Fréttablaðið - 06.10.2022, Page 17
Erfitt er að finna sam-
jöfnuð við jafn langt
ákvarðanaleysistíma-
bil um jafn mikil-
vægt málefni. Það eru
reyndar einu pólitísku
öfgarnar í stöðunni.
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
„Aðgerðir í loftslagsmálum til að
ná kolefnishlutleysi hafa fram-
kallað græna iðnbyltingu um allan
heim. Íslendingar þurfa að nálgast
verkefnið með því að velja leiðir,
sem geta verið allt frá því að vera
virkir þátttakendur í þessari bylt-
ingu með áframhaldandi hagvexti
og bættum lífskjörum til þess að
slá af, horfa inn á við, draga saman
orkusækna atvinnustarfsemi og
líta til annarra verðmæta.“
Þetta er kjarninn í niðurstöðu
trúnaðarmanna ríkisstjórnar-
innar, Vilhjálms Egilssonar, Ara
Trausta Guðmundssonar og Sig-
ríðar Mogensen, í grænni skýrslu
um áskoranir í orkumálum með
hliðsjón af markmiðum í loftslags-
málum, sem birt var í marsbyrjun.
Valið
Eigi að fara fyrri leiðina að lofts-
lagsmarkmiðunum er sameiginleg
niðurstaða trúnaðarmannanna
sú að tvöfalda þurfi orkuöflun á
næstu tveimur áratugum og senda
um það skýr skilaboð.
Það er líka sameiginleg niður-
staða þeirra að fara megi hina
leiðina og minnka þörfina fyrir
nýja orku með því að slá af kröfum
um hagvöxt og bætt lífskjör.
Val á milli þessara tveggja leiða
átti að réttu lagi að liggja fyrir í
stjórnarsáttmála fyrir fimm árum.
Vegna þess að það var ekki gert
komast trúnaðarmennirnir að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu að
fjárfestingar í orkuframkvæmdum
hafi hingað til ekki fylgt eftir
markmiðum í loftslagsmálum.
Þetta er afar harður áfellisdómur
eftir jafn langa stjórnarsetu.
Þögnin rofin
Í þá sjö mánuði sem liðnir eru frá
útkomu grænu skýrslunnar hefur
ríkt grafarþögn um þær pólitísku
ákvarðanir, sem hún kallar á og
í raun þurfti að taka fyrir fimm
árum.
Vilhjálmur Egilsson for-
maður starfshópsins, sem skrifaði
skýrsluna, rauf loks í síðustu viku
þagnarbindindið með því að lýsa
þeirri skoðun að velja beri fyrri
leiðina, sem mætir markmiðum
stjórnarsáttmálans um orkuskipti,
hagvöxt og velferð.
Orri Páll Jóhannsson formaður
þingflokks VG sagði af því tilefni
á Alþingi að Vilhjálmur Egilsson
talaði fyrir öfgafyllstu leið skýrsl-
unnar og hefði með því endanlega
gert vinnu starfshópsins að engu.
Vilhjálmur sagði á móti að þessi
viðbrögð sýndu að ekkert ætti að
gera.
Lögmálsbrot
Þetta er í fyrsta skipti í fimm ár,
sem fram koma pólitísk sjónarmið
úr röðum stjórnarflokkanna um
val á milli leiða til þess að ná lofts-
lagsmarkmiðunum.
Í grænu skýrslunni eru engir
öfgakostir. Það verður því hvorki
sagt um Vilhjálm Egilsson né
Orra Pál Jóhannsson að þeir tali
fyrir öfgum. En ummæli þeirra
endurspegla óneitanlega gjörólíka
pólitík.
Hitt er augljóst að þeir hafa
báðir brotið grundvallarlögmál
stjórnarsamstarfsins um pólitísk-
an stöðugleika með því að hafa
pólitíska skoðun á einu stærsta
viðfangsefni íslenskra stjórnmála.
Forgangsröðun
Til þess að ná fullum orkuskiptum
með innlendri orku þarf pólitíska
forgangsröðun. Það er hlutverk
ríkisstjórnar að hafa forystu um
hana. En það hefur hún vanrækt í
fimm ár.
