Fréttablaðið - 06.10.2022, Side 12
standa að frumvarpi um rýmri
heimildir til sölu áfengis. Hafdís
Hrönn segir að einn megintilgang-
ur frumvarpsins sé að halda sölu á
áfengi inni í sérbúðum ÁTVR með
því að auka þjónustu en missa ekki
söluna í almennar matvörubúðir
eins og sumir þingmenn hafa viljað.
„Frumvarpið er innlegg um að
áfram verði sérverslun og að hluti
áfengisgjaldsins renni til forvarna
og lýðheilsu,“ segir Hafdís Hrönn.
Þingkonan segir sorglegt að fé til
forvarna hafi rýrnað milli ára og
„lítið sé að gerast í þeim efnum“ eins
og hún orðar það. „Í greinargerð
með frumvarpinu er skýrt að blása
verði til aukinna forvarna.“
Þriðja hvert barn drukkið
Ársæll Arnarson, prófessor á
men nt av í si nd a s v iði Há skóla
Íslands, faglegur stjórnandi Íslensku
æskulýðsrannsóknarinnar, segir
ákveðna mótsögn felast í því að
drykkja í samfélaginu hafi stórauk-
ist á sama tíma og unglingadrykkja
sé mun minna mein en áður. Þó sé
drykkja ungmenna að þokast upp á
við undanfarið, en varla marktækt.
„Við sitjum eftir með ákveðinn
hluta af börnum sem drekka áfengi,
upp undir 30 prósent af tíundu-
bekkingum hafa drukkið áfengi
samkvæmt nýjustu rannsóknum,“
segir Ársæll.
Hann segir að staðan hafi verið
upp á við hjá foreldrum en önd-
verða sögu sé að segja af íslenskum
börnum.
„Við erum að taka mikla sénsa
með því að auka aðgengi að áfengi.“
Unglingar skotmörk
Ársæll segir að unglingadrykkja
hafi verið mikil plága á árum áður.
Þótt árangur hafi náðst dugi ekki að
leggja árar í bát.
„Áfengi er vímuefni sem getur
skapað fíkn. Það er góður bissness
fyrir áfengisframleiðendur að kló-
festa sem yngsta kúnna. Unglingar
eru endalaus skotmörk áfengisfram-
leiðenda og það er dapurlegt ef við
ætlum að fórna þeim mikla árangri
sem náðst hefur,“ segir Ársæll.
Svanhildur Hólm Valsdóttir, hjá
Viðskiptaráði Íslands, segist vera á
þeirri skoðun að afnema eigi ríkis-
einokun á sölu áfengis. Hún bendir
á að ein helstu rökin fyrir einkasölu
ríkisins séu að með henni sé verið
að takmarka aðgengi. Á síðustu 30
árum hafi þó fjöldi áfengisverslana
ÁTVR fjórfaldast, verslanir séu
orðnar um 50 talsins og afgreiðslu-
tími hafi verið lengdur.
„Að því sögðu hefur Viðskiptaráð
enga sérstaka skoðun á því í hvers
konar verslunum áfengi er selt, svo
lengi sem sú sala er í höndum ann-
arra en hins opinbera. Innlendir
aðilar standa jafnfætis erlendum
og kraftar samkeppni fá að skapa
eðlilegt rekstrarumhverfi og aukna
hagkvæmni fyrir neytendur,“ segir
Svanhildur Hólm. n
Sala á
áfengi,
mæld í
hreinum
vínanda, á
tímabilinu
1980 til
2020 fór
úr þremur
lítrum á
mann upp
í sex lítra
á hvern
Íslending,
15 ára og
eldri.
Við erum að taka
mikla sénsa með því
að auka aðgengi að
áfengi.
Doktor Ársæll
Arnarsson, pró-
fessor við HÍ
Við erum með dúndr-
andi forræðishyggju
úti um allt, tökum bara
umferðina, þar fylgjum
við reglum sem stýra
hegðun okkar.
Árni Einarsson,
forvarnafulltrúi
Ég sé samt ekki fyrir
mér að allar okkar
búðir yrðu opnar á
sunnudögum.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri ÁTVR
100
80
60
40
20
0
2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
Lýðheilsusjóður – úthlutað til lýðheilsuverkefna 2013-2022
Í milljónum króna
Á sama tíma og aðgengi að
áfengi hefur stóraukist, sem
leitt hefur til stóraukinnar
drykkju, hafa framlög til for-
varna dregist saman. Prófess-
or segir ungt fólk skotmörk í
áróðri framleiðenda.
Sala á áfengi, mæld í vínanda á tíma-
bilinu 1980 til 2020, fór úr þremur
lítrum á mann upp í sex lítra á hvern
Íslending, 15 ára og eldri.
Íslendingar drekka oftar en
áður en minna í einu að jafnaði.
Unglingadrykkja hefur minnkað
en þriðja hvert barn í 9. bekk hefur
neytt áfengis og vísbending er um
að vandinn sé aftur að aukast. Fjár-
veitingar til forvarna eru á sama
tíma 15 prósentum minni nú en
fyrir nokkrum árum.
Sunnudagsvínið á leiðinni?
Fréttablaðið hefur fjallað um frum-
varp nokkurra Framsóknarþing-
manna sem myndi gera ÁTVR kleift
að selja vín alla sunnudaga og á stór-
hátíðum. Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir það
Alþingis að ákveða framhaldið. „Við
myndum reyna að skoða að koma til
móts við viðskiptavini með aukinni
þjónustu ef það verður heimilað. Ég
sé samt ekki fyrir mér að allar okkar
búðir yrðu opnar á sunnudögum,“
segir Sigrún.
Milli áranna 2020 og 2021 jókst
sala hjá ÁTVR um heil 40 prósent.
Sumir hafa viljað skýra aukningu
með áfengiskaupum erlendra ferða-
manna. Innan ÁTVR hefur sá hlutur
að sögn Sigrúnar verið áætlaður
óverulegur eða um 2 prósent. Þá
varð minni sala fyrstu níu mánuði
þessa árs miðað við 2021.
Fjölgun veitingastaða sem selja
áfengi er gríðarleg. Bruggstaðir hafa
fengið heimild til að selja „beint frá
býli“. Áfengiskaup í gegnum inter-
netið hafa orðið að veruleika og allir
þessir þættir stórauka aðgengi.
Bæta þurfi í forvarnir
Heilbrigðisráðuneytið úthlutar fé
í gegnum Lýðheilsusjóð en Emb-
ætti landlæknis hefur umsjón með
sjóðnum. Framlög innanlands til
ávana- og vímuefnaforvarna voru
81,6 milljónir í fyrra. Árið 2018 var
framlagið 96,3 milljónir króna.
Skerðingin er um 15 prósent.
„Þetta er mikil skerðing á sama
tíma og það er verið að auka aðgengi
og auka líkur á aukinni áfengis-
neyslu. Aukin neysla ætti að kalla á
auknar forvarnir,“ segir Árni Einars-
son forvarnafulltrúi.
Dúndrandi forræðishyggja
Árni segir að stjórnvöld reyni að
láta í veðri vaka að aukið aðgengi
hafi enga neikvæða fylgifiska, þótt
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, hafi ítrekað reiknað út að
aukið aðgengi eykur neyslu. Hann
segir að postular sem prediki frelsi
noti gjarnan hið neikvæða og gildis-
hlaðna hugtak forræðishyggju til að
beina spjótum að.
„En við erum með dúndrandi for-
ræðishyggju úti um allt, tökum bara
umferðina, þar fylgjum við reglum
sem stýra hegðun okkar,“ segir Árni.
Neysla á áfengi verður að byggja
á samfélagssáttmála og upplýstri
nálgun að sögn Árna. Ekki megi gef-
ast upp gagnvart markaðsöflunum,
enda óumdeilt að skaðsemi áfengis
geti orðið mjög mikil. Spurður hvort
stríðið sé tapað í ljósi erlendra aug-
lýsinga sem tröllríða internetinu og
sjónvarpsefni, telur Árni svo ekki
vera en bendir á að í auglýsingum
sé ekki bara verið að kynna vöru-
merki heldur varpa dýrðarljóma á
neysluna.
Vill halda víninu innan ÁTVR
Fimm Framsóknarþingmenn, undir
forystu Hafdísar Hrannar Hafsteins-
dóttur sem situr í velferðarnefnd,
Drykkja hefur tvöfaldast á fjórum áratugum
Lækkun fjár-
framlaga til
Lýðheilsusjóðs
síðustu ár
nemur um 15
prósentum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÓTTAR
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
Svanhildur
Hólm Valsdóttir,
Viðskiptaráði
FRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 6. október 2022 FIMMTUDAGUR