Austurglugginn - 06.09.2007, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 6. september
AUSTUR • GLUGGINN
3
Himbrimar
í Berufirði
Himbrimi sporðrennti kolablað. Mynd: Andrés Skúlason/www. birds. is
Töluverður fjöldi himbrima heldur
sig nú í Berufirði og úti við tjörur á
Búlandsnesi. Oftar en ekki má t.d.
sjá himbrima í Eyfreyjunesvíkinni
sem er í sunnanverðum Berufírð-
inum fast við þjóðveginn. Hér á
myndinni má sjá himbrima á Ey-
freyjunesvíkinni með kolablað sem
var skömmu síðar kokgleyptur.
AS
Gamli flugvöllurinn á Reyðarfirði nýtist vel eins og meðfylgjandi mynd ber vitni
um. Þótt langt sé síðan flugvél hefur lent á vellinum þá nýta starfsmenn netagerð-
arinnar á Eskifirði sér flugvöllinn til viðgerðar á trolli Hákons EA þessa dagana.
Starfsmaður sem vann að viðgerð sagði aðstöðuna á Eskifirði alveg stórfína en þeir
gætu nýtt sér flugvöllinn þegar mikið liggur við. "Eins og núna, þetta troll er alveg
í hönk og við þurfum gott pláss". Mynd: EBÞ
Bæjarráð Fjarðabyggðar gerir athugasemdir
Mjóeyrarhöfn:
Ekkert GSM-samband 225 metra
á Mjóafjörð? ferlíki landaði súráli
Á bæjarráðsfundi 4. september
tók Fjarðabyggð fyrir erindi frá
Samgönguráðuneytinu sem fjallar
um uppbyggingu GSM-farsíma-
þjónustu á þjóðvegum. Bæjarráð
gerir athugasemdir við að í áætlun
Samgönguráðuneytisins sé ekki
gert ráð fyrir GSM-sambandi í
Mjóafírði og fól forstöðumanni að
gera athugasemdir vegna þessa við
ráðuneytið.
EBÞ
Landað hefur verið úr öðru skipi
sem flutt hefur súrál til Fjarðaáls
verksmiðjunnar, en það lagðist að
bryggju í síðustu viku. Skipið mun
heita Shi Dai 7 og er eitt lengst
skip sem hefur lagst að bryggju
hér á landi. Shi Dai 7 mun vera
225 metra að lengd og 32 metrar
að breidd, það ristir 12 metra djúpt.
Skipið kom frá Ástralíu eftir um 40
daga siglingu.
EBÞ
HHMB
■■■■■■
Tökum við símtölum frá öllum símafélögum
Áskriftarsími Austurgluggans er477 1 571