Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 42
Svo er alltaf gaman að
fylgjast með trúð-
unum, hvort þeir
droppi grímunni og
finni í raun ástina.
Vigdís Diljá
Vinsælasti þátturinn meðal landsmanna á Netflix-streymis-
veitunni endurspeglar myrkur októbermánaðar en þar blæs
Evan Peters lífi í bandaríska raðmorðingjann Jeffrey Dahmer
sem myrti sautján unga karlmenn frá 1978 til 1991. Fréttablað-
ið tók saman nokkra af vinsælustu sjónvarpsþáttum sögunnar
um raunverulega raðmorðingja og sannsöguleg glæpamál.
odduraevar@frettabladid.is
Hryllilegu
sakamálaþættirnir
sem slá í gegn
Dahmer (2022)
Evan Peters fer
með hlutverk
raðmorðingjans
Jeffrey Dahmer í
nýjustu sjón-
varpsþáttaröð-
inni á listanum.
Þættirnir eru afar
umdeildir og
fjölskyldur fórnarlamba hans hafa
gagnrýnt þá.
The Jinx: The Life and Deaths
of Robert Durst (2015)
Líklega lygi-
legustu þættirnir
á listanum og
þeir einu þar sem
heimildarþátta-
gerðarfólkið
hefur áhrif á
framvindu máls-
ins. Milljónamæringurinn Robert
Durst er ekki allur þar sem hann er
séður en gekk lengi vel laus þrátt
fyrir hvarf eiginkonu sinnar og
morðið á bestu vinkonu sinni.
Making a Murderer (2015)
Heimildarþættir
um Steven Avery
sem hafði fram
að gerð þátt-
anna setið átján
ár í fangelsi eftir
að hafa verið
dæmdur fyrir
morðtilraun sem
hann bar ekki ábyrgð á. Steven
var sleppt árið 2003 en þá var
fjandinn laus. Hann var hand-
tekinn aftur 2005, þá sakaður um
annað morð.
Mindhunter (2017-2019)
Drungalegir
leiknir þættir um
FBI-fulltrúana
Holden Ford og
Bill Tench sem
gera sitt allra
besta til að læra
að skilja rað-
morðingja til þess að fanga þá.
Þættirnir byggja á sannsögulegum
atburðum og koma við sögu
þekktir morðingjar.
Ummerki (2020-2021)
Áhugaverðir þættir á Stöð 2 um
íslensk sakamál í umsjón Sunnu
Karenar Sigurþórsdóttur. Farið er
yfir öll stig rannsóknarinnar, allt
frá fyrstu viðbrögðum yfir í upp-
kvaðningu dóms í réttarsal.
The Keepers (2017)
Heimildarþættir
um óleyst morð
á Cathy Cesnik,
ástsælli nunnu
og mennta-
skólakennara í
Baltimoreborg í
Bandaríkjunum.
Cathy var myrt
árið 1969 en málið opnað aftur á tí-
unda áratugnum eftir að nemandi
sagði frá því að hún hefði séð lík
Cathy eftir að prestur við skólann
sýndi henni líkið og hótaði henni.
Night Stalker: The hunt for a
serial killer (2021)
Heimildarþættir
í fjórum hlutum
um leitina að
raðmorðingj-
anum Richard
Ramirez. Ram-
irez myrti hið
minnsta þrettán
manns á hrotta-
fenginn hátt árin 1984 til 1985 í
Los Angeles og var að endingu
dæmdur til dauða fyrir glæpi sína.
Conversations with a killer:
The Ted Bundy case (2019)
Bandarískir
heimildarþættir
sem byggja á 100
klukkustundum
af viðtölum og
yfirheyrslum yfir
raðmorðingj-
anum Ted Bundy
sem myrti hið
minnsta þrjátíu konur en fjöldi
fórnarlamba hans er enn á huldu.
Conversations with a killer:
The John Wayne Gacy tapes
(2022)
Heimildarþættir
úr sömu seríu og
þeirri sem fyrst
gerði viðtöl við
raðmorðingjann
Ted Bundy að
viðfangsefni.
Hér eru birtar
upptökur úr yfirheyrslum við rað-
morðingjann John Wayne Gacy
sem myrti minnst 33 unga karl-
menn árin 1972 til 1978.
Hvernig byrjar Bachelor in
Paradise?
Vigdís Diljá
Óskarsdóttir
aðdáandi
„Ég er bara svo
glöð að þetta
sé byrjað aftur,“
segir Bachelor-
aðdáandinn Vig-
dís Diljá um nýju
seríuna af bandarísku raunveru-
leikaþáttunum Bachelor in Para-
dise sem hófu göngu sína aftur í
Sjónvarpi Símans í síðustu viku.
„Paradise er krúnudjásn Bach-
elor-þáttanna og ástæðan fyrir
því að það eru til fáránlega mörg
Bachelor-pör í dag. Mér leist vel á
fyrsta þáttinn, þetta virðist ætla
að verða frekar klassískt. Sumir
detta beint í samband en aðrir
eru þarna meira sem comic relief,
hræra í pottinum og skapa drama.
Hvoru tveggja er nauðsynlegt að
hafa fyrir góða BIP-seríu.“
Þá stendur ekki á svörum hjá
Vigdísi þegar hún er spurð álits
á keppendum í þættinum í ár og
hvort hún hafi einhverja trú á því
að einhverjir þeirra muni finna
raunverulega ást að þessu sinni.
„Hópurinn á ströndinni saman-
stendur af nokkrum uppáhalds
keppendum í bland við keppend-
ur sem enginn þolir eða man eftir.
Öll samankomin undir því yfirskini
að finna ástina á ströndinni og/
eða sviðsljósið sem þau fengu
ekki nóg af þegar þau kepptu í
Bachelor eða Bachelorette. Oft
eru þau líka búin að kynnast í
gegnum samfélagsmiðla og hitt-
ast fyrir þættina – en ákveða að
fara samt á ströndina og kynnast
þar með myndavélarnar á sér,
þannig græða þau mikið meira.
En að því sögðu þá finnst mér
margir góðir í ár! Katie fékk þvílíka
a-klassa menn í sína seríu sem eru
margir þarna. Ég er sérstaklega
spennt að sjá Michael A. Hann
verður held ég langvinsælastur hjá
stelpunum.
Svo er líka alltaf gaman að
fylgjast með trúðunum, hvort þeir
droppi grímunni og finni í raun
ástina. Tarsan sem mætti í engu
nema laufi yfir jafnaldrann eða
læknirinn sem segist dreyma um
að verða klámstjarna. Ég myndi
ekki endilega segja að líkurnar á
ástarsögu á ströndinni væru þeim
í hag en það verður spennandi að
fylgjast með.
Þau sem ég reikna samt með að
muni enda saman eru Andrew og
Teddi og Brandon og Serene.“ n
n Lykilspurningin
Lúserar í Bachelor og Bachelorette
mæta loksins til leiks í paradísina.
Helgi Gunn-
laugsson
afbrotafræðingur
„Ég hef ekki
séð þetta en er
búinn að heyra
um þetta,“ segir
Helgi spurður
út í hvað útskýri
mikinn áhuga
Íslendinga á raðmorðingjum líkt
og Jeffrey Dahmer sem nú tryllir
vinsældalista Netflix.
Fjölskyldur fórnarlamba
Dahmer hafa gagnrýnt þættina
mjög og margir hafa sakað Netflix
um græðgi og að græða á þjáningu
fórnarlambanna. Helgi segir um
að ræða sérsvið í afbrotafræði
þar sem fræðifólk veltir fyrir sér
áhuga almennings á öfgafullri
hegðun líkt og þessari.
„Margir nemendur mínir í
afbrotafræðinni velja sér fjölda-
morðingja eða öfgafulla einstakl-
inga. Það er eitt en svo eru nem-
endur til dæmis í framhaldsskóla
og grunnskóla sem hafa samband
við mig og vilja vita hvað afbrota-
fræðin segir um slíka einstaklinga.
Ég hef alltaf tekið þessu vel og
þessi áhugi hefur verið til staðar í
mörg ár.“
Helgi nefnir sambærilegan
áhuga á glæpasögum. „Fyrir
nokkrum árum síðan tók ég mig til
og greindi bækur Arnalds Indriða-
sonar. Ég velti áhuganum á hans
bókum fyrir mér út frá afbrota-
fræðinni. Ég man að svörin felast
í því að við lifum hér frekar hvers-
dagslegu lífi, þar sem það gerist
yfirleitt ekkert mjög óvenjulegt,
sem betur fer auðvitað.
Þess vegna finnst mörgum
gaman að fara inn í þennan heim,
þar sem eru viðburðir og drama
og manneskjur eins og við, sem
maður getur að einhverju leyti
sett sig í sporin hjá,“ útskýrir Helgi.
Rennur þér ekkert blóðið til
skyldunnar að horfa á þetta?
„Jú, jú, ég á örugglega eftir að
kíkja á þetta. En ég á svo rosalega
erfitt með svona seríur og þætti.
Það er ein sería sem allir segja
mér að horfa á og það er Breaking
Bad. Einn nemandi meira að segja
skrifaði fína BA-ritgerð um þátt-
inn. Hann var alltaf að spyrja hvort
ég ætlaði að horfa og ég horfði á
einn og hálfan þátt og taldi mig fá
tilfinningu fyrir þessu og nennti
ekki meiru.
Ég er ekkert að dissa þetta,
þetta er ofsalega vel gert og flott
efni en fyrir mig persónulega þá
á ég voðalega erfitt með svona
seríur. Ég hef áhuga á öðru, eins og
heimildarmyndum um rokkstjörn-
ur eða Luis Figo. Ég hámhorfði á
það en aðrir hafa engan áhuga á
einhverjum svona fótboltakalli.
Þannig að þetta snýst ekki um að
setja mig á háan hest,“ segir Helgi
og hlær. n
Áhuginn sprottinn upp úr viðburðasnauðu lífi
n Sérfræðingurinn
32 Lífið 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 6. október 2022 FIMMTUDAGUR