Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 17
Erfitt er að finna sam- jöfnuð við jafn langt ákvarðanaleysistíma- bil um jafn mikil- vægt málefni. Það eru reyndar einu pólitísku öfgarnar í stöðunni. Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli „Aðgerðir í loftslagsmálum til að ná kolefnishlutleysi hafa fram- kallað græna iðnbyltingu um allan heim. Íslendingar þurfa að nálgast verkefnið með því að velja leiðir, sem geta verið allt frá því að vera virkir þátttakendur í þessari bylt- ingu með áframhaldandi hagvexti og bættum lífskjörum til þess að slá af, horfa inn á við, draga saman orkusækna atvinnustarfsemi og líta til annarra verðmæta.“ Þetta er kjarninn í niðurstöðu trúnaðarmanna ríkisstjórnar- innar, Vilhjálms Egilssonar, Ara Trausta Guðmundssonar og Sig- ríðar Mogensen, í grænni skýrslu um áskoranir í orkumálum með hliðsjón af markmiðum í loftslags- málum, sem birt var í marsbyrjun. Valið Eigi að fara fyrri leiðina að lofts- lagsmarkmiðunum er sameiginleg niðurstaða trúnaðarmannanna sú að tvöfalda þurfi orkuöflun á næstu tveimur áratugum og senda um það skýr skilaboð. Það er líka sameiginleg niður- staða þeirra að fara megi hina leiðina og minnka þörfina fyrir nýja orku með því að slá af kröfum um hagvöxt og bætt lífskjör. Val á milli þessara tveggja leiða átti að réttu lagi að liggja fyrir í stjórnarsáttmála fyrir fimm árum. Vegna þess að það var ekki gert komast trúnaðarmennirnir að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að fjárfestingar í orkuframkvæmdum hafi hingað til ekki fylgt eftir markmiðum í loftslagsmálum. Þetta er afar harður áfellisdómur eftir jafn langa stjórnarsetu. Þögnin rofin Í þá sjö mánuði sem liðnir eru frá útkomu grænu skýrslunnar hefur ríkt grafarþögn um þær pólitísku ákvarðanir, sem hún kallar á og í raun þurfti að taka fyrir fimm árum. Vilhjálmur Egilsson for- maður starfshópsins, sem skrifaði skýrsluna, rauf loks í síðustu viku þagnarbindindið með því að lýsa þeirri skoðun að velja beri fyrri leiðina, sem mætir markmiðum stjórnarsáttmálans um orkuskipti, hagvöxt og velferð. Orri Páll Jóhannsson formaður þingflokks VG sagði af því tilefni á Alþingi að Vilhjálmur Egilsson talaði fyrir öfgafyllstu leið skýrsl- unnar og hefði með því endanlega gert vinnu starfshópsins að engu. Vilhjálmur sagði á móti að þessi viðbrögð sýndu að ekkert ætti að gera. Lögmálsbrot Þetta er í fyrsta skipti í fimm ár, sem fram koma pólitísk sjónarmið úr röðum stjórnarflokkanna um val á milli leiða til þess að ná lofts- lagsmarkmiðunum. Í grænu skýrslunni eru engir öfgakostir. Það verður því hvorki sagt um Vilhjálm Egilsson né Orra Pál Jóhannsson að þeir tali fyrir öfgum. En ummæli þeirra endurspegla óneitanlega gjörólíka pólitík. Hitt er augljóst að þeir hafa báðir brotið grundvallarlögmál stjórnarsamstarfsins um pólitísk- an stöðugleika með því að hafa pólitíska skoðun á einu stærsta viðfangsefni íslenskra stjórnmála. Forgangsröðun Til þess