Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Page 68
68
skeran fer því alla jafna mjög mikið eftir því hve mikið
og vel er borið á.
Það eru viss efni, sem jurtirnar þurfa sér til viðurværis.
Aðallega fjögur efni, köfnunarefni, fosfórsýra, kali og
kalk. Stundum eru öll þessi efni af skornum skammti í
jarðveginum. Stundum skortir eitt eða tvö af þeim, en er
nokkuð nægilegt af hinum. Á sama hátt er það með á-
burðinn. í sumum tegundum áburðar eru öll þessi efni,
en í öðrum tegundum er aðeins eitt þeirra. Ásigkomulag
efnanna bæði i jarðvegi og áburði getur líka verið mjög
mismunandi. Sum eru auðleyst og aðgengileg fyrir jurt-
imar, önnur torleyst og seinvirk o. s. frv. Það getur því
verið all mikill vandi að bera þannig á, að það komi að
sem beztum notum, og að engu, eða sem minnstu sé eytt
til ónýtis, af efnum og peningum.
í vel reknum búskap er búfjáráburðurinn vanalega aðal-
áburðurinn. Til viðbótar honum er oft notaður ýms líf-
rænn áburður, sem til fellur, s. s. salernisáburður, þang
og þari, fiskúrgangur o. fl. Loks er, í flestöllum búnaðar-
löndum, þar sem jarðrækt er rekin af kappi, notað mikið
af tilbúnum áburði.
Búfjáráburður. í vel hirtum búfjáráburði eru yfirleitt
öll þau efni, sem jurtirnar þarfnast. Mikils er um vert
að þvagið glatist ekki og bezt er að geyma saur og
þvag aðgreint. Þvagið umfram allt í loft- og lagar-
heldri þró. Þvagið er auðugt af köfnunarefni og þó enn
auðugra af kali, en fosfórsýrusnautt. Efnin eru jafnari
1 saurnum og í honum er einnig sæmilega mikið af fos-
fórssýru. Sjá töfluna. Þvagið er auðleystur áburður sem
notast fljótt og vel, einnig á grasgróna jörð. Saurinn er
seinvirkari og langvirkari áburður. Hann notast Dezt
ef hann kemst niður í og saman við moldina — í flög
og garða og plægður niður í túnin. Vel hirt sauðatað
(og alifuglaáburður) er bezti búfjáráburðurinn og auðug-
astur af jurtanæringu. Þótt kúaþvagið sé skilið vel frá
saurnum og geymt í for, þarf og á að blanda saurinn
með mold (mómold, rofmold) til drýginda og til þess að
þurka og binda það þvag, sem honum fylgir í haughús
eða haugstæði. Moldarlag á gólfinu í haughúsinu og á
botninum í haugstæðinu er búbót, sem of fáir bænd-
ur nota sér. Hálffljótandi mykja, er óþrifnaður og