Fréttablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 13
Hluthafafundur
í Nova Klúbbnum hf.
2. nóvember 2022
Stjórn Nova Klúbbsins hf. boðar til hluthafafundar sem haldinn
verður miðvikudaginn 2. nóvember 2022 klukkan 16 á skrifstofu
félagsins að Lágmúla 9, 108 Reykjavík, 4. hæð. Fundurinn verður
einnig haldinn með rafrænum hætti og verða nánari upplýsingar
um rafræna þátttöku hluthafa aðgengilegar á vefsíðu félagsins,
www.nova.is/fjarfestar.
Stjórn Nova Klúbbsins hf.
Tillaga stjórnar að dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Tillaga stjórnar um breytingu á ákvæði gr. 4.1. í samþykktum
félagsins, þannig að gert sé ráð fyrir 5 stjórnarmönnum í stað 3–5 áður
Tillaga stjórnar um að bæta við samþykktir félagsins nýju
ákvæði, gr. 4.2, um skipun tilnefningarnefndar
Tillaga stjórnar um aðrar breytingar á samþykktum félagsins
Tillaga stjórnar um skipun tilnefningarnefndar
Tillaga stjórnar um starfsreglur tilnefningarnefndar
Stjórnarkjör
Tillaga stjórnar um að hluthafafundur samþykki tillögu
starfskjaranefndar um þóknun til stjórnarmanna
Tillaga stjórnar um að hluthafafundur samþykki tillögu starfs-
kjaranefndar um þóknun til nefndarmanna í undirnefndum stjórnar
Tillaga stjórnar um að hluthafafundur samþykki tillögu starfs-
kjaranefndar um þóknun til nefndarmanna í tilnefningarnefnd
Önnur mál löglega fram borin
Aðrar upplýsingar:
Öll skjöl og tillögur sem lagðar verða fyrir hluthafafundinn verður
að finna á vefsíðu félagsins, www.nova.is/fjarfestar. Hluthöfum stendur
einnig til boða að nálgast skjölin á skrifstofu félagsins að
Lágmúla 9, Reykjavík, virka daga milli klukkan 9:00 og 16:00.
Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku.
Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína
hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð til staðfestingar
umboði sínu.
Hægt verður að greiða atkvæði á fundinum með rafrænum hætti
og verða nánari upplýsingar um rafræna þátttöku og rafræna
atkvæðagreiðslu aðgengilegar á vefsíðu félagsins,
www.nova.is/fjarfestar.
Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafa-
fundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir
að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundarins skal slík beiðni
hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið fjarfestatengsl@nova.is
eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16, sunnudaginn 23.
október 2022.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.
Í upphafi fundarins mun stjórn félagsins segja af sér til að tryggja
að stjórnarkjör fari fram, enda verði ekki sjálfkjörið í stjórn félagsins.
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar og í tilnefningarnefnd félagsins.
Skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga, nr. 2/1995, ber að tilkynna framboð
til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafa-
fund þar sem stjórnarkjör skal fara fram, eða fyrir kl. 16, föstudaginn
28. október 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Nova að Lágmúla
9, Reykjavík, eða á netfangið fjarfestatengsl@nova.is.
Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og í tilnefningarnefnd verða
birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafundinn.
Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldis-
kosningar við stjórnarkjör í einn sólarhring frá því að stjórn kunngerir
niðurstöður framboða til stjórnar, enda verði ekki sjálfkjörið.
Fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.