Fréttablaðið - 06.10.2022, Page 24

Fréttablaðið - 06.10.2022, Page 24
Stella McCartney kom eins og gleðisprengja með vor- tískuna 2023 á tískuvikunni í París sem nú stendur yfir. Sýningin fór fram fyrir framan Pompidou- safnið í París en þrjár línur skáru gangstéttina í gulum, rauðum og bláum lit. elin@frettabladid.is Litadýrðin var sótt í hið fræga Pompidou-safn en fatalína Stellu var ekki síður litrík. Fyrirsæturnar komu út úr aðalinngangi safnsins og gengu eftir lituðu dreglunum með fram áhorfendum. Greinilegt er að Stella ætlar að fagna næsta sumri í bjartsýnum litapallettum sem innihalda limoncello-gult, tyggjóbleikt, skærappelsínu- gult, mintugrænt og heið- blátt. Stella kynnti vorlínuna sem umhverfisvæna en hún notaði endurunna bómull og segist vera fyrsti tískuhönnuðurinn til þess. Hún segist lifa í sátt við náttúruna og horfa til sakleysis bernskunnar. Móðir hennar Linda McCartney var mikil baráttukona og aktívisti fyrir betri heimi. Linda lést árið 1998 úr brjóstakrabbameini. Faðir Stellu, Paul McCartney, var við- staddur sýninguna í París ásamt eiginkonu sinni, Nancy Shevell. Þá vakti athygli að systurnar Gigi og Bella Hadid sem eru þekktustu fyrirsætur heims um þessar mundir voru báðar á sviði tísk- unnar fyrir Stellu. Stella McCartney fæddist árið 1971 og hugur hennar beindist snemma að tískuheiminum. Hún hannaði fyrstu flíkina aðeins þret- tán ára. Stella þykir einn fremsti tískuhönnuður heims og er bæði frjálsleg í hönnun sinni og ævin- týragjörn. Stella giftist breska útgefand- anum Alasdhair Willis árið 2003 og eiga þau fjögur börn. n Stella kynnti vor- línuna sem umhverfisvæna en hún notaði endurunna bóm- ull og segist vera fyrsti tískuhönnuðurinn til þess. S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL.IS Klassísku dúnkápurnar frá Sumargleði hjá Stellu McCartney Fyrirsæturnar gengu eftir gulum, bleikum og bláum dreglum og sýndu lit- brigði næsta sumars. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Bláa draktin er frekar óvenjuleg. Jakkinn er stór í sniðum og pilsið hannað á sér- stakan hátt. Glæsilegur himinblár sumarkjóll frá Stellu McCart- ney. Fylgi- hlutir eins og handtöskur voru í sömu lita- pallettunni og fatnaðurinn. Stutt- ur kjóll með áföstu sjali í neon- grænum lit. Margir eru hrifnir af þessum lit enda færir hann birtu í um- hverfið. Guli liturinn var áberandi og sumir líktu honum við hinn fræga ítalska drykk limoncello. 4 kynningarblað A L LT 6. október 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.