Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 30
Þegar fjölskyldan kemur saman þykir fólki gott að hafa spil til að eiga góða stund. Helgi Ingi Sigurðsson lést þann 13. september sl. Samkvæmt ósk hins látna fór jarðarförin fram í kyrrþey. Aðstandendur Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur okkar, móður, stjúpmóður, tengdamóður, systur, mágkonu og ömmu, Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur píanóleikara, sem lést í faðmi fjölskyldunnar á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 11. september síðastliðinn. Útförin fór fram í Hallgrímskirkju 22. september. Sigurður Ingvi Snorrason Guðmundur Halldórsson Aagot Árnadóttir Ásta Sigurðardóttir Kristján Reynald Hjörleifsson Guðmundur Snorri Anna Katrín Þórkelsdóttir Sigurðarson Marían Sigurðsson Guðrún Dís Kristjánsdóttir Daníel Sigurðarson Eva Hillerz Hjördís Guðmundsdóttir Þorsteinn Jónsson Þórdís Guðmundsdóttir Sverrir Guðmundsson Guðbjörg Pálsdóttir Kristján Guðmundsson og barnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu, móður, dóttur, tengdadóttur, systur og frænku, Helgu Þráinsdóttur læknis, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans 6. september. Öllu samstarfsfólki hennar á Landspítalanum þökkum við samhug í sorginni. Okkar innilegustu þakkir til samstarfsfólks hennar á gjörgæsludeild fyrir fagleg vinnubrögð, umönnun, umhyggju og stuðning við erfiðar aðstæður. Guðmundur Magnús Sigurbjörnsson Iðunn Lilja Guðmundsdóttir Þórdís Lilja Gísladóttir Þráinn Hafsteinsson Sigríður Jónsdóttir Sigurbjörn Guðmundsson Hanna Þráinsdóttir Margrét Stefanía Gísladóttir Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Sigbjörnsdóttir frá Fáskrúðsfirði, Gullsmára 7, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítala Landakoti sunnudaginn 25. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 10. október kl. 11.00. Helgi S. Jónsson Marites Jónsson Unnsteinn Jónsson Kristín Sigurgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Píanistinn Ingi Bjarni Skúlason kemur fram með tríói sínu í Fríkirkju Hafnar- fjarðar í kvöld. Með honum verða Magnús Trygvason Eliassen á trommum og hinn færeyski Bárður Reinter Poulsen á bassa og spiluð verður frumsamin tón- list eftir Inga Bjarna. „Ég hitti Bárð þegar ég var að spila í Þrándheimi 2013 á sýningu fyrir ung djassbönd á Norðurlöndunum,“ segir Ingi Bjarni um tilurð tríósins. „Við spjöll- uðum um að gera eitthvað saman og úr varð samstarf með Magnúsi Trygva- syni.“ Það var þó ekki fyrr en árið 2017 að tríóið kom saman og spilaði í Færeyjum og tók upp plötuna Fundur sem kom út árið eftir. „Nú er kominn tími á að endurvekja þetta tríó aftur eftir Covid. Ég átti upp- safnað efni svo við verðum að spila nýtt efni sem við munum svo taka upp á plötu um helgina.“ Tónlist Inga Bjarna er lýst sem „undir áhrifum frá norrænum þjóðlögum og djassi með miklu spunaívafi.