Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 4
Foreldrar hafa verið mjög örlátir og gefið bækur að heiman sem börnin eru hætt að nota. Hlynur Jóns- son, skólastjóri Myllubakka- skóla SSSól í stuði í Stúdíói 12 Það var afar glatt á hjalla og mikil stemning í Stúdíói 12 í gær þar sem hljómsveitin SSSól hitaði upp fyrir afmælistónleika sveitarinnar sem fram fara í Háskóla- bíói þann 15. október. Hljómsveitin hefur verið starfandi frá árinu 1987 og fagnar því 35 ára afmæli í ár. SJÁ SÍÐU 34 FRÉTTABLAÐIÐ/AFI VALLI Myllubakkaskóli í Keflavík óskar eftir aðstoð foreldra og annarra við að byggja upp nýtt bókasafn. Farga þurfti öllum bókum eftir að mygla kom upp. kristinnhaukur@frettabladid.is SUÐURNES Farga þurfti öllum bóka­ kosti bókasafns Myllubakkaskóla í Keflavík eftir að rakaskemmdir þar ollu myglu. Það mun taka mörg ár að byggja upp nýtt bókasafn í skólan­ um en foreldrar barnanna eru þegar byrjaðir að gefa bækur að heiman. „Foreldrar hafa verið mjög örlátir og gefið bækur að heiman sem börnin eru hætt að nota,“ segir Hlynur Jónsson, skólastjóri Myllu­ bakkaskóla. Skólastjórnin hefur óskað eftir aðstoð við að byggja bókasafnið upp á nýjan leik og er þakklát fyrir allar bókagjafir sem berast. Þörf er á bókum fyrir allan grunnskólaaldurinn, frá fyrsta til tíunda bekkjar, til yndislesturs og annarra verkefna. Myllubakkaskóli er elsti grunn­ skóli Reykjanesbæjar, stofnaður árið 1952, og í honum eru um 370 nem­ endur. Mygla fannst í skólanum árið 2019. Erfiðlega hefur reynst að fást við hana og starfsfólk hefur þurft að fara í veikindaleyfi. Myglan hefur fundist á mörgum stöðum í bygg­ ingunni og ákveðið var að rífa hluta hennar en fara í viðgerðir á öðrum stöðum. Verkið var boðið út á þessu ári. Bókasafnið er eitt af þeim rýmum í skólanum sem þurfti að gera við­ gerðir á og þá var tekin ákvörðun um að farga öllum bókakostinum. Þetta voru um 15 þúsund bækur, þar af um 5 þúsund fræðirit. „Það er mjög erfitt að þrífa myglu­ gró úr blöðum eða öðrum opnum viði. Það þarf að vera úr plasti eða plasthúðað til að hægt sé að þrífa gróin af,“ segir Hlynur. Skólinn hefur verið í nánu samstarfi við sveitar­ félagið um aðgerðirnar. „Ég held að flestir aðrir skólar landsins þar sem komið hefur upp mygla hafi farið í svipaðar aðgerðir og við gerðum,“ segir hann. Fyrir utan hið mikla magn bóka sem þurfti að farga þurfti að farga miklu magni af öðrum pappír. Þar á meðal ljósmyndum úr skólastarfinu. Við uppbyggingu nýs bókasafns er hugmyndin að búa fyrst til þrjú minni bókasöfn, fyrir hvert stig grunnskólans svo að nemendur hafi aðgang að fjölbreyttum bókakosti. Á meðan verið er að byggja upp nýtt bókasafn mun Myllubakkaskóli styðjast við bókasafn bæjarins. „Við erum svo heppin að vera nálægt Bókasafni Reykjanesbæjar þannig að nemendurnir geta farið yfir og valið sér bækur,“ segir Hlynur. „Þar er mjög góður bókakostur.“ n Þurftu að farga fimmtán þúsund bókum safnsins Mygla fannst fyrst í skólanum árið 2019. MYND/MYLLUBAKKASKÓLI kristinnpall@frettabladid.is SAMGÖNGUR Icelandair notaðist tólf sinnum við þotur í innan­ landsf lugi í september. Þoturnar voru notaðar við áætlunarf lug til Akureyrar og Egilsstaða. Um var að ræða þotur af gerðunum Boeing 757 og 737 MAX. Notkun á þotum í innanlands­ f lugi hefur aukist í haust en alls hefur Icelandair notað þotur í 20 áætlunarflug á þessu ári. „Þetta hefur verið gert til þess að bregðast við röskunum sem orðið hafa, til dæmis vegna veðurs eða viðhalds f lugvéla með það fyrir augum að koma farþegum sem fyrst á áfangastað,“ segir Guðni Sigurðs­ son á samskiptasviði Icelandair. „Icelandair hefur ekki hug á að nýta þotur almennt í innanlands­ flug, enda hentar f lotinn sem not­ aður er í innanlandsflug og styttri millilandaflug (DHC Q200 og Q400) mjög vel miðað við núverandi áætlun,“ segir Guðni og bætir við að ekki hafi borist kvartanir vegna aukinnar hljóðmengunar sem fylgir þotum á borð við 757­vélina. n Þotunotkun í innanlandsflugi jókst Íbúar í miðbæ Reykjavíkur hafa séð þó nokkrar 737-Max vélar taka á loft í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK KAUPUM BLEIKU SLAUFUNA Sýnum lit á bleikaslaufan.is og á sölustöðum um allt land 1. – 20. október LíFIÐ E að FLOKKA RUSLIÐ SITT OG EIGA LÍTINN GARÐ ragnarjon@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Farið verður fram á lengra gæsluvarðhald yfir mönnun­ um tveimur sem nú eru í haldi lög­ reglu vegna rannsóknar á meintri skipulagningu hryðjuverka. „Það liggur fyrir ákvörðun um að óska eftir að héraðsdómur úrskurði þá í lengra gæsluvarðhald,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssak­ sóknari en gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur rennur út í dag. Báðir hafa mennirnir nú setið í varðhaldi lögreglu í tvær vikur. Lögmenn mannanna tveggja hafa gagnrýnt framkvæmd varðhaldsins en báðir menn hafa verið settir í ein­ angrun meðan á því stendur. Ólafur Þór staðfestir að menn­ irnir séu enn í einangrun en ekki sé hægt að veita upplýsingar um það hvers vegna farið hafi verið fram á slíkar takmarkanir. „Við getum ekki talað um þetta við fjölmiðla, þetta er samtal sem við eigum við dómstólinn sem síðar meir leggur mat á þetta,“ segir Ólafur Þór. n Fara fram á lengra gæsluvarðhald Gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur rennur út í dag. 2 Fréttir 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.