Fréttablaðið - 06.10.2022, Qupperneq 2
Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
eigum við rétt til þátttöku í samfélaginu til jafns við aðra. Íslensk
stjórnvöld hafa fullgilt samninginn en til að hann öðlist alvöru merkingu
fyrir líf og réttindi okkar, þeirra tugþúsunda sem hann snertir, þarf að
lögfesta hann. Af því er bara ekkert að frétta.
Þetta er í raun mjög einfalt og bara spurning um sjálfsögð réttindi eins
og sjá má hér:
JAFNRÉTTI
SAMFÉLAG
LAGALEG VERND
Öll eiga rétt til lífs, eru jöfn
fyrir lögum og eiga rétt á
jafnri vernd og jöfnum hag.
FERLIMÁL
Gera skal fötluðu fólki kleift
að fara allra sinna ferða eftir
því sem frekast er unnt, með
þeim hætti sem það kýs og á
þeim tíma sem það kýs.
SAMFÉLAGS-
ÞÁTTTAKA
Öll eiga rétt á að lifa
sjálfstæðu lífi með fullri og
virkri þátttöku í samfélaginu
án aðgreiningar.
SJÁLFRÆÐI
Fatlað fólk á rétt á að
ráða sínu lífi og taka eigin
ákvarðanir. Tryggja skal því
aðgengi og stuðning til að
fara með sín mál.
AÐGENGI
Tryggja skal aðgengi
fatlaðs fólks að samgöngum,
manngerðu umhverfi, tækni,
samskiptum og upplýsingum.
STJÓRNMÁL
Fatlað fólk á rétt til virkrar þátttöku í
stjórnmálum og opinberu lífi, beint eða
með stuðningi. Fatlað fólk á rétt á að
kjósa og vera kosið. Tryggja þarf aðgengi
að stjórnmálaþátttöku og upplýsingum.
FRELSI
Frelsi fólks má ekki
takmarka vegna fötlunar.
MENNINGARLÍF
Fatlað fólk skal hafa aðgang að
menningarlífi, tómstunda-, frístunda-
og íþróttastarfi til jafns við aðra. Tryggja
þarf að fatlað fólk njóti aðgengis að
sjónvarpsefni, kvikmyndum, leikhúsi
og öðrum menningarviðburðum og að
þeim stöðum þar sem slíkt fer fram.
TJÁNING
Tryggja skal rétt fatlaðs
fólks til tjáningar- og
skoðanafrelsis með
viðeigandi ráðstöfunum.
SJÁLFSÖGÐ
RÉTTINDI
réttindasamtök
VIRKNI
FÉLAGSLEG VERND
FJÖLSKYLDAN
DAGLEGT LÍF
Fatlað fólk á rétt á aðstoð á
eigin forsendum til þess að
geta tekið þátt í daglegu lífi
og í samfélaginu.
ÞJÁLFUN OG
ENDURHÆFING
Tryggja skal fötluðu fólki
þjálfun og endurhæfingu
svo fljótt sem auðið er til að
stuðla að sjálfstæði þess og
samfélagsþátttöku.
LÍFSKJÖR
Fatlað fólk á rétt á viðunandi
lífskjörum og sífellt batnandi
lífsskilyrðum til jafns við aðra.
FJÖLSKYLDULÍF
Fatlað fólk á rétt til að
ganga í hjónaband, stofna
fjölskyldu, sinna foreldra-
hlutverki og halda frjósemi
sinni til jafns við aðra.
STUÐNINGUR
Fatlað fólk á rétt á aðstoð
sem tryggir sjálfstæði,
heilbrigði, félagsfærni og
samfélagsþátttöku.
BÚSETA
Fatlað fólk á rétt á að velja
og ákveða hvar það býr og
með hverjum.
ATVINNA
Fatlað fólk hefur jafnan rétt
og aðrir til atvinnu. Ekki má
mismuna fólki á vinnumarkaði
á grundvelli fötlunar.
HEILSA
Fatlað fólk á rétt á heilbrigðis-
þjónustu til jafns við aðra.
Tryggja þarf að fatlað fólk hafi
aðgang að þeirri heilbrigðis-
þjónustu sem það þarfnast.
FÖTLUÐ BÖRN
Fötluð börn skulu njóta sömu
réttinda og grundvallarfrelsis til
jafns við önnur börn. Hagsmunir
þeirra skulu ávallt hafðir að
leiðarljósi og vilji þeirra virtur.
HJÁLPARTÆKI
Auðvelda skal aðgang fatlaðs
fólks að hjálpartækjum.
FJÁRMÁL
Fatlað fólk á rétt til að
eiga og erfa eignir og
stjórna fjármálum sínum
til jafns við aðra.
MENNTUN
Fatlað fólk á rétt til
menntunar á öllum
skólastigum án
aðgreiningar.
SJÁLFSTÆTT LÍF
SJÁLFS
RÉTTINDI