Ljóst er að taka þarf loftslags-
vernd fram fyrir náttúrvernd eigi
að halda markmiðum stjórnar-
sáttálans um hagvöxt og velferð.
Vilji menn hins vegar ekki for-
gangsraða milli loftslagsverndar og
náttúruverndar er óhjákvæmilegt
að láta markmiðin um hóflegan
grænan hagvöxt víkja og að sama
skapi slá af kröfum um vaxandi
kaupmátt og velferð.
Ríkisstjórnin er að hefja sjötta
starfsár sitt án þess að kynna kjós-
endum hver forgangsröðunin er.
Erfitt er að finna samjöfnuð við
jafn langt ákvarðanaleysistímabil
um jafn mikilvægt málefni. Það
eru reyndar einu pólitísku öfg-
arnar í stöðunni.
Hvað svo?
Hvað gerist í framhaldinu? Svar:
Lítið.
VG mun þæfa ákvarðanir um
nýja orkuöflun. Í besta falli verða
teknar ákvarðanir á þessu kjör-
tímabili um fimmtung þeirrar
orku, sem þarf næstu sautján ár til
að fara megi fyrri leiðina.
Umhverfisráðherra virðist hafa
metnað til að fylgja eftir stefnu Vil-
hjálms Egilssonar. En á endanum
er líklegast að hann verði að sætta
sig við þanþol VG.
Afleiðingarnar verða tvenns
konar:
Ísland mun ekki ná fullum orku-
skiptum á tilsettum tíma.Minni
líkur eru á að hagvöxtur með
grænni iðnbyltingu verði nægur til
að standa undir kjarasamningum
og nýjum tekjum til að greiða
niður skuldir ríkissjóðs.
Ákvarðanaleysið er dýrkeypt þó
að það tryggi pólitískan stöðug-
leika við ríkisstjórnarborðið. n
Öfgar
Rnr. 261470
Rnr. 149431
Rnr. 149511
Rnr. 149432
Rnr. 149510
Rnr. 149215
Rnr. 410253
Rnr. 149451
VERÐ:
5.490.000 kr.
VERÐ:
4.090.000 kr.
VERÐ:
8.490.000 kr.
VERÐ:
4.590.000 kr.
VERÐ:
6.290.000 kr.
VERÐ:
7.990.000 kr.
VERÐ:
6.290.000 kr.
VERÐ:
9.990.000 kr.
BMW X3 Xdrive30e
Nýskr. 06/21, ekinn 21 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
LAND ROVER Discovery Sport SE
Nýskr. 02/17, ekinn 87 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
MG ZS EV Luxury
Nýskr. 08/20, ekinn 21 þ.km,
rafmagn, sjálfskiptur.
RENAULT Kadjar Bose 2wd
Nýskr. 04/20, ekinn 38 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
LAND ROVER Discovery Sport SE R-Dynamic
Nýskr. 02/18, ekinn 65 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
LAND ROVER Discovery 5 SE
Nýskr. 07/17, ekinn 103 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
NISSAN Qashqai Tekna 2wd
Nýskr. 12/21, ekinn 11 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
JAGUAR I-Pace EV400 S
Nýskr. 04/20, ekinn 17 þ.km,
rafmagn, sjálfskiptur.
OPNUNARTÍMI Á K7:
Mánudaga 10-18, þriðjud.–fimmtud. 9-18,
föstudaga 9-17, laugardaga 12-16
Bílaland og Hyundai notaðir
Krókhálsi 7, 110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
facebook.com/bilaland.is
www.bilaland.is
NOTAÐIR BÍLAR Á GÓÐU VERÐI
Traust og áreiðanleiki skipta öllu máli í bílaviðskiptum. Bílarnir okkar eru yfirfarnir og ástandsskoðaðir
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
1
2
9
1
1
B
íl
a
la
n
d
a
lm
e
n
n
ir
5
x
2
0
6
o
k
t
2
FIMMTUDAGUR 6. október 2022 Skoðun 15FRÉTTABLAÐIÐ