Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Page 81
81
eftir 2—3 vikur. Veðrið verður að vera þurrt og sæmilega
kyrrt.
Annar erkifjandi kartaflanna er stöngulveikin, sem
bakteríur valda. Stönglar kartöflugrasanna verða svartir,
blautir og linir niður við moldina. Grasið krypplast oft
í toppinn. Allar kartöflur undir slíkum grösum eru sýktar
og kemur fyrr eða síðar fram í þeim votrotnun. Eru þær
stórhættulegar í geymslu. Veikin berst með útsasðinu.
Hreinsun í garðinum á sumrin er eina öfluga vörnin.
Grafið öll stöngulveik grös upp sem fyrst og flytjið þau
burtu úr görðunum.
Tiglaveiki og blaðvefjuveiki hefir talsvert orðið vart,
einkum í afbrigðunum Pavourite, Jarðargulli og Jórvíkur-
hertoga. Ljósir tiglar koma á blöðin, þau krypplast oft og
vefjast saman. Uppskeran er æt en lítil. Veikin berst með
Útsæðinu. í hlýjum sumrum geta einnig skordýr borið
veikina milli jurtanna í garðinum. Varnir hinar sömu og
gegn stöngulveiki. Notið heilbrigt útsæði undan hraustum
grösum. Kláðahrúður getur gert kartöflurnar mjög ljótar,
einkum í sandgörðum. Afbrigdið Jubel er reynandi í kláða-
görðum. Það fær ekki kláða að neinu ráði. Látið ekki
ösku, kalk eða steypuefni lenda í kartöflugörðunum.
B. KÁL OG RÓFUR.
Kálmaðkurinn er skæður í Reykjavík, Hafnarfirði,
Akureyri og víðar. Kálflugan verpir hvítum eggjum, líkum
víum í fiski, í moldina við káljurtirnar. Úr eggjunum koma
hvítleitir maðkar, sem naga káljurtina til stórskemmda.
Visnar kálið oft og veltur um koll. Leitið oft að eggjunum
í júní—júlí við kálstönglana, rétt undir yfirborði moldar-
innar. Ef eggin sjást, þarf strax að vökva kringum jurt-
irnar með sublimatvatni (1 g. í 1 1. vatns), Carbokrimp-
blöndu (2.5 g. í 1 1. vatns) eða Overside. Venjulega verður
að vökva tvisvar til þrisvar sinnum á sumri. Tjörupappa-
plötur gefast vel í skjólgóðum görðum. Naftalín eða sót
gera nokkurt gagn. Við hvítkál og rófur gefst sæmilega
að dýfa rótum jurtanna í blöndu af Calómeli og postulíns-
leir, um leið og gróðursett er. Gegn sniglum er gott að
dreifa kalkdufti, blásteinsdufti eða sóti á moldina snemma
á morgnana.