að ná fullum orkuskiptum með innlendri orku þarf pólitíska forgangsröðun. Það er hlutverk ríkisstjórnar að hafa forystu um hana. En það hefur hún vanrækt í fimm ár. Ljóst er að taka þarf loftslags- vernd fram fyrir náttúrvernd eigi að halda markmiðum stjórnar- sáttálans um hagvöxt og velferð. Vilji menn hins vegar ekki for- gangsraða milli loftslagsverndar og náttúruverndar er óhjákvæmilegt að láta markmiðin um hóflegan grænan hagvöxt víkja og að sama skapi slá af kröfum um vaxandi kaupmátt og velferð. Ríkisstjórnin er að hefja sjötta starfsár sitt án þess að kynna kjós- endum hver forgangsröðunin er. Erfitt er að finna samjöfnuð við jafn langt ákvarðanaleysistímabil um jafn mikilvægt málefni. Það eru reyndar einu pólitísku öfg- arnar í stöðunni. Hvað svo? Hvað gerist í framhaldinu? Svar: Lítið. VG mun þæfa ákvarðanir um nýja orkuöflun. Í besta falli verða teknar ákvarðanir á þessu kjör- tímabili um fimmtung þeirrar orku, sem þarf næstu sautján ár til að fara megi fyrri leiðina. Umhverfisráðherra virðist hafa metnað til að fylgja eftir stefnu Vil- hjálms Egilssonar. En á endanum er líklegast að hann verði að sætta sig við þanþol VG. Afleiðingarnar verða tvenns konar: Ísland mun ekki ná fullum orku- skiptum á tilsettum tíma.Minni líkur eru á að hagvöxtur með grænni iðnbyltingu verði nægur til að standa undir kjarasamningum og nýjum tekjum til að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Ákvarðanaleysið er dýrkeypt þó að það tryggi pólitískan stöðug- leika við ríkisstjórnarborðið. n Öfgar Rnr. 261470 Rnr. 149431 Rnr. 149511 Rnr. 149432 Rnr. 149510 Rnr. 149215 Rnr. 410253 Rnr. 149451 VERÐ: 5.490.000 kr. VERÐ: 4.090.000 kr. VERÐ: 8.490.000 kr. VERÐ: 4.590.000 kr. VERÐ: 6.290.000 kr. VERÐ: 7.990.000 kr. VERÐ: 6.290.000 kr. VERÐ: 9.990.000 kr. BMW X3 Xdrive30e Nýskr. 06/21, ekinn 21 þ.km, bensín, sjálfskiptur. LAND ROVER Discovery Sport SE Nýskr. 02/17, ekinn 87 þ.km, dísil, sjálfskiptur. MG ZS EV Luxury Nýskr. 08/20, ekinn 21 þ.km, rafmagn, sjálfskiptur. RENAULT Kadjar Bose 2wd Nýskr. 04/20, ekinn 38 þ.km, dísil, sjálfskiptur. LAND ROVER Discovery Sport SE R-Dynamic Nýskr. 02/18, ekinn 65 þ.km, dísil, sjálfskiptur. LAND ROVER Discovery 5 SE Nýskr. 07/17, ekinn 103 þ.km, dísil, sjálfskiptur. NISSAN Qashqai Tekna 2wd Nýskr. 12/21, ekinn 11 þ.km, bensín, sjálfskiptur. JAGUAR I-Pace EV400 S Nýskr. 04/20, ekinn 17 þ.km, rafmagn, sjálfskiptur. OPNUNARTÍMI Á K7: Mánudaga 10-18, þriðjud.–fimmtud. 9-18, föstudaga 9-17, laugardaga 12-16 Bílaland og Hyundai notaðir Krókhálsi 7, 110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is facebook.com/bilaland.is www.bilaland.is NOTAÐIR BÍLAR Á GÓÐU VERÐI Traust og áreiðanleiki skipta öllu máli í bílaviðskiptum. Bílarnir okkar eru yfirfarnir og ástandsskoðaðir E N N E M M / S ÍA / N M 0 1 2 9 1 1 B íl a la n d a lm e n n ir 5 x 2 0 6 o k t 2 FIMMTUDAGUR 6. október 2022 Skoðun 15FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.