Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 44
Mér finnst líka eitt- hvað fallegt og rétt við það að þríleikurinn muni spanna 40-45 ár. Óskar Þór Axelsson Þeir Tóti, Stebbi psycho og Sævar mæta aftur á hvíta tjaldið eftir tíu ára fjarveru. MYND/AÐSEND Leikstjórinn Óskar Þór Axels- son segir tímann loks réttan til ráðast í ekki eina, heldur tvær framhaldsmyndir af Svartur á leik. Myndin á tíu ára afmæli og er mætt aftur í bíó. odduraevar@frettabladid.is „Eins og þetta er oft þá raðast stjörnurnar bara einhvern veginn rétt upp og það er þannig í þessu tilviki,“ segir Óskar Þór Axelsson um ákvörðunina um að ráðast í for- leik og eftirleik á Svartur á leik, sem fagnar nú tíu ára afmæli. Myndin var hans fyrsta í fullri lengd sem leikstjóra og byggðist á samnefndri skáldsögu Stefáns Mána. Myndin fylgir eftir Stebba psycho sem rekst á æskuvin sinn Tóta frá Ólafsvík sem býður honum vinnu. Fyrr en varir er Stebbi flæktur inn í ofbeldisfullan heim eiturlyfja og glæpa. „Einhvern tímann ekkert svo löngu eftir að myndin kom út þá fékk ég þessa hugmynd. Að hætta að horfa til þess að gera framhald um persónurnar, heldur að horfa á þetta þannig að aðalpersónan sé í raun undirheimarnir,“ útskýrir Óskar um nýju myndirnar tvær sem stefnt er á að komi út 2024 og 2025. „Að láta þetta ekki snúast um Stebba eða Tóta heldur um sögu undirheimanna. Svartur á leik sner- ist um það þegar undirheimarnir misstu sveindóminn. Hættu að vera saklausir og urðu skipulagðari með harðari glæpum og þyngri dómum. Nú langar mig að segja söguna alla, frá því þegar undirheimarnir byrj- uðu að mótast og til dagsins í dag.“ Óskar útskýrir að fyrri myndin muni tengjast þeim atburðum þegar fyrsti eiturlyfjadómurinn féll hér á landi árið 1975. „Þar ertu með upp- hafið á níunda áratugnum. Pönkið, Bubbi og spíttið, þegar allt verður harðara,“ útskýrir leikstjórinn. „Í framhaldsmyndinni af Svartur á leik færum við okkur í nútímann. Stóra fíkniefnamálið eins og við köll- uðum málið á sínum tíma er komið í dvergstærð miðað við fíkniefnamál nútímans. Nú eru undirheimarnir miklu skipulagðari, erlendir glæpa- hringir vaða uppi og þetta er miklu meiri iðnaður og meiri fíkniefna- framleiðsla hér heima. Við horfðum upp á aftöku hér í Rauðagerðismál- inu í fyrra.“ Þannig muni persónur myndanna þriggja tengjast en persónur líkt og Jói Faraó, sem brá fyrir í Svartur á leik, muni til að mynda gegna lykilhlutverki í fyrstu myndinni. „Þá verður aðalmaðurinn í seinni myndinni mögulega litli frændi Tóta eða einhver yngri. Þannig að við horfum á þetta sem þríleik þar sem við erum búnir að gera miðju- myndina. Þetta er alveg eins og Star Wars sem byrjaði á kafla fjögur,“ segir Óskar hlæjandi. Aðspurður segir Óskar að rithöf- undurinn Stefán Máni muni koma að handritsgerð við nýju myndirnar og liðsinna teyminu, sem er það sama og skrifaði handritið að upp- runalegu myndinni. Óskar segist hafa verið með þríleikinn í mag- anum í nokkur ár. Aðspurður segist hann vera óhræddur við að fylgja velgengni Svartur á leik loksins eftir. „Það eru liðin nokkur ár og maður er kominn með svolítið hungur. Það hefði líklega ekki verið sniðugt að fara í þetta strax, heldur leyfa þessu að malla í nokkur ár. Mér finnst líka eitthvað fallegt og rétt við það að þríleikurinn muni spanna 40-45 ár, frá upphafi níunda áratugarins til dagsins í dag. Það er eitthvað ljóð- rænt við þetta.“ n Réttur tími til að gera þríleik Helgi Björns og félagar hituðu upp í Stúdíó Sýrlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI odduraevar@frettabladid.is Hljómsveitin SSSÓL hitaði upp fyrir væntanlega afmælistónleika í Stúdíó Sýrlandi klukkan 14.00 í gær og það var rífandi stemning þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit við. Þeir Helgi, Jakob, Eyjó, Hrafn, Ingó og Stebbi fóru yfir helstu smelli sveitarinnar og fínpúss- uðu dagskrána. SSSÓL hefur glatt landsmenn lengi, eða allt frá því að sveitin var stofnuð árið 1987. Tónleikarnir sjálfir fara fram í Háskólabíó laugardaginn 15. októ- ber. Það er uppselt á seinni tón- leikana en enn eru einhverjir miðar eftir á fyrra kvöldið. Hljómsveitin Síðan skein sól hélt sína fyrstu tónleika í Hlaðvarpan- um í miðbæ Reykjavíkur, þar sem Tapasbarinn er nú til húsa, 25. mars árið 1987. Hljómsveitin hélt ferna tónleika 1987 og síðan tók við stíft tónleika- hald í félagsmiðstöðvum, skólum og ýmsum tónleikastöðum borgarinn- ar og árið 1989 hélt hún í hringferð um landið, í kassatúr þar sem hún lék að mestu órafmagnað. Síðan skein sól varð fljótlega ein vinsælasta hljómsveit landsins og sendi frá sér margan smellinn, lög á borð við Blautar varir, Geta pabbar ekki grátið, Ég verð að fá að skjóta þig, Halló ég elska þig, Ég stend á skýi og Toppurinn, Dísa, Vertu þú sjálfur og þannig mætti áfram telja. Lög sem voru grípandi og það sem mikilvægast er, skemmtileg. n Steikjandi hiti hjá félögunum í SSSól SSól hefur glatt lands- menn lengi, eða allt frá því að sveitin var stofnuð árið 1987. Allar skáldsögur Sjóns og ljóð frá 1978–2022 koma nú út saman í öskju; níu bækur sem hver og ein inniheldur eftirmála eftir fræði- mann eða rithöfund. HEILDARSAFN RITVERKA SJÓNS LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–17 34 Lífið 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.