“ Erum við þá að tala um þjóðlagaskot- inn djass eða djassskotin þjóðlög? „Mér finnst alltaf gaman að segja að sé ekki endilega að semja djass eða þjóð- lög þótt ég sé vissulega undir áhrifum frá báðu. Þetta blandast svo bara saman í einhvers konar graut,“ svarar Ingi Bjarni. Tónleikarnir í Fríkirkju Hafnarfjarðar hefjast klukkan 20 í kvöld. n Ingi Bjarni Tríó í Hafnarfirði Ingi Bjarni fyrir miðju, vopnaður Magnúsi til vinstri og Bárði til hægri. MYND/AÐSEND Fimmtán ár eru liðin frá því að verslunin Spilavinir opnaði dyr sínar. Stofnandi segir spilamenn- ingu á Íslandi hafa öðlast aukna vídd á undanförnum árum. arnartomas@frettabladid.is Í vikunni voru liðin fimmtán ár frá því að Svanhildur Eva Stefánsdóttir og Linda Rós Ragnarsdóttir opnuðu verslunina Spilavini. Þar hefur skapast og vaxið samheldinn hópur spilafólks sem sækir ýmist í að kaupa borðspil eða að sækja spilakvöld og kennslu. „Þau sem voru svona fimm til sex ára þegar við vorum að opna eru núna komin í háskóla,“ segir Svanhildur Eva. „Ég sat með einum föstum gesti sem man þetta ekki öðruvísi en að við höfum verið til. Það er skemmtilegt að sjá hvernig svona gerist með tímanum.“ Þótt spilaáhugi landsmanna kunni að virðast ná hámarki um jólin segir Svan- hildur Eva að fólk sæki í að kynnast nýjum spilum allan ársins hring. „Við höfum fundið að við höfum náð meira inn á heimili og spil verið fastur liður hjá fólki,“ útskýrir hún. „Þegar fjöl- skyldan kemur saman þykir fólki gott að hafa spil til að eiga góða stund.“ Pílagrímsferð spilavinar En hvernig er spilaáhugi Íslendinga í alþjóðlegu samhengi? „Ég er núna á leiðinni á Spilamessuna í Essen í Þýskalandi þar sem tugþúsundir koma til að spila, bæði börn og full- orðnir,“ segir Svanhildur Eva. „Mekka spilanna er þannig eiginlega í Þýska- landi, Ísland hefur mikla hefð fyrir að eiga góða stund saman en við höfum verið að kynnast borðspilunum betur og betur.“ Svanhildur Eva segir að aukinn fjöl- breytileiki hafi færst inn í spilamenn- inguna á Íslandi á undanförnum árum. „Við getum verið í strategískum leikj- um, spurningaleikjum eða partíspilum. Við getum öll fundið eitthvað við okkar hæfi.“ Spil og með því Undir Spilavinum má svona finna kaffi- húsið Spilakaffi þar sem gestir geta sest niður og spilað saman. „Hingað koma fjölskyldur og vinahóp- ar að spila og fólk kynnist og annað. Stór hluti af því sem við erum að vinna að er að bæta menninguna og koma upp ein- hvers konar öruggu umhverfi fyrir fólk sem þarfnast kennslu eða félagsskapar,“ segir Svanhildur Eva. Er eitthvert spil í uppáhaldi hjá Svan- hildi þessa dagana? „Í minni fjölskyldu getur verið snúið að koma öllum saman en ég get fengið alla til að setjast niður í Family Inc. Það er bara fimmtán mínútna spil þar sem við byrjum bara að draga og spila,“ svar- ar hún. „Ef þú myndir spyrja mig eftir tvær vikur yrði það líklega eitthvert allt annað spil. Maður er alltaf að læra, finna nýtt og upplifa. Það er kannski það sem skiptir mestu máli.“ n Spilavinir fimmtán ára Vinkonurnar Svanhildur Eva og Linda Rós stofnuðu Spila- vini árið 2007. MYND/AÐSEND 1961 Minnst er hálfrar aldar afmælis Háskóla Íslands og er Háskólabíó vígt við það tækifæri. Bíótjaldið er heilir 200 fermetrar og er þá það stærsta í Evrópu. 1973 Jom kippúr-stríðið hefst með árás Egypta og Sýr- lendinga á Ísrael. 1980 Jarðstöðin Skyggnir tekin í notkun og komið á gervihnattasambandi við útlönd. 1981 Anwar Sadat, forseti Egyptalands, er myrtur. 2004 Þriðja lestarslysið á Íslandi verður er farþegalest og vöruflutningalest skella saman við Kárahnjúka- virkjun. 2008 Geir Haarde, þáverandi forsætisráðherra Íslands, flytur sjónvarpsávarp og endar það á setningunni: Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 6. október 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.