Fréttablaðið - 06.10.2022, Síða 44
Mér finnst líka eitt-
hvað fallegt og rétt við
það að þríleikurinn
muni spanna 40-45 ár.
Óskar Þór
Axelsson
Þeir Tóti, Stebbi
psycho og
Sævar mæta
aftur á hvíta
tjaldið eftir tíu
ára fjarveru.
MYND/AÐSEND
Leikstjórinn Óskar Þór Axels-
son segir tímann loks réttan til
ráðast í ekki eina, heldur tvær
framhaldsmyndir af Svartur á
leik. Myndin á tíu ára afmæli
og er mætt aftur í bíó.
odduraevar@frettabladid.is
„Eins og þetta er oft þá raðast
stjörnurnar bara einhvern veginn
rétt upp og það er þannig í þessu
tilviki,“ segir Óskar Þór Axelsson
um ákvörðunina um að ráðast í for-
leik og eftirleik á Svartur á leik, sem
fagnar nú tíu ára afmæli.
Myndin var hans fyrsta í fullri
lengd sem leikstjóra og byggðist á
samnefndri skáldsögu Stefáns Mána.
Myndin fylgir eftir Stebba psycho
sem rekst á æskuvin sinn Tóta frá
Ólafsvík sem býður honum vinnu.
Fyrr en varir er Stebbi flæktur inn
í ofbeldisfullan heim eiturlyfja og
glæpa.
„Einhvern tímann ekkert svo
löngu eftir að myndin kom út þá
fékk ég þessa hugmynd. Að hætta að
horfa til þess að gera framhald um
persónurnar, heldur að horfa á þetta
þannig að aðalpersónan sé í raun
undirheimarnir,“ útskýrir Óskar um
nýju myndirnar tvær sem stefnt er á
að komi út 2024 og 2025.
„Að láta þetta ekki snúast um
Stebba eða Tóta heldur um sögu
undirheimanna. Svartur á leik sner-
ist um það þegar undirheimarnir
misstu sveindóminn. Hættu að vera
saklausir og urðu skipulagðari með
harðari glæpum og þyngri dómum.
Nú langar mig að segja söguna alla,
frá því þegar undirheimarnir byrj-
uðu að mótast og til dagsins í dag.“
Óskar útskýrir að fyrri myndin
muni tengjast þeim atburðum þegar
fyrsti eiturlyfjadómurinn féll hér á
landi árið 1975. „Þar ertu með upp-
hafið á níunda áratugnum. Pönkið,
Bubbi og spíttið, þegar allt verður
harðara,“ útskýrir leikstjórinn.
„Í framhaldsmyndinni af Svartur
á leik færum við okkur í nútímann.
Stóra fíkniefnamálið eins og við köll-
uðum málið á sínum tíma er komið í
dvergstærð miðað við fíkniefnamál
nútímans. Nú eru undirheimarnir
miklu skipulagðari, erlendir glæpa-
hringir vaða uppi og þetta er miklu
meiri iðnaður og meiri fíkniefna-
framleiðsla hér heima. Við horfðum
upp á aftöku hér í Rauðagerðismál-
inu í fyrra.“
Þannig muni persónur myndanna
þriggja tengjast en persónur líkt og
Jói Faraó, sem brá fyrir í Svartur
á leik, muni til að mynda gegna
lykilhlutverki í fyrstu myndinni.
„Þá verður aðalmaðurinn í seinni
myndinni mögulega litli frændi
Tóta eða einhver yngri. Þannig að
við horfum á þetta sem þríleik þar
sem við erum búnir að gera miðju-
myndina. Þetta er alveg eins og Star
Wars sem byrjaði á kafla fjögur,“
segir Óskar hlæjandi.
Aðspurður segir Óskar að rithöf-
undurinn Stefán Máni muni koma
að handritsgerð við nýju myndirnar
og liðsinna teyminu, sem er það
sama og skrifaði handritið að upp-
runalegu myndinni. Óskar segist
hafa verið með þríleikinn í mag-
anum í nokkur ár. Aðspurður segist
hann vera óhræddur við að fylgja
velgengni Svartur á leik loksins eftir.
„Það eru liðin nokkur ár og maður
er kominn með svolítið hungur. Það
hefði líklega ekki verið sniðugt að
fara í þetta strax, heldur leyfa þessu
að malla í nokkur ár. Mér finnst líka
eitthvað fallegt og rétt við það að
þríleikurinn muni spanna 40-45 ár,
frá upphafi níunda áratugarins til
dagsins í dag. Það er eitthvað ljóð-
rænt við þetta.“ n
Réttur tími til að gera þríleik
Helgi Björns og félagar hituðu upp í
Stúdíó Sýrlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
odduraevar@frettabladid.is
Hljómsveitin SSSÓL hitaði upp
fyrir væntanlega afmælistónleika í
Stúdíó Sýrlandi klukkan 14.00 í gær
og það var rífandi stemning þegar
ljósmyndari Fréttablaðsins leit við.
Þeir Helgi, Jakob, Eyjó, Hrafn,
Ingó og Stebbi fóru yfir helstu
smelli sveitarinnar og fínpúss-
uðu dagskrána. SSSÓL hefur glatt
landsmenn lengi, eða allt frá því að
sveitin var stofnuð árið 1987.
Tónleikarnir sjálfir fara fram í
Háskólabíó laugardaginn 15. októ-
ber. Það er uppselt á seinni tón-
leikana en enn eru einhverjir miðar
eftir á fyrra kvöldið.
Hljómsveitin Síðan skein sól hélt
sína fyrstu tónleika í Hlaðvarpan-
um í miðbæ Reykjavíkur, þar sem
Tapasbarinn er nú til húsa, 25. mars
árið 1987.
Hljómsveitin hélt ferna tónleika
1987 og síðan tók við stíft tónleika-
hald í félagsmiðstöðvum, skólum og
ýmsum tónleikastöðum borgarinn-
ar og árið 1989 hélt hún í hringferð
um landið, í kassatúr þar sem hún
lék að mestu órafmagnað.
Síðan skein sól varð fljótlega ein
vinsælasta hljómsveit landsins og
sendi frá sér margan smellinn, lög á
borð við Blautar varir, Geta pabbar
ekki grátið, Ég verð að fá að skjóta
þig, Halló ég elska þig, Ég stend á
skýi og Toppurinn, Dísa, Vertu þú
sjálfur og þannig mætti áfram telja.
Lög sem voru grípandi og það sem
mikilvægast er, skemmtileg. n
Steikjandi hiti hjá
félögunum í SSSól
SSól hefur glatt lands-
menn lengi, eða allt
frá því að sveitin var
stofnuð árið 1987.
Allar skáldsögur Sjóns og ljóð frá 1978–2022
koma nú út saman í öskju; níu bækur sem
hver og ein inniheldur eftirmála eftir fræði-
mann eða rithöfund.
HEILDARSAFN
RITVERKA SJÓNS
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–17
34 Lífið 6. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