Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Side 72
72
veginum. Sumarið 1941 var notað mjög mikið af Brenni-
steinssúru ammoniaki í stað saltpéturs, og yfirleitt með
mjög góðum árangri.
Tröllamjöl er köfnunarefnisáburður, sem þó er
mest notaður til þess að eyða mosa _og illgresi. í því eru
20%% köfnunarefni og 60% kalk. Áburðarverkanir þess
eru seinar og langdrægar.
Fosfórsýruáburður.
Superfosfat er aðaltegundin, sem hér er vanalega
notuð. I því eru 18% af fosfórsýru. Þrífosfat, er
önnur tegund af fosfórsýruáburði. i því eru vanalega
um 48% af fosfórsýru. Það er því mjög sterkur áburður
og verður að skammta áburðarmagn og vanda dreifingu
þess eftir því. Arið 1941 var flutt inn og notað þrífosfat,
er nefnt var Elektrophos.
Kaliáburður.
Kali 40% er mest notað við alla algenga ræktun.
í þvi er ofurlítið af klóri, sem getur haft skaðleg áhrif
á tómata og jafnvel kartöflur. Sé það notað í kartöflu-
garða, er því betra að bera það á nokkru áður en sett er
niður. »
K1 ó r-k a 1 i. i því eru 50—56% kali. Þótt nafnið bendi til
þess, að í því sé mikið af klóri, er það eigi svo. Það er hlut-
fallslega minna af klóri í Klórkalí heldur en í Kalí, 40%.
Um notkun þéss gildir hið sama og um notkun 40% kalí,
nema að taka tillit til styrkleikans.
Brennisteinssúrt kalí. í því eru vanalega um
48% af kalí. Það er svo að segja klórlaust og því notað
við tómataræktun og stundum í kartöflugarða, þótt það
sé dýrara heldur en venjulegt kalí 40%.
Algildur áburður.
Af honum verður ekki fáanleg nein tegund á þessu ári
(1942), er svari til Nitrophoska, eða Garða-Nitrophoska,
er áður hefir verið notaður.
A m m o-p h o s, er tvígildur áburður, sem fæst frá Am-
eríku. í honum eru 16% af köfnunarefni og 20% af fosfor-
sýru. Magn þessara efna er því svipað eins og í Garða-
Nitrophoska, en með honum þarf að bera á kalíáburð.
Þúsund kg. af Ammophos + 500 kg. af Kalíáburði (40—