Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Side 69
69
eyðsla. Vel hirtri mykju er mokað með mykju-
kvísl, það á ekki að þurfa að lepja hana með steypu-
skóflu. Sjá nánar um hirðingu áburðar í riti Áburðarsölu
ríkisins: Meira gras.
Jurtanæring búfjáráburðarins kemur ekki öll að not-
um, mikið tapast í meðförunum og því meira, sem notk-
unin er ófullkomnari, t. d. þegar illa er unnið á harðlendu
túni, í þurkatíð.
í búfjáráburðinum er afar mikið af gerlum, sem geta
bætt jarðveginn mjög mikið ef áburðurinn er notaður
á heppilegan hátt. Vel hirtur búfjáráburður er því alltaf
hin mesta hjálparhella við alla nýrækt og því mikils-
verðari sem jarðvegurinn er lélegri.
Salernisaburður. Það er sterkur og verðmætur áburður,
sem notast vel og án óþæginda ef að menn aðeins komast
upp á að byggja hentug salerni í sambandi við haughús
og haugstæði og gleyma ekki að bera í og blanda áburð-
inn. Að láta salernisáburðinn fara saman við þvagið í
fjósforinni torveldar heppilegustu notkun þvagsins. Af
þrifnaðarástæðum og til húsþæginda kjósa flestir nú orðið
að byggja vatnssalerni innanhúss, ef þess er kostur, í stað
útisalerna. Slík þróun er réttmæt, þótt allmikill áburður
fari forgörðum á þann hátt.
Þangaburður. Þang og þari vex við strendur landsins
og berst víða á fjörur í svo ríkum mæli, að það er hin
mesta áburðarlind. Best er að láta þangáburð rotna í
haugum áður en hann er notaður. Sé fiskiúrgangi eða
búfjáráburði blandað saman við hann, flýtir það fyrir
rotnuninni. Vel rotnaður þangáburður hefir svipað áburð-
argildi eins og blandaður búfjáráburður, en er þó það
snauður af fosfórsýru, að oftast er þörf á að nota fos-
fórsýruáburð með þangáburðinum.
Fiskiúrgangur. Allur fiskiúrgangur, hverju nafni sem
nefnist, er mjög verðmætur áburður, sem ekki má fara
forgörðum svo framarlega sem nokkur ræktun eða rækt-
arskilyrði eru fyrir hendi þar sem úrgangurinn fellst til.
— Sjá töfluna. — Með fiskiúrgangi þarf að nota kali-
áburð.