, nema það sé áður vel þurrkað. Aldrei má
brjóta iand til túnræktar, án þurrkunar, nema gróður þess
sé hreinn þurrlendisgróður. Að þurrka landið fyrst eftir
að það hefir verið unnið, veldur venjulega margföldum
kostnaði.
Þurrkað meö opnum skurðum. Þar sem jarðvegur er
óhentugur fyrir lokræsi, verður að þurrka með opnum
skurðum. Með tilliti til allrar vélavinnu á landinu, er bezt
að skurðirnir séu sem lengstir (spildurnar á milli þeirra
langar). Sé hallinn mikill, liggi skurðirnir meira eða minna
þvert við honum. Millibil skurða 20—40 m. (oftast 25 m.);
dýpi 100—150 cm. (ekki minna en 80 cm.); botnbreidd
30—40 cm. (á aðalskurðum, sem safna vatni úr tveimur
eða fleiri skurðum, sé botnbreiddin meiri); flái 1: % til