Fréttablaðið - 06.10.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 06.10.2022, Síða 20
Fyrirspurnirnar um miða á leikinn hafa verið margar og ég reyndi nú að redda mínum nánustu miðum. Alfons Sampsted helgifannar@frettabladid.is KÖRFUBOLTI Finnur Freyr Stef- ánsson, þjálfari karlaliðs Vals í Subway-deild karla í körfuknatt- leik, er brattur fyrir komandi leik- tíð en býst við að hún verði ansi krefjandi. Valur er ríkjandi Íslandsmeistari. Liðið vann titilinn í fyrsta sinn í næstum fjóra áratugi í vor, eftir æsispennandi úrslitaeinvígi við Tindastól. Liðið hefur leik í deild- inni annað kvöld, þegar Stjarnan kemur í heimsókn. „Þetta leggst vel í mig. Við eigum góðar minningar frá síðasta tíma- bili og hlökkum bara til að takast á við verkefni vetrarins,“ segir Finnur við Fréttablaðið. Stöðugleiki er markmiðið Valur varð meistari meistaranna með sigri á Stjörnunni á dögunum, þrátt fyrir að nokkra lykilmenn vantaði. „Stemningin í hópnum er góð. Þetta var upp og niður á undir- búningstímabilinu, en hópurinn er flottur og samheldinn. Þó svo að við höfum misst stór púsl úr honum finnur maður að þeir sem eftir eru hafa náð að viðhalda þessari menn- ingu sem við náðum að skapa í fyrra.“ Valur er nýtt stórveldi í körfu- boltanum hér á landi. Hvernig leggst titilvörnin í Finn? „Ég hef aldrei litið á það þann- ig að maður verji titil, maður þarf alltaf að sækja hann. Deildin er gríðarlega sterk í ár, mörg góð lið. Við einbeitum okkur við að halda áfram að byggja upp körfuboltann hér á Hlíðarenda og reyna að koma þessu félagi fyrir sem einu af topp sex liðunum í íslenskum körfubolta. Við viljum búa til einhvern stöðug- leika, halda honum og vera að eltast við toppinn.“ Fyllir ekki skarð Pavels Pavel Ermolinskij yfirgaf herbúðir Vals eftir síðustu leiktíð. Í gær til- kynnti hann svo að körfubolta- ferlinum sem leikmaður væri lokið. Hann varð alls átta sinnum Íslands- meistari á ferlinum, sjö sinnum með KR og svo með Val í vor. „Það er ómögulegt að fylla skarðið hans Pavels. Hann er stórkostlegur leikmaður, stórkostleg manneskja. Hann kemur með hluti sem eru einstakir, bæði inni í klefanum og þjálfarateyminu í fyrra. Þú fyllir ekki hans skarð en reynir kannski að finna aðrar leiðir,“ segir Finnur, sem á vart til orðin til að lýsa aðdáun sinni á Pavel. „Ég er fyrst og fremst gríðarlega þakklátur yfir að fá að hafa unnið með honum svona lengi og maður er hálf meyr að hugsa til þess að ferill líklega besta leikmanns Íslands- mótsins í körfubolta sé á enda. En mig grunar að hann eigi eftir að koma nálægt körfunni eitthvað áfram, það verður bara gaman að sjá í hvaða mynd það verður,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals. n Vilja festa sig í sessi sem eitt af bestu liðum landsins Maður er hálfmeyr að hugsa til þess að ferill líklega besta leik- manns Íslandsmótsins í körfubolta sé á enda. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari karlaliðs Vals 18 Íþróttir 6. október 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 6. október 2022 FIMMTUDAGUR Margir af nánustu aðstand- endum íslenska knattspyrnu- mannsins Alfonsar Sampsted verða á Emirates-leikvang- inum í Lundúnum í kvöld og verða vitni að því þegar einn af draumum hans rætist. Bodø/Glimt reynir enn og aftur fyrir sér á stóra sviðinu. Skytturnar í Arsenal bíða. aron@frettabladid.is FÓTBOLTI Það hefur gengið vel í Evrópukeppnum hjá Alfons og liðsfélögum hans í norska úrvals- deildarfélaginu Bodø/Glimt und- anfarið. Liðið komst alla leið í átta liða úrslit Sambandsdeildar UEFA á síðasta tímabili þar sem nokkur risastór knattspyrnulið í Evrópu lágu í valnum. Þá er liðið taplaust í riðlakeppni Evrópudeildarinnar hingað til en þar er Bodø/Glimt í riðli með PSV Eindhoven frá Hollandi, FC Zürich frá Sviss og stórliði Arsenal frá Eng- landi. „Við höfum átt tvo mjög f lotta f y rstu leik i í r iðlakeppninni hingað til,“ segir Alfons við Frétta- blaðið. „Náðum til að mynda í stig á erfiðum útivelli gegn PSV í fyrstu umferðinni og erum í raun óheppn- ir að hafa ekki náð að ræna sigrinum þar í uppbótatíma. Svo í leiknum gegn FC Zürich stjórnuðum við ferðinni algjörlega frá A til Ö og aldrei nein raunveruleg hætta á að þeir færu með eitthvað til baka heim til Sviss.“ Skytturnar bíða Næsta verkefni er risavaxið en í kvöld mætir Alfons ásamt liðs- félögum sínum á Emirates-leik- vanginn í Lundúnum þar sem andstæðingurinn verður enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal sem hefur farið afskaplega vel af stað á yfirstandandi tímabili. „Eins og staðan er núna situr Arsenal í fyrsta sæti ensku úrvals- deildarinnar. Við höfum verið að skoða klippur úr leikjum liðsins og maður hefur síðan sjálfur í gegnum tíðina náttúrulega séð milljón klippur fá leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er lið sem vill halda í boltann, þeir eru duglegir að láta andstæðinginn hlaupa og hafa á að skipa leikmönnum á mjög háu gæðastigi. Í grunninn býst maður bara við leik þar sem þeir munu lík- lega stjórna ferðinni en það þýðir samt ekki að við þurfum að kasta okkar gildum út um gluggann. Við munum alltaf reyna að vera við sjálfir. Draumur að rætast Alfons, sem hefur verið stuðnings- maður Chelsea í ensku úrvalsdeild- inni, bendir réttilega á gífurlegar vinsældir deildarinnar hér heima fyrir líkt og raunin er víða um heim. Hvernig er það þá fyrir hann sem leikmann að stíga á stóra sviðið gegn jafn þekktu félagi og Arsenal? „Frá því að maður var lítill hefur maður horft á ensku úrvals- deildina og dreymt um að spila þar einn daginn. Nú er ég ekki að fara hefðbundnustu leiðina að því að spila við Arsenal á Emirates-leik- vanginum en óneitanlega er þarna draumur að fara rætast. Þetta eru leikirnir sem maður vill spila og er spenntastur fyrir. Fyrir mig sem Íslending sem hefur átt þennan draum lengi og horfir mikið á enska boltann er þetta ótrú- lega spennandi.“ Ættingjar æstir í miða Það verður algjör Íslendingaveisla á Emirates-leikvanginum í kvöld þar sem nánustu ættingjar og vinir Alf- onsar ætla ekki að láta leikinn fram hjá sér fara. „Fyrirspurnirnar um miða á leikinn hafa verið margar og ég reyndi nú að redda mínum nánustu miðum. Ég held að í heildina hafi þetta verið um þrjátíu miðar sem félagið náði að græja fyrir mig. Þetta var ákveðin áskorun en forráðamenn Bodø/Glimt gerðu allt til þess að hjálpa okkur leik- mönnunum að fá miða fyrir okkar nánustu, sem er frábært því það er auðveldara að ferðast til London heldur en til Bodø til að koma að sjá okkur spila.“ Sjarmi við Evrópukvöld Það er eitthvað sérstakt við Evr- ópukvöldin í boltanum að mati Alfonsar. „Mínir skemmtilegustu leikir á ferlinum með Bodø/Glimt hafa verið Evrópuleikir. Með þessum leikjum kemur einhver extra hvatning til að láta finna fyrir sér og standa sig vel í Evrópu. En það sem ég hef einnig tekið eftir er að þegar í Evrópuleikina er komið tökum við alltaf gríðar- lega mikinn lærdóm með okkur úr hverjum einasta leik í þeim keppn- um þegar við mætum andstæðingi frá öðru landi. Þarna erum við að mæta liðum með allt önnur gildi, upplegg og leikstíl og sá vinkill er einn af þess- um spennandi þáttum við að spila þessa Evrópuleiki. Að mæta liði með annan bakgrunn í knattspyrnu og um leið að bæta okkar leik.“ Önnur staða uppi núna Bodø/Glimt eru ríkjandi meistarar síðustu tveggja tímabila í norsku úrvalsdeildinni en nú situr félagið í öðru sæti deildarinnar langt á eftir Molde. Alfons segir erfitt að tala um svekkelsi í tengslum við stöðu liðsins. „Við erum í góðri baráttu um Evrópusæti enn, auðvitað hafa ákveðnir hlutar tímabilsins valdið vonbrigðum þar sem við höfum verið svekktir með það hversu illa okkur hefur gengið að leysa upp mótspil andstæðinga okkar. Í þeim leikjum liggja andstæð- ingar okkar djúpt á vellinum með í leikkerfinu 5-3-2 og það hefur reynst okkur erfitt. Í þeim leikjum höfum við misst af mörgum stigum. Aftur á móti getum við bara horft til reynslu okkar í Evrópu þar sem okkur hefur tekist að yfirstíga hindranir og læra af því. Það sýnir okkur að ef við náum að brjóta á bak aftur þetta leikkerfi þá erum við komnir með fleiri vopn í vopna- búrið. Maður getur horft á allt sem lærdóm og við reynum að gera það sem oftast í Bodø/Glimt. Framtíðin óljós Alfons hefur verið á mála hjá Bodø/ Glimt síðan árið 2020. Núverandi samningur hans rennur út núna um áramótin og óvíst hvað tekur við. „Ég er mjög sáttur hjá félaginu og líður virkilega vel hérna. Hér fæ ég mikið traust og svigrúm til að þróa minn leik áfram. Viðræður við félag- ið um nýjan samning hafa átt sér stað en akkúrat núna stendur það bara í stoppi. Við ætlum að sjá hvað dúkkar upp.“ Hann segist vita af áhuga annars staðar frá. „Við erum hins vegar á þeim stað núna á tímabilinu að það eru engar ákvarðanir teknar á þessum tímapunkti. Einn félags- skiptagluggi var að lokast og undir- búningur fyrir næsta glugga ekki hafinn. Áhuginn frá öðrum félögum hefur verið til staðar en ef maður ætlar að velja einhvern annan möguleika þá þarf hinn sami að vera betri en að vera áfram hjá Bodø/Glimt, hvað það varðar myndi þurfa mikið til. Ég hef ekki tekið neinar ákvarð- anir um framtíð mína, mun bara sjá hvað kemur upp og taka ákvarðanir út frá því þegar þar að kemur.“ n Boðað til Íslendingaveislu í Lundúnum í kvöld Alfons Samp­ sted er fasta maður í vörn norska meistaraliðsins Bodø/Glimt sem hefur verið að gera góða hluti bæði í Noregi sem og í Evrópu­ keppnